Vera - 01.06.2002, Síða 50
vera
Hvernig væri að velja
hiúkrun?
Vilt þú ferðast? Viltu hjálpa? Vilt þú ráða?
Endalausir möguleikar! Þú getur orðið meist-
ari! Þessi slagorð hafa mætt ungu fólki í
framhaldsskólum undanfarið í kynningarátaki
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þar eru
hinar fjölbreytilegu hliðar hjúkrunarstarfsins
kynntar í þeim tilgangi að fjölga nemendum í
„Ef vel ætti að vera þyrftu um 116 hjúkrunar-
fræðingar að útskrifast á ári,“ segir Herdís, „en
undanfarin ár hefur umsóknum um nám í hjúkrunar-
fræði farið fækkandi og s.l. ár luku 75 nemendur
fyrsta námsári við Háskóla íslands og við Háskólann
á Akureyri. Þetta eru alvarlegar staðreyndir og því
ákvað félagið að fara í kynningar og ímyndarátak til
að vekja áhuga ungs fólks á hjúkrunarnáminu og
þeim fjölbreyttu störfum sem bjóðast að námi loknu.
Það virðist vera í gangi ákveðin staðalmynd af
hjúkrunarstarfinu og henni þurfum við að breyta. í
hjúkrunarstarfinu gefast fjölbreytt tækifæri fyrir
klára einstaklinga. Stöður eru fjölmargar og á mis-
munandi stigum innan heilbrigðisstofnana og
hjúkrunarfræðingar eru í einstakri aðstöðu til að hafa
áhrif á þróun heilbrigðismála í landinu. Enda hafa
þeir gert það óspart á undanförnum árum.
Hjúkrunarnámið er líka mjög víðfemt og undirbýr
fólk undir ýmis önnur störf en hefðbundin
hjúkrunarstörf, eins og kemur fram á heimasíðu
fólagsins.
hjúkrunarfræði því hætta er á að skortur verði
á hjúkrunarfræðingum í framtíðinni, ekki bara
hér á landi heldur víða erlendis, en nú þegar
vantar 100 hjúkrunarfæðinga á Landspítalann.
Herdís Sveinsdóttir formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga sagði Veru nánar
frá málinu.
Hluti af kynningarátakinu var útgáfa á fimm
tegundum af póstkortum sem vísa á myndrænan hátt
til möguleika hjúkrunarstarfsins - til hjálparstarfs,
stjórnunarstarfs, til möguleika á alþjóðlegunr
vettvangi með tilvísun til ferðalaga, til meistara-
gráðunnar sem hjúkrunarfæðingar hafa í auknum
mæli náð sór í og til fjölbreytileikans með því að vísa
50