Vera - 01.06.2002, Blaðsíða 52
tónlist
Heiða Eiríksdóttir
Lauryn Hill
MTV Unplugged 2.0
Lauryn Hill, fyrrum söngkona
hljómsveitarinnar Fugees, er hér á
ferð með ótrúlega sérstæða plötu.
Þetta er „önplögged", þ.e.a.s. óraf-
mögnuð tónleikaplata en þrátt fyr-
ir það er hreint rafmögnuð stemn-
ing í salnum. Hún syngur og spil-
ar á kassagítar og lögin eru í brot-
hættum útgáfum. Hver nóta heyr-
ist í gítarspili og rödd hennar, hún
hefur ekkert að fela sig á bak við. Því er greinilegt
þegar hún reynir á rödd sína og hún brestur öðru
hverju en eins og Lauryn segir sjálf er röddin sí-
breytileg. Suma daga hljómar hún svona og er ekkert
verri til að flytja boðskapinn þegar hún er ekki
flauelismjúk, heldur dálítið hás.
Lögin sem flest eru splunkuný eru fín en enn
skemmtilegra er að heyra hana tala milli laga. Hún
hefur boðskap handa fólkinu: Að vera það sjálft, að
hætta öllu falsi, að vera ekki hrætt við sitt innra eðli
því maður er hvort eð er bara bestur maður sjálfur.
Hún talar um raunveruleikann og alvöru hluti og
virðist vera pínu beisk út í tónlistarbransann sem
hún tók þátt í lengi áður en hún snéri við blaðinu og
fór að vera hún sjálf. Þetta spjall hennar hefur rosa-
lega góð áhrif á mann því hún er afslöppuð og bæði
fyndin og orðheppin en líka mjög tilfinninganæm.
Þetta er einhvern veginn eins og að fara í sálfræði-
tíma þar sem sálfræðingurinn er líka besti vinur
þinn. Það væri svo auðvelt að eyðileggja svona spjall
og gera það væmið og tilgerðarlegt en það gengur
fullkomlega upp hjá henni. Hún er í svipuðum fíling
og Páll Óskar er í Dr. Love-þáttunum sínum, nema
hún grefur dýpra í sálarlíf fólks og er heimspekilegri.
Hún viðurkennir að hún er í rusli og á við alls kyns
vandamál að stríða sem eru eins hversdagsleg og hjá
öllum hinum í heiminum.
Þetta er umræða um heiminn og fólkið í honum
og þroskaferli mannsins og í bland syngur hún svo
lögin sín. Umræðan er aðal, lögin eru svo aukabónus.
Váááá, rosalega flott stelpa, mig langar að eiga
Lauryn Hill sem vinkonu!
Point
Cornelius
Cornelius, eða Keigo Oyamada, er
japanskur tón- og fjöllistamaður sem
hefur fengið töluverða athygli víðs
vegar í heiminum á síðustu árum. Hann er fæddur
1969 í Tókíó og hefur verið að gefa út plötur síðan
1993 en fyrsta útgáfa hans á alþjóðagrundvelli var
árið 1998. Hann stofnaði í upphafi ferils síns útgáfu-
fyrirtækið Trattoria en hóf síðan samstarf við fyrir-
tækið Matador Records. Það voru þeir sem gáfu árið
1998 út plötuna Fantasma, sem vakti verulega at-
hygli á honum. Þar var að finna heimasmíðaða sam-
suðutónlist úr ólíkum áttum.
Cornelius er upphaflega rokkgítarleikari og því
eru eitthvað af rokkuðum gítarfrösum sem gætu sómt
sér vef hjá hávaðasömum sveitum eins og My Bioody
Valentine, en svo notast hann líka við sampler og
tölvu og tengir þetta svo allt saman við ljúfa og
melódíska stemningu eins og finna má hjé Bítlunum
og Beach Boys. A nýju plötunni hans, Point, fer hann
um enn víðari völl en áður því þar gætir áhrifa frá
heimstónlist í ofanálag við allt hitt. Við fyrstu hlust-
un finnst manni ef til vill eins og Point sé ómarkviss-
ari en fyrri plötur hans en í raun og veru er hún bara
ekki eins poppuð en alveg jafn áhugaverð. Hann nær
með tilraunagleði sinni að tengja saman tónlistar-
stefnur sem maður hélt að ekki væri hægt að tengja
saman og svo er bónus
hve skemmtilegt er að
heyra hann syngja með á
japönsku.
Þetta er diskur fyrir
fólk sem vill láta koma
sér á óvart, fólk sem vill
prófa eitthvað nýtt, fólk
sem neitar því alfarið að
allt hafi verið reynt í
rokkmúsik en það er ein-
mitt útgangspunkturinn
hjá Corneliusi. Það er allt
hægt ennþá!
POINI
byCORNEUUS
fiom Natomeguro
to Evofywhoro
4529-
comeHus-sound.com
Vertu áskrifandi að tímariti sem fjallar
um málin á líflegan og opinskáan hátt!
Glæsilegt
áskríftartilboð!
Nýir áskrifendur fá: Frábæra bókagjöf
frá Sölku bókaforlagi
2 fyrir 1 í heilsulind
Bláa Lónsins
Geísladiskinn StelpUi"0
eða
Þrjú eldri tölublöð VerU
kk
Kynntu þér málið á
www.vera.is
Tímaritið Vera - skiptir málí'
S: 553 1850 • askrift@vera