Vera


Vera - 01.06.2002, Page 61

Vera - 01.06.2002, Page 61
stjörnustríðsmyndanna og hefur löngum þótt bara nokkuð hressileg kvenhetja, og allsekki svona dæmigert ‘damsel in distress’. Jú, það þarf nokkrum sinnum að bjarga henni úr margvíslegum vandræðum, í annari myndinni er hún orðin að ambátt hjá gríðarstórum snigli og þrátt fyrir að hún hafi birst þar í afskaplega fínu gullbíkíníi sem lét lítið fyrir sér fara, þá gat hún enn sparkað frá sér (hver samskipti hennar voru við snigilinn eru svo annað, annað málið sem Lucas hliðrar sér hjá að fjalla um). Við vitum nú af reynslu að kvenkyns hetjur eru miklu trúverðugri ef þær eru léttklæddar - eða eru allir sést- vallabúningarnir kannski til þess fallnir að dreifa athygli skeptískra frá þeirri staðreynd að kona er að haga sér á karlmannlegan hátt? hmm. Nýja kvenhetjan Padmé Ný kvenhetja er svo kynnt til sögunnar í nýju myndunum tveimur. I The Phantom Menance er reynt eftir mætti að endurskapa hinn mýtíska ævintýraljóma sem fylgdi hinum myndunum. Afram er það hetjumynstrið sem liggur myndinni til grundvallar, en nú er fyrirmyndin sótt til kristni. Ævi Jesú fellur sór- lega vel að hetjumynstrinu, en í goðsöguútgáfunni er algengt að lietj- an deyi fórnardauða. Þeir sem séð hafa fyrri myndirnar vita að drengurinn Anakin er verðandi ill- mennið Svartlröfði sem einmitt á endanum fórnar sér fyrir son sinn Loga eftir að hafa mistekist að snúa honum til verri vegar. Núnú en þarna birtist sumsé hin tilvonandi móðir Loga og Leiu, Padmé Amidala. Alveg eins og dóttir henn- ar Leia er Padmá heilmikil skutia, keisaraynja yfir afskaplega róman- tískri og fallegri plánetu sem er í hremmingum - já enn þarf aðalkven- hetjan hjálp í baráttu sinni við hið illa. Þrátt fyrir ungan aldur er hún, líkt og Leia prinsessa reyndar, sýnd sem klár og flínk í þeirri pólitísku baráttu sem hún neyðist til að taka þátt í og er þetta enn undirstrikað í næstu mynd á eftir, Attack of the Clones, en þar er hún líka orðin heilmikil bardagapía - alveg eins og Leia í gömlu myndunum... En þrátt fyrir alla pólitíska kænsku þá fellur Padmé fyrir hinum unga Anakin og er því, líkt og Eva, einskonar rót fallsins, því Anakin (líkt og Logi síðar) er Jedi-riddari og á því að lifa skírlífi. Með því er ljóst að kvenhetj- an er komin í hið hefðbundna hlutverk tálkonunnar, sem ég bar- asta get ekki gert upp við mig hvort sé verra eða betra en hin ofurgóða Lea- sem var eiginlega alltaf dálítið of heilög. Það er þó best að fara varlega í allar yfirlýsingar urn stöðu Padmé, því það á enn eftir að koma í ljós hver er rót þess að Anakin gengst undir hið illa. Að vera eða vera ekki hagsýn? Kauptu ódýrasta bensínið

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.