Vera - 01.06.2002, Qupperneq 35
Það kemur fyrir að einhver mæti í
vinnu undir áhrifum vímuefna en
þær eru mjög strangar hver við
aðra þegar slíkt kemur fyrir og
reka viðkomandi heim.
kyns vandamál, stúlkurnar hafa lent í fangelsi eða
kærastar þeirra og þær þurft peninga til að leysa þá
út. Það kemur fyrir að einhver mæti í vinnu undir
áhrifum vímuefna en þær eru mjög strangar hver við
aðra þegar slíkt kemur fyrir og reka viðkomandi
heim, Ég skipti mér ekkert af því þó þær mæti ekki í
vinnu einn og einn dag og sóu e.t.v. á götunni. Mæt-
ingin verður að vera á þeirra ábyrgð, ekki skyldu-
Wæting fyrir mig en almennt mæta þær 90% í vinnu.
Einu sinni sá ég eina af stúlkunum illa á sig komna
niðri í bæ og spurði hvort ég ætti að hjálpa henni.
Hún vildi það ekki en lofaði að koma daginn eftir.
Og hún stóð við það, koma hrein og fín og tilbúin til
^ð vinna.“
Erla segir að stúlkurnar eigi auðvelt með að vinna
1 hópi enda vanar því og þær hafa líka lært ákveðin
lögmál sem ríkja á götunni og efla samstöðuna. Þær
eru ekki í samkeppni hver við aðra heldur styðja
hver aðra og afbrýðisemi er nánast óþekkt. Ef þeim
hnnst einhver góð í einhverju setja þær hana yfir í
þeim málum og benda Erlu á hún ætti gera eitthvað
fyrir viðkomandi, t.d. hjálpa henni að mennta sig á
viðkomandi sviði. „Almennt eru þær mjög námfúsar
°g vilja læra það sem þær geta til að komast af göt-
unni. Reyndar segja þær sumar að þær geti aldrei far-
ið frá mér en ég verð að koma þeim áfram og rná ekki
gera þær of háðar mór. Svo verð ég auðvitað alltaf að
hafa góðan kjarna á staðnum sem kann vel til verka,
þannig að þær mega ekki fara of fljótt frá okkur,“ seg-
lr Erla að lokum og bætir við að húsnæði só til stað-
ar ef einhver hafi áhuga á að leggja fram tíma-
hundna vinnu á staðnum. Það þurfi að sjálfsögðu að
vera vel hæft fólk sem geti unnið sjálfstætt og sé
ýmsu vant.
A heimsíðu Erlu og Gests, www.simnet.is/rge,
eru myndir og upplýsingar um starfsemina og rann-
sókn Erlu á ensku.
Sex kornabörn fylgja stúlkunum sem vinna í kertagerðinni. Þau
dvelja á vinnustaðnum á meðan mæður þeirra vinna.
Kvennaþrenna
Fyrir konur með sveppasýkingu
í leggöngum.
Úr græðandi og sveppa-eyðandi
jurtum og jurtaolíum.
Kvennaþrennan hefur hlotið meðmæl
sérfræðings i kvensjúkdómum, sem
hefur haft hana til reynslu um árabil
viö sveppasýkingu í leggöngum, með
mjög góðum árangri.
Leiðbeiningar fylgja með í pakkanum
Mömmusalvi
Fyrir verðandi mæður og mæður
meö börn á brjósti.
Geröur úr græöandi jurtum og
jurtaolíum m.a. kamillu og morgun-
frúaroliu. Flefur veriö notaöur í
klíniskri rannsókn á sárar og
sprungnar geirvörtur meö mjög
góðum árangri. Einnig mýkjandi og
styrkjandi fyrir veröandi mæöur.
Framleiðsluvörur Urtasmiðjunnar eru úr islenskum jurtum og öðrum
náttúrulegum efnum.
Upplýsingar um sölustað'i og fl. Sími 4G2 4769
Sendum um allt land.