Vera


Vera - 01.06.2002, Side 60

Vera - 01.06.2002, Side 60
vera kvikmyndir Úlfhildur Dagsdóttir 60 Prinsessur í _ stjörnustríðum Samkvæmt Richard Keller Simon hafa Stjörnustríðsmyndir George Lucas tekið við af Biblíunni sem hin mið(lim?)læga goðsögn vestrænna þjóða. Hann talar út frá reynslu sinni sem bók- menntafræðingur og kennari og segir að þrátt fyrir að banda- rískir nemendur séu oft illa að sér í helstu sögnum kristinnar trúar þá komi hann aldrei að tómum kofunum þegar Star Wars er nefnd. Stuttu áður en nýjasta myndin var frumsýnd, Attack of the Clones (2002), var gerð snaggaraleg sjón- varpskönnun þarsem bandarískir vegfarendur af öllum aldri og kynj- um voru beðnir að svara spurningum um samtíma sinn. Þeim voru sýndar myndir af stjórn- málamönnum, ráðherrum og beðnir að bera kennsl á fleygar setningar úr bandarískri sögu. Allir féllu á því prófi, en þegar myndir af persónum Star Wars og setningar úr myndinni voru bornar undir sama fólk kvað við allt annan tón, jájá, þetta voru þau Yoda, Leia og Svarthöfði og þau höfðu sagt hitt og þetta. Það er því Ijóst að myndir George Lucas eru líklega með áhrifameiri menningarfyrirbærum samtímans og því full ástæða til að gefa þeim gætur. Sköpunarsagan er á þessa leið: Árið 1977 birtist eitthvað alveg nýtt á kvikmyndatjaldinu: mynda- taka, tæknibrellur og ævintýri úti í geimi - Star Wars skar sig úr hvað varðaði vönduð vinnubrögð og sann- færandi heimasköpun sem átti eftir að gerbreyta yfirbragði vísinda- mynda. Vissulega eru áhrif 2001 Stanley Kubricks áberandi, en í stað heimspekilegra langloka kom hraðskreytt og fyndið ævintýri man- nað/dýrað glæstum hetjum og kómískum vélmennum. Lucas fylgdi myndinni eftir með tveimur framhöldum, The Empire Strikes Back (1980) og Return of the fedi (1983). Allar segja myndirnir frá stjörnustríði sem gerist í stjörnukerfi langt í burtu. Hið illa hefur tekið yfir fremur friðsamt samfélag pláneta, en enn finnast hugrakkir andspyrnu- menn og baráttan stendur áfram. í myndunum er stöðugt vísað til atburðanna sem gerðust áður og var alltaf greinilegt að þar lá heil saga að baki. Og nú undir lok tíunda áratugarins, 22 árum eftir að Star Wars leit ljós kvikmyndahússins, tók Lucas upp þráðinn og rakti sig aftur á bak, með nýrri trílógíu sem hófst með The Phantom Menace (1999) en titillinn vísar til þess að eitthvað er rotið í ríki dana, en einginn veit hvað - því þau hafa ekki séð hinar myndirnar. Líklega vegna þess að þau búa í öðru stjörnukerfi. Hin tvö andlit hetjunnar Star Wars myndirnar fylgja ákaflega hefðbundnu hetjugoðsagnamynstri. Aðalhetja eldri trílógíunnar, Logi geimgengill, er af óljósum uppruna en reynist síðan konungborinn, svona ekki ólíkt goðsagnahetjum eins og Herkúlesi sem var sonur Seifs; hann hlýtur hjálp frá yfirnátt- úrulegum öflum, í líki dýrs eða furðuverunnar Yoda, líkt og til dæmis Sigurður Fáfnisbani lærði tungumál fugla og var hjálpað af þeim. Logi hlýtur prinsessuna að launum, en eftir stutt sifjaspellst samband kemur í ljós að hún er syst- ir hans og hann lætur hana eftir sínum trausta félaga Han Solo - en það kemur út á eitt því sá er samkvæmt formúlunni í raun aðeins önnur hlið hetjunnar, sú skugga- legri. Han Solo er dæmi um hetjuna sem ævintýramann og ílagara, sem að sjálfsögðu er taminn þegar hann fellur fyrir prinsessunni sem hann bjargar, nokkrum sinnum. Logi er hinsvegar hin hefðbundna, bláeyga prins- eða dýrðlings-hetja sem velur skírlífi að hætti Jedi-riddaranna sem eru einskonar múnkar. Að þessu leyti minnir hann á eina af frægustu kristnu hetjum allra tíma, heilagan Georg, sem einnig valdi skírlífi og hafnaði því að giftast prinsessunni sem hann barg frá drekanum góða. Þetta mýtíska munstur er vand- lega útfært í eldri myndunum sem meðal annars þiggja styrk sinn fra þessum tveimur andlitum hetjunn- ar. Og með fimlega samsettum ævin- týrum, skemmtilegum aukaper- sónum og ekki síst tæknibrellum sem eru þarna nýttar á einstakan hátt er sköpuð nútímagoðsaga með nútímalegum en samt tímalausum hetjum. Nútímauppfærslan kemur meðal annars fram í því að hinir klassísku aðstoðarmenn, sem samkvæmt formúlunni eru iðulega dýr, er hér breytt í vélmenni, sem halda samt ákveðnum dýrslegum einkennum, en litla vélmennið R2- D2 talar eigið tungumál. Kvenhetjan Lea prinsessa Eins og ljóst má vera er ekki mikið pláss fyrir virk kvenhlutverk í þes- sari formúlu og því má væntanlega bara þakka fyrir hvað Leia er þó mikill töffari - sérstaklega ef miðað er við tímann sem myndirnar eru gerðar á. í fyrstu myndinni rekst Logi geimgengill á örvæntingarfulla hjálparbeiðni fallegrar konu. Beiðnin er geymd á myndrænu formi í minni vélmennis og þrátt fyrir að myndgæðin sóu takmörkuð þá heillast Logi af konunni og rýkur af stað til hjálpar. Mikið varð hann svo hissa þegar hann uppgötvaði að hún var alveg ótrúlega dugleg við að hjálpa sér sjálf (reyndar kom einnig í ljós að hún var systir hans, en það er annað mál). Lea prinsessa er aðal (og reyndar eina) kvenpersóna eldri

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.