Vera


Vera - 01.06.2002, Page 16

Vera - 01.06.2002, Page 16
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir «5 OJ > 16 Um daginn ákvað ég að reyna að komast að því hvers vegna kvennablöð, kvennaþættir og kvennanetmiðlar fara svona í taugarnar á mér. Ég fletti Nýju Lífi og Vikunni handahófskennt og kíkti inná femin.is, las gamlar bækur ætlaðar konum og komst á þennan óvísindalega hátt að fúllyndislegri niðurstöðu. Greinar, sem í öðrum blöðum snúast um hitt og þetta, snú- ast í kvennablöðunum um „kvenleg efni". Fyrst ákvað ég að gera tilraun til að skipta umræðuefnunum í kvennablöðunum í flokka og við fyrstu gróf-flokkunina var þetta niðurstaðan: Út- lit, kynlíf og harmsögur. Hún gæti líka hljóðað svo: Útlit, heilsa, megrun, kynlíf, uppeldi, matur, sambönd, frægt fólk, harmsög- ur og hvunndagshetjur. Greinar sem einhverjar konur gætu haft áhuga á, s.s. greinar um myndlist, bókmenntir, stjórnmál eða þjóðfélagsmál, eru ekki til staðar. Hópurinn konur hefur áhuga á útliti sínu, barnauppeldi, karlmönnum og kynlífi. Og óskaplegan áhuga á sögum af harmi annarra. Að matreiða heila I Kvennafræðaranum eftir Elínu Jónsson, fædda Briem, sem gefinn var út á íslandi um aldamótin 1900 er hlutverk konunnar skýrt og einfalt. Hún er húsfreyja og hún á að sjá um matseld, þvotta og barnauppeldi. Kynveran þurftafreka er ekki komin til sögunnar. Bókin er sérstaklega gefin út fyrir konur þeim til leiðbeiningar varðandi ýmislegt sem konur þurftu að vera vel að sér um. Þessi bók er barn síns tíma, eins og sagt er, en alveg sérstaklega hressandi að lesa hana eftir að hafa blaðað í gegn- um stóra bunka af Nýju lífi og Vikunni. I Kvennafræðaranum læra kon- ur umgengni í búri og eldhúsi og um suðu á mat. Matreiðsla á ragúi úr kálfshaus, lögun fótolíu og gerð heilastöppu og heilapylsu. Þessi dæmi tek ég vegna þess að mér finnst þau í hróplegri mótsögn við það lesefni sem sórstaklega er ætlað konum í dag. í heilamatreiðslunni er konum tekinn vari fyrir því að matreiða heilann ef sullur er í honum, en annars skal hann borðaður heitur með brauði. Kvennafræðarinn er allur í þess- um anda. I heimilishaldi um aldamótin var ekkert pláss fyrir pjatt. Kafli um fatnað er líka alveg laus við nokkrar tiktúrur. Þar er meirað segja var- að við evrópskum tískustraumum og sterklega mælt gegn lífstykkjum, sem sögð eru hafa valdið heilsutjóni. „Sokkabönd skal aldrei brúka og skór og stígvél eiga að vera rúm og fylgja sem mest lögun fótarins og hafa breiða hæla. Ekki of þröngvir og hvorki of mjóir fram eða með háum og mjóum hælum, það er mjög óhollt." Þetta er annar heimur en sá sem við eigum að venjast. „Klæðnaðurinn á að vera hollur fyrir heilsuna, ekki óþægilegur og vanskapa ekki útlit líkamans." Líkaminn er viðmiðunin, ekki fötin eða tískan. H8&

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.