Vera - 01.06.2002, Page 32
vera fe- 1 Elísabet Þorgeirsdóttir
32
Fyrir rúmu ári setti Erla Halldórsdóttir á fót
kertagerð fyrir munaðarlausar stúlkur í borg-
inni Kampala í Uganda. Erla kynntist vanda
götubarna í borginni er hún gerði ítarlega
rannsókn á högum munaðarlausra barna
vegna alnæmis á árunum 1999 og 2000 þegar
hún var að Ijúka námi í félagsmannfræði við
bandarískan háskóla þar í borg. Flest börnin
hafa orðið munaðarlaus vegna þess að for-
eldrar þeirra hafa látist úr alnæmi en sá sjúk-
dómur náði hámarki um 1990 og nú eru marg-
ir að deyja af völdum hans. Talið er að um 1.7
milljón barna séu munaðarlaus í Uganda í dag
og að munaðarlausum börnum muni fjölga
mjög á næsta áratug. Uganda er eina landið í
Afríku þar sem tekist hefur að fækka nýsmiti
alnæmis.
Af kynnum sínum af lífi götubamanna sá Erla að þau
þyrftu aðstoð til að komast út úr þessum aðstæðum og
ákvað að gera eitthvað í málinu sjálf. Hún hefur dval-
ið að minnsta kosti þrjá mánuði á ári í Kampala eftir að
hún fór af stað með rannsóknina 1999 og náði Vera tali
af henni áður en hún hélt þangað í júní en í þeirri ferð
ætlar hún að segja frá verkefni sínu á ráðstefnunni
Womens World* sem er styrkt af norsku og sænsku
þróunarsamvinnustofnununum Norad og Sida.
Erla hefur búið í Afríku í mörg ár en maður henn-
ar, Gestur Gíslason jarðfræðingur, vann við jarðhita-
rannsóknir á vegum þróunarstofnunar Sameinuðu
Jjjóðanna, UNDP. Hann er nú starfsmaður Orkuveitu
Reykjavíkur. Þau bjuggu í Honduras í Suður-Amer-
íku 1979 til 1981 en voru alls tíu ár í Afríku, voru í
Kenya frá 1983 til 1990 og síðan í Uganda en fluttu
heim 1994. Erla fór að vinna hjá Sjóvá-Almennum
þegar hún flutti heim en ákvað að hætta um síðustu
áramót til að geta sinnt hugsjónaverkefni sínu betur.
Hún naut sérstakrar velvildar hjá fyrirtækinu vegna
ferðalaga sinna á meðan hún vann þar.
Heilu fjölskyldurnar dánar úr alnæmi
Erla segir að við þær hörmungar sem riðið hafa yfir
Austur-Afríku undanfarið vegna alnæmis hafi eigna-
réttur riðlast og gamla tryggingakerfi fjölskyldunnar
standi ekki undir sér lengur en samkvæmt afrískum
siðvenjum tekur fjölskyldan að sér framfærslu barna
sem missa foreldra sína. Nú er talið að munaðarlaust
barn sé á þriðja hverju heimili í landinu en börnin
sem lenda á götunni hafa mörg líka misst móður- og
föðursystkini enda er algengt að heilu fjölskyidurnar
hafa dáið úr alnæmi. Þá getur verið að ömmurnar
standi einar eftir með stóran hóp barnabarna og að
* www.makarere.ac.ug/womenstudies/congress2/