Vera - 01.06.2002, Síða 60
vera
kvikmyndir
Úlfhildur Dagsdóttir
60
Prinsessur í _
stjörnustríðum
Samkvæmt Richard Keller Simon
hafa Stjörnustríðsmyndir George
Lucas tekið við af Biblíunni sem
hin mið(lim?)læga goðsögn
vestrænna þjóða. Hann talar út
frá reynslu sinni sem bók-
menntafræðingur og kennari og
segir að þrátt fyrir að banda-
rískir nemendur séu oft illa að
sér í helstu sögnum kristinnar
trúar þá komi hann aldrei að
tómum kofunum þegar Star
Wars er nefnd.
Stuttu áður en nýjasta myndin var
frumsýnd, Attack of the Clones
(2002), var gerð snaggaraleg sjón-
varpskönnun þarsem bandarískir
vegfarendur af öllum aldri og kynj-
um voru beðnir að svara
spurningum um samtíma sinn. Þeim
voru sýndar myndir af stjórn-
málamönnum, ráðherrum og beðnir
að bera kennsl á fleygar setningar úr
bandarískri sögu. Allir féllu á því
prófi, en þegar myndir af persónum
Star Wars og setningar úr myndinni
voru bornar undir sama fólk kvað
við allt annan tón, jájá, þetta voru
þau Yoda, Leia og Svarthöfði og þau
höfðu sagt hitt og þetta.
Það er því Ijóst að myndir George
Lucas eru líklega með áhrifameiri
menningarfyrirbærum samtímans og
því full ástæða til að gefa þeim
gætur. Sköpunarsagan er á þessa
leið: Árið 1977 birtist eitthvað alveg
nýtt á kvikmyndatjaldinu: mynda-
taka, tæknibrellur og ævintýri úti í
geimi - Star Wars skar sig úr hvað
varðaði vönduð vinnubrögð og sann-
færandi heimasköpun sem átti eftir
að gerbreyta yfirbragði vísinda-
mynda. Vissulega eru áhrif 2001
Stanley Kubricks áberandi, en í stað
heimspekilegra langloka kom
hraðskreytt og fyndið ævintýri man-
nað/dýrað glæstum hetjum og
kómískum vélmennum. Lucas fylgdi
myndinni eftir með tveimur
framhöldum, The Empire Strikes
Back (1980) og Return of the fedi
(1983). Allar segja myndirnir frá
stjörnustríði sem gerist í stjörnukerfi
langt í burtu. Hið illa hefur tekið yfir
fremur friðsamt samfélag pláneta, en
enn finnast hugrakkir andspyrnu-
menn og baráttan stendur áfram. í
myndunum er stöðugt vísað til
atburðanna sem gerðust áður og var
alltaf greinilegt að þar lá heil saga að
baki. Og nú undir lok tíunda
áratugarins, 22 árum eftir að Star
Wars leit ljós kvikmyndahússins,
tók Lucas upp þráðinn og rakti sig
aftur á bak, með nýrri trílógíu sem
hófst með The Phantom Menace
(1999) en titillinn vísar til þess að
eitthvað er rotið í ríki dana, en
einginn veit hvað - því þau hafa ekki
séð hinar myndirnar. Líklega vegna
þess að þau búa í öðru stjörnukerfi.
Hin tvö andlit hetjunnar
Star Wars myndirnar fylgja ákaflega
hefðbundnu hetjugoðsagnamynstri.
Aðalhetja eldri trílógíunnar, Logi
geimgengill, er af óljósum uppruna
en reynist síðan konungborinn,
svona ekki ólíkt goðsagnahetjum
eins og Herkúlesi sem var sonur
Seifs; hann hlýtur hjálp frá yfirnátt-
úrulegum öflum, í líki dýrs eða
furðuverunnar Yoda, líkt og til
dæmis Sigurður Fáfnisbani lærði
tungumál fugla og var hjálpað af
þeim. Logi hlýtur prinsessuna að
launum, en eftir stutt sifjaspellst
samband kemur í ljós að hún er syst-
ir hans og hann lætur hana eftir
sínum trausta félaga Han Solo - en
það kemur út á eitt því sá er
samkvæmt formúlunni í raun aðeins
önnur hlið hetjunnar, sú skugga-
legri. Han Solo er dæmi um hetjuna
sem ævintýramann og ílagara, sem
að sjálfsögðu er taminn þegar hann
fellur fyrir prinsessunni sem hann
bjargar, nokkrum sinnum. Logi er
hinsvegar hin hefðbundna, bláeyga
prins- eða dýrðlings-hetja sem velur
skírlífi að hætti Jedi-riddaranna sem
eru einskonar múnkar. Að þessu
leyti minnir hann á eina af frægustu
kristnu hetjum allra tíma, heilagan
Georg, sem einnig valdi skírlífi og
hafnaði því að giftast prinsessunni
sem hann barg frá drekanum góða.
Þetta mýtíska munstur er vand-
lega útfært í eldri myndunum sem
meðal annars þiggja styrk sinn fra
þessum tveimur andlitum hetjunn-
ar. Og með fimlega samsettum ævin-
týrum, skemmtilegum aukaper-
sónum og ekki síst tæknibrellum
sem eru þarna nýttar á einstakan
hátt er sköpuð nútímagoðsaga með
nútímalegum en samt tímalausum
hetjum. Nútímauppfærslan kemur
meðal annars fram í því að hinir
klassísku aðstoðarmenn, sem
samkvæmt formúlunni eru iðulega
dýr, er hér breytt í vélmenni, sem
halda samt ákveðnum dýrslegum
einkennum, en litla vélmennið R2-
D2 talar eigið tungumál.
Kvenhetjan Lea prinsessa
Eins og ljóst má vera er ekki mikið
pláss fyrir virk kvenhlutverk í þes-
sari formúlu og því má væntanlega
bara þakka fyrir hvað Leia er þó
mikill töffari - sérstaklega ef miðað
er við tímann sem myndirnar eru
gerðar á. í fyrstu myndinni rekst
Logi geimgengill á örvæntingarfulla
hjálparbeiðni fallegrar konu.
Beiðnin er geymd á myndrænu
formi í minni vélmennis og þrátt
fyrir að myndgæðin sóu takmörkuð
þá heillast Logi af konunni og rýkur
af stað til hjálpar. Mikið varð hann
svo hissa þegar hann uppgötvaði að
hún var alveg ótrúlega dugleg við að
hjálpa sér sjálf (reyndar kom einnig í
ljós að hún var systir hans, en það er
annað mál). Lea prinsessa er aðal (og
reyndar eina) kvenpersóna eldri