Vera


Vera - 01.06.2002, Qupperneq 46

Vera - 01.06.2002, Qupperneq 46
vera 46 KOPJUR A Auður Aðalsteinsdóttir yrir ekki svo löngu síðan þótti stórmerki- legt að sjá konu undir stýri á stórum trukk eða rútu. Nú þegar konur hafa í nokkurn tíma sótt í sig veðrið í hefðbundnum karla- störfum þykir það svo sem ekkert nýmæli lengur. Karlar eru þó enn í yfirgnæfandi meirihluta í störfum sem krefjast meiraprófs, eða aukinna öku- réttinda eins og það er nú kallað. Vera ræddi við nokkrar konur sem hafa unnið lengi við að keyra stóra bíla og komst að því að ekkert annað en hefðin aftrar konum frá slíkri vinnu. „Konum sem taka aukin ökuréttindi hefur verið að fjölga þótt það sé reyndar dálítið sveiflukennt. Það eru ekki mörg ár síðan engin kona kom í námið en nú hefur komið fyrir að í átján manna hóp séu sjö konur. Núna eru þrjár að læra hjá okkur en það kem- ur enn fýrir að engin kona er í tiópnum,“ segir Finn- bogi G. Sigurðsson í Ökuskólanum í Mjódd. „Per- sónulega vil ég hvetja konur til að taka prófið. Mín skoðun er sú að kvenfólk sé miklu ábyrgari bílstjór- ar. Stóru bílarnir eru ekkert karlavígi lengur. Þegar ég var að vinna við akstur þurfti krafta til að keyra stóra bíla, við skiptingar og annað. En nú keyrir fólk svona bíla eins og hvern annan fólksbíl, allar skipt- ingar og kúplingar eru fisléttar og það er ekkert stór- vandamál að skipta um dekk. Þau eru nokkuð þung en það þarf bara að kunna það og hafa lag til.“ Til að fá aukin ökuréttindi þarf einfaldlega að sækja um í ökuskóla og velja hvort taka á próf fyrir leigubíl, vörubíl eða hópbifreið. Umsækjandi þarf að hafa almennt bifreiðastjórapróf og uppfylla aðrar reglur. Nemandi getur hafið nám sex mánuðum áður en réttindaaldri er náð. Réttindaaldur á vörubifreið og vörubifreið með eftirvagn er 18 ár, á leigubifreið 20 ár og hópbifreið 21 ár. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókn um aukin ökuréttindi. Ef öll prófin eru tekin þýðir það fimm vikna bók- legt nám en ef ætlunin er að fá réttindi til að keyra leigubíl tekur bóklega námið þrjár og hálfa viku. Síð- an þarf að taka þrjá verklega tíma fyrir leigubíl, l'imm fyrir vörubíl og fimm fyrir rútu. Hægt er að bæta við sig eftirvagnaprófi en það tekur fimm verklega tíma. Að lokum er tekið próf. Nánari upplýsingar um meirapróf má fá á heimasíðunni bilprof.is. Þarf að hafa bein í nefinu segir Sigríður Jónsdótir leigubílstjóri Sigríður Jónsdóttir hefur ekið leigubíl í tvo áratugi en hún varð fyrsta konan til að aka leigubíl í fullu starfi. „Eg vann við útkeyrslu hjá fyrirtæki þegar ég ákvað að taka meiraprófið. Albr strákarnir sem unnu með mér fóru á endurmenntunarnámskeið í sínu fagi, sem var blikksmíði, og hækkuðu þá í launum svo ég skellti mér bara líka á námskeið. Þetta var árið 1978 og ég held að við höfum verið þrjár konur á námskeiðinu. Bróðir eins framkvæmda- stjórans ók leigubíl og vantaði afleysingamanneskju. Hann komst að því að ég var með meirapróf og þannig byrjaði þetta allt. Ég hélt svo áfram að vinna við þetta og tel að ég hafi verið farsæl í starfi. Ég lít á það sem stóran kost að ég ræð mínum vinnutíma sjálf og starfið hefur að öllu leyti átt vel við mig.“ Sigríður hefur verið með eigið atvinnuleyfi síðan 1984. „Þegar ég byrjaði að keyra leigubíl voru konur aðeins að vinna við afleysingar í stuttan tíma. Fyrstu tvö árin eftir að ég fór að vinna við akstur leigubif- reiðar var ég eina konan sem vann við þetta í fullu starfi." Sigríður segir það bæði kost og galla að hitta mik- ið af fólki í vinnunni. „Ég mæli með þessu starfi fyr- ir fólk sem er með bein í nefinu og getur unnið sjálf- stætt. Fólk verður að vera sjálfstætt í þessu starfi, á- kveðið og með heljarins mikla þolinmæði enda þarf oft að bíða mikið. Þá þarf maður að kunna að sigla milli skers og báru og lesa fólk rétt. Ef fólk lendir svo í einhverjum vandræðum þarf að vinna rétt úr því.“ Hún gerir þó lítið úr því að leigubílaakstur geti verið hættulegur konum. „Þetta starf er alveg jafn hættu- legt fyrir karlmenn og konur.“ Sigríður samsinnir því þó að starfið sé óútreiknanlegt. „Þú veist aldrei hvar þú lendir. Þú veist kannski hvar þú byrjar að morgni og hvar þú endar að kvöldi en tíminn þar á milli er óskrifað blað.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.