Vera - 01.06.2002, Qupperneq 30
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Mynd: Þórdís
rc
w
<U
>
30
Fyrir þrettán árum klukk-
an tvö um nótt gekk Susie
Hewson, tveggja barna
heimavinnandi móðir í Bretlandi,
um gólf með grátandi son sinn
sem enn einu sinni hafði fengið
bleyjuútbrot vegna bréfbleyjanna
sem hún notaði á hann. Susie
fylltist gremju. Hún var viðloð-
andi umhverfissamtök og vissi
hvaða usla bréfbleyjurnar ollu úti
í náttúrunni. Allar heimsins bl-
eyjur og öll heimsins dömubindi
voru við það að kaffæra jörðina,
en eins og margir fann Susie til
vanmáttar gegn ástandinu. Allt í
einu þyrmdi það yfir hana að það
væri rangt að horfa alltaf á hvað
vandamálið væri yfirþyrmandi
stórt og óleysanlegt í stað þess að
leggja sitt af mörkum. Það eru ein-
staklingar sem skapa hópa og ein-
staklingar hafa áhrif. í dag er
vörumerki hennar, Natracare, selt
í 25 löndum.
„Eg ákvað að búa til mínar eig-
in vörur,“ segir Susie. „Eg hafði
verið ákaflega umhverfissinnuð
um margra ára skeið og það var
sennilega reiðin sem rak mig á-
fram. Eg vissi af fjölda kvenna og
barna sem þjáðist af ofnæmisvið-
mám> áfram
rætt við Susie Hewson stofnanda Natracare
brögðum vegna bleyja og dömu-
binda sem innihalda alls konar
eiturefni, fyrir utan hvað þetta ó-
hemju magn sem notað er, gerir
náttúrunni. Díoxínmengun er eitt
af helstu umhverfisvandamálum
heims og stór hluti díoxíns verður
til við bleikingu ýmissa afurða
með klór, t.d. trjákvoðu sem er
svo notuð við framleiðslu tíða-
tappa og dömubinda. Eg ákvað
þarna um nóttina að búa til vöru
úr lífrænni bómull sem mengaði
ekki, og ég stóð við það.“
Það tók Susie minna en ár að
koma fyrirtækinu á laggirnar.
Hún skrifaði öllum stórmörkuð-
um til að kynna dömubindi sem
höfðu fengið hið sjálfsagða nafn
Natracare. Hún vissi að margar
konur hafa áhuga á því að nota
vörur sem menga ekki og spyrja
því um og leita að vinalega andlit-
inu sem tryggir að þær séu um-
hverfisvænar. I kjölfarið fylgdu
margnota umhverfisvænar bleyj-
ur og barnakrem. Hún beitti sér
líka fyrir því að láta kanna á óháð-
an hátt hvaða efni væri að finna í
vinsælustu dömubindunum á
markaðnum og boðaði forstjóra
fyrirtækjanna á ráðstefnu þar sem
niðurstöðurnar voru kynntar.
Enginn þeirra mætti, en hver um
sig sendi lögfræðinga sína til þess
að segja Susie til syndanna.
„Þeim líkaði ekki það sem ég var
að gera,“ segir Susie og brosir
dauflega. „Eg fékk ótal hótunar-
bréf sem áttu að fá mig ofan af
þessu og varð svolítið hrædd á
tímabili, þar sem mér fannst ég
hafa lítið í þessa risa, en þeir láta
mig alveg í friði núna.“
Þurfum ekki svona mikið
plast
Fjöldi kvenna finnur til óþæginda
af notkun tíðatappa eða dömu-
binda, s.s. sveppasýkingar, erting-
ar, kláða og sviða. I Natracare eru
hvorki erfðabreytt né klórbleikt
efni og ólíkt mörgu öðru eru
Natracare vörurnar lausar við
gerviefni, tilbúin límefni, plast-,
húðunar- eða ilmefni. Þau eru
framleidd með límrönd sem
„andar" og hleypir lofti í gegn auk
þess sem í Natracare eru hvorki
rakadræg akrýlefni né plasthúð
sem liggur næst húðinni en slík
efni geta valdið ertingu.
„Við þurfum ekki svona mikið
plast í þessar vörur,“ segir Susie
og brýnir raustina. „Ef þú ert kona
á blæðingum og þú þarft raun-
verulega svona mikið plast til
þess að taka við blóðinu, þá ætt-
irðu að vera hjá lækni.“ Aður-
nefnd gervi- og plastefni brotna
annað hvort alls ekki eða mjög
seint niður í náttúrunni og geta
jafnvel haldist í upprunalegu
formi í hundruð ára. Þróun
Natracare markar stórt skref og
bindin eru að langmestu leyti (um
95%) unnin úr efnum sem á
skömmum tíma brotna niður í líf-
rænu umhverfi.
„Konur þurfa að vita hvað þær
eru að nota,“ segir Susie. „Fólk á
að vera meðvitaðra um það sem
verður um ruslið þegar það er
hirt. Það hverfur ekki úr tunnun-
um sisona, heldur mengar það
umhverfi okkar.“
Konur gleyma ekki að þær
séu á blæðingum
Susie segir að það sé augljóst að
það eru karlar sem hanna dömu-
bindi almennt. Viðhorfið sem
birtist í því sem auglýsingarnar
segja er: „Settu á þig dömubindið
og það er svo þunnt að þú finnur
ekki fyrir því að þú sért á blæð-
ingum. Settu það á þig og
gleymdu því.“ Susie segir að
þannig sé ekki reynsla kvenna,
sama hvernig dömubindi þær
nota. „Við vitum þegar við erum á
blæðingum og við eigum að vera
meðvitaðar um það án þess að
þurfa að verða fyrir of miklum ó-
þægindum. Við eigum líka rétt á
því að vita hvað við erum að
nota.“
Susie segir augljóst að þörfin
hafi verið brýn vegna þess að nú
er Natracare blómlegt fyrirtæki
sem selur vörur sínar í 25 lönd-
um.