Vera - 01.06.2002, Síða 46
vera
46
KOPJUR A
Auður Aðalsteinsdóttir
yrir ekki svo löngu síðan þótti stórmerki-
legt að sjá konu undir stýri á stórum trukk
eða rútu. Nú þegar konur hafa í nokkurn
tíma sótt í sig veðrið í hefðbundnum karla-
störfum þykir það svo sem ekkert nýmæli
lengur. Karlar eru þó enn í yfirgnæfandi meirihluta í
störfum sem krefjast meiraprófs, eða aukinna öku-
réttinda eins og það er nú kallað. Vera ræddi við
nokkrar konur sem hafa unnið lengi við að keyra
stóra bíla og komst að því að ekkert annað en hefðin
aftrar konum frá slíkri vinnu.
„Konum sem taka aukin ökuréttindi hefur verið
að fjölga þótt það sé reyndar dálítið sveiflukennt.
Það eru ekki mörg ár síðan engin kona kom í námið
en nú hefur komið fyrir að í átján manna hóp séu sjö
konur. Núna eru þrjár að læra hjá okkur en það kem-
ur enn fýrir að engin kona er í tiópnum,“ segir Finn-
bogi G. Sigurðsson í Ökuskólanum í Mjódd. „Per-
sónulega vil ég hvetja konur til að taka prófið. Mín
skoðun er sú að kvenfólk sé miklu ábyrgari bílstjór-
ar. Stóru bílarnir eru ekkert karlavígi lengur. Þegar
ég var að vinna við akstur þurfti krafta til að keyra
stóra bíla, við skiptingar og annað. En nú keyrir fólk
svona bíla eins og hvern annan fólksbíl, allar skipt-
ingar og kúplingar eru fisléttar og það er ekkert stór-
vandamál að skipta um dekk. Þau eru nokkuð þung
en það þarf bara að kunna það og hafa lag til.“
Til að fá aukin ökuréttindi þarf einfaldlega að
sækja um í ökuskóla og velja hvort taka á próf fyrir
leigubíl, vörubíl eða hópbifreið. Umsækjandi þarf að
hafa almennt bifreiðastjórapróf og uppfylla aðrar
reglur. Nemandi getur hafið nám sex mánuðum áður
en réttindaaldri er náð. Réttindaaldur á vörubifreið
og vörubifreið með eftirvagn er 18 ár, á leigubifreið
20 ár og hópbifreið 21 ár. Læknisvottorð þarf að
fylgja umsókn um aukin ökuréttindi.
Ef öll prófin eru tekin þýðir það fimm vikna bók-
legt nám en ef ætlunin er að fá réttindi til að keyra
leigubíl tekur bóklega námið þrjár og hálfa viku. Síð-
an þarf að taka þrjá verklega tíma fyrir leigubíl, l'imm
fyrir vörubíl og fimm fyrir rútu. Hægt er að bæta við
sig eftirvagnaprófi en það tekur fimm verklega tíma.
Að lokum er tekið próf. Nánari upplýsingar um
meirapróf má fá á heimasíðunni bilprof.is.
Þarf að hafa bein í nefinu
segir Sigríður Jónsdótir leigubílstjóri
Sigríður Jónsdóttir hefur ekið leigubíl í tvo áratugi en
hún varð fyrsta konan til að aka leigubíl í fullu starfi.
„Eg vann við útkeyrslu hjá fyrirtæki þegar ég ákvað
að taka meiraprófið. Albr strákarnir sem unnu með
mér fóru á endurmenntunarnámskeið í sínu fagi, sem
var blikksmíði, og hækkuðu þá í launum svo ég
skellti mér bara líka á námskeið.
Þetta var árið 1978 og ég held að við höfum verið
þrjár konur á námskeiðinu. Bróðir eins framkvæmda-
stjórans ók leigubíl og vantaði afleysingamanneskju.
Hann komst að því að ég var með meirapróf og
þannig byrjaði þetta allt. Ég hélt svo áfram að vinna
við þetta og tel að ég hafi verið farsæl í starfi. Ég lít á
það sem stóran kost að ég ræð mínum vinnutíma sjálf
og starfið hefur að öllu leyti átt vel við mig.“
Sigríður hefur verið með eigið atvinnuleyfi síðan
1984. „Þegar ég byrjaði að keyra leigubíl voru konur
aðeins að vinna við afleysingar í stuttan tíma. Fyrstu
tvö árin eftir að ég fór að vinna við akstur leigubif-
reiðar var ég eina konan sem vann við þetta í fullu
starfi."
Sigríður segir það bæði kost og galla að hitta mik-
ið af fólki í vinnunni. „Ég mæli með þessu starfi fyr-
ir fólk sem er með bein í nefinu og getur unnið sjálf-
stætt. Fólk verður að vera sjálfstætt í þessu starfi, á-
kveðið og með heljarins mikla þolinmæði enda þarf
oft að bíða mikið. Þá þarf maður að kunna að sigla
milli skers og báru og lesa fólk rétt. Ef fólk lendir svo
í einhverjum vandræðum þarf að vinna rétt úr því.“
Hún gerir þó lítið úr því að leigubílaakstur geti verið
hættulegur konum. „Þetta starf er alveg jafn hættu-
legt fyrir karlmenn og konur.“ Sigríður samsinnir því
þó að starfið sé óútreiknanlegt. „Þú veist aldrei hvar
þú lendir. Þú veist kannski hvar þú byrjar að morgni
og hvar þú endar að kvöldi en tíminn þar á milli er
óskrifað blað.“