Vera


Vera - 01.06.2002, Side 20

Vera - 01.06.2002, Side 20
Svona eiga konur að vera How Sin-sational Are You? Learn the Secret Ways to Be a Bad, Bad Girl in Bed and We Guarantee He’ll Feel Soooo Good HowtoMake HimLoveYou • Forever á fætur annarri og bera mig saman við þær. Nú á ég reyndar vinkonu sem gluggar oft í þessi kvennablöð en hefur aldrei dottið í hug að bera sig saman við neina af þessum fyrirsætum. Því geri ég mér grein fyrir því að mín upplifun á þessum blöð- um kann að vera einstök. Það breytir því þó ekki að í seinni tíð hef ég oft velt því fyrir mér hvort þessi svokölluðu kvennablöð séu gerð fyrir konur yfirhöf- uð og ef svo er, fyrir hvaða konur. Því ég veit að þau eru ekki gerð fyrir mig. Blaðsíðu eftir blaðsíðu er hamrað á því að konur eigi að vera mjóar, sætar og fylgja tískunni. Þá skiptir engu þótt konan/lesandinn leyfi sér fyrirfram að vera ánægð með sig. Alltaf eru til góð ráð fyrir hana hvernig hún getur orðið mjórri, sætari og meira kynæsandi fyrir karlmenn. Og hverj- ir skyldu nú græða á því að gera svo strangar útlits- kröfur að lífstakmark fjölda kvenna, bæði hérlendis og erlendis, skuli vera að léttast um nokkur kíló? Konur sjálfar? Séu þessi blöð gerð með sérstakar þarfir kvenna í huga, hvernig stendur þá á því að myndir af falleg- um karlmönnum eru sjaldgæfar og að blöðin séu þess í stað stútfull af kynæsandi konum í mismiki- um fatnaði? Þegar litið er til myndavals tímaritanna væri ekki fjarri lagi ef einhver velti fyrir sór hvort markhópur blaðanna séu samkynhneigðar konur. En egar ég komst á unglingsárin hélt ég að hluti af því að verða kona væri að komast inn í heim kvennatímaritanna - blaðanna sem tala til lesandans í kvenkyni. Fyrstu blöð- in sem ég leyfði mér að kaupa voru Just 17 blöðin en fljótlega tók ég stefnuna á „þroskaðri" blöð á borð við Cosmo og Marie Claire sem ávallt hafa að geyma góð ráð um hegðun, atferli og framkomu á ýmsum sviðum svo sem eins og í kynlífi, förðun og fatatísku. Ég man hvað það fyllti mig mikilli gleðitilfinn- ingu að vera loksins búin að uppgötva leik- reglurnar þá aðeins 16 ára gömul. Á sama tíma og ég las hvert tímaritið á fætur öðru spjaldanna á milli, tók sjálfsmynd mín að skekkjast all illilega. Eg fór að horfa á mig gagnrýnum augum í speglinum og taka eftir hinum ýmsu líkamslýtum sem ekki samrýmdust uppskrift tískublaðanna. Þeg- ar ég fletti tímaritunum sá ég á hverri blaðsíðu eitt- hvað sem mátti bæta hjá mér. Þessi uppgötvun olli mér þó ekki þeirri sálarangist sem við mátti búast, því alltaf pössuðu blöðin að koma með góð ráð til að bæta úr hinum ýmsustu „göllum/lýtum.“ Sum þeirra voru dýr og önnur jafnvel sársaukafull en það skipti mig þó ekki máli því öll áttu þau jú að stuðla að lífs- hamingju minni. Á unglingsárunum eyddi ég ómældum upphæðum í kaup á snyrtivörum og öðrum ómissandi fegrunartól- um. Þegar ég var komin hættulega nálægt því að þróa með mér átröskun gafst óg upp. Eg hætti að reyna að uppfylla þessa þröngu fegurðarstaðla, horfðist í augu við raunveruleikann og hætti að kaupa þessi sjálf- spyntingartól. Við vandlega skoðun sálarinnar og vísareikningins komst ég að þeirri niðurstöðu að á- stæða kaupanna var ekki gífurlegur áhugi minn á tísku heldur vanmáttarkennd alin upp í mér við að skoða hverja gullfallegu „fótósjoppuðu" fyrirsætuna

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.