Vera


Vera - 01.06.2002, Síða 63

Vera - 01.06.2002, Síða 63
margtelja suma þessara manna því þeir eru með slóð á eftir sér,“ segir Rúna sem er svartklædd í dag sem er á einhvern hátt táknrænt í þessu húsi endur- upprisu. Andstætt því sem lengi hefur verið álitið eru það ekki bara kvenmenn sem eru fórnarlömb kynferðisafbrotamanna. „Við virðumst ekki hafa nýst körlum jafn vel og konum hingað til. Fyrir því eru sennilega ýmsar ástæður. Fyrst og fremst sú að það er erfiðara fýrir karla að leita sér hjálpar vegna þessara mála, þó er talið að einn fjórði liluti þeirra barna sem eru beitt kynferðislegu ofbeldi séu strák- ar. Það er því alveg ljóst að það koma ekki allir hingað sem þurfa á okkur að halda. Hluti af skýr- ingunni getur verið sá útbreiddi misskilningur að við séum hér konur fyrir konur. En karlar eru hjart- anlega velkomnir og þeim gengur vel þegar þeir koma sér hérna yfir þröskuldinn, þennan háa þröskuld." Stígamót ákváðu nýverið að bæta þjón- ustuna við karla og fyrsti sjálfshjálparhópurinn fyr- ir karla hefur nýlokið störfum. Samkvæmt Rúnu voru karlarn- ir sem tóku þátt í hópnum him- insælir með árangurinn. Forsaga Stígamóta er sú að Kvennaráðgjöfin og Kvennaathvarfið urðu til snemma á níunda áratug síð- ustu aldar. Þar varð til vett- vangur fyrir konur sem ræddu saman í umhverfi þar sem þær treystu hver annarri og gerðu hið persónulega pólitískt. í þessum umræðum fóru að slæðast með sögur og óhugnaður sem enga hafði órað fyrir og til að byrja með lokuðu konur eyrunum fyrir þessu en að því kom að það varð að taka þetta alvarlega. Starfskon- ur Kvennaathvarfsins skrifuðu því fyrstu fjölmiðla- greinina á íslandi, í tímaritið Veru, þar sem bent var á að kynferðislegt ofbeldi gæti hugsanlega verið út- breitt vandamál hér á landi. Upp frá því tóku fé- lagsráðgjafar, félagsráðgjafanemar og Kvennaráð- g]öfin sig til og auglýstu opnar símalínur tvö kvöld. Símarnir stoppuðu ekki þessi kvöld og eftir það varð ekki aftur snúið. Það var augljóst að kynferð- íslegt ofbeldi var vandamál hér rétt eins og annars staðar og því varð fljótlega til Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Þann 8. mars 1989 voru Samtök kvenna gegn kynferðisofbeldi stofnuð og nákvæm- iega ári seinna hóf Stígamót, staðurinn þar sem stíg- ar mætast, starfsemi sína. Rúna tekur þó fram að Stígamót ætluðu aldrei að leysa allan þann vanda sem skapaðist vegna kyn- ferðisbrota og að því hefði verið fagnað mjög þegar hJeyðarmóttaka vegna nauðgunar var opnuð árið 1993 og sömuleiðis þegar Barnahús var opnað 1998 V(:gna kynferðisofbeldis gagnvart börnum. „Við héldum þá kannski að við gætuin einhvern tímann lokað Stígamótum en það höfum við ekki getað. Astæðan er sú að fæst fólk leitar sér hjálpar strax ehir að það hefur verið beitt ofbeldi. Flest reyna að grafa og gleyma og koma svo hingað árum eða ára- tngum eftir að ofbeldið átti sér stað.“ Pegar viðtöl í Stígamótum eru tekin saman kemur í ljós að það er fernt sem yfir 80% viðmælenda hafa upplifað. Þessir fjórir þættir eru skömrn, sektarkennd, léleg sjálfsmynd og þunglyndi. Einnig tala tveir þriðju hlutar viðmæl- enda um svokallaðar svipmyndir eða flash-back sem er eitt einkenni áfallastreitu sem geðlæknar skilgreina sem afleiðingar alvarlegra áfalla. Svip- myndir eru myndir af óþægilegum minningum úr fortíðinni sem koma upp í hugann í tíma og ótíma. Um það bil 60% þeirra sem leita til Stígamóta tala um erfitt kynlíf og „það er eitthvað sem ég get aldrei vanist,“ segir Rúna. „Ég verð alltaf reið yfir því að fólkið sem hingað kemur hefur verið rænt því sem á að vera fallegast og best hér í lífinu." Stígamót eru hins vegar ekki meðferðarstöð í hefðbundnum skilningi þess orðs. Þetta eru óform- leg grasrótarsamtök þar sem enginn er æðri öðrum og það er unnið eftir sjálfs- hjálparviðmiðinu. Fólkkemur því til Stígamóta til að hjálpa sér sjálft og starfskonurnar reyna að vera þeirn til aðstoðar við það, með þeirri þekkingu og reynslu sem þær hafa. Hjá Stígamótum er litið svo á að þau sem leita þangað séu „sér- fræðingarnir", enginn þekkir betur afleiðingar kynferðisof- beldis en þau sem hafa verið beitt því. Við ráðningu starfs- kvenna er meðal annars tekið mið af því hvort þær hafi sjálfar verið beittar kyn- ferðisofbeldi enda tryggir menntun ein og sér ekki góðan skilning á kynferðisofbeldi. Þegar fólk leitar til Stígamóta kemur það fyrst í einkaviðtöl og síðan stendur því til boða að taka þátt í sjálfshjálparhópi með öðrum sem annað hvort hafa verið beitt sifja- spelli eða hefur verið nauðgað. Einstaklingsbund- inn stuðningur við að ræða ofbeldið, rifja það upp og setja í orð eru fyrstu skrefin í þá átt að ná tökum á áhrifum ofbeldisins á sjálfsmynd og sjálfsvirðingu þeirra sem fyrir því verða. Þau sem leita til Stíga- móta ráða sjálf ferðinni, hve mikinn stuðning þau vilja og í hve langan tíma. Einnig geta aðstandend- ur fengið stuðning og ráðgjöf á Stígamótum, óski þeir þess. Grundvallarreglan í öllu starfi Stígamóta er að taka ekki ráðin af þeim sem þangað leita. Talið berst að vændi á Islandi og Rúna segir að það sé tvímælalaust stundað hór og hafi lengi verið gert. Stígamót leggur sitt að mörkum til að aðstoða þær stúlkur sem leiðst hafa út í vændi og þann 8. mars síðastliðinn „réðumst við í ansi víðtækt verkefni, annars vegar til að bæta þjónustu okkar við fólk í kynlífsiðnaði og hins veg- ar með vitundarvakningu til almennings um vænd- isiðnaðinn á íslandi. Við opnuðum til dæmis síma- línu fyrir fólk í kynlífsiðnaði, fyrst og ífemst til að undirstrika að Stígamót séu líka til fyrir þann hóp.“ Einnig fóru Stígamót af stað með auglýsingaherferð sem sýnir konur innpakkaðar rétt eins og kjúklinga- Fernt hafa yfir 80% viðmælenda upplifað. Þessir fjórir þættir eru skömm, sektarkennd, léleg sjálfsmynd og þunglyndi.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.