Vera - 01.06.2002, Page 65
Sprengikrafturinn í því að
láta sér líða betur liggur í
sjálfshjálparhópunum.
kaffistofunni og ósköpumst yfir öllu því hræðilega
sem kemur fyrir fólk, við höngum á því hvernig
hægt er að láta sér líða betur og ná stjórn á lífi sínu.
Það er það sem þetta snýst allt um.“
Nýlega hófst eins konar gæðamat á starfi Stíga-
móta sem er framkvæmt með spurningalista sem er
fýlltur út af þeim sem þangað leita. Fyrstu niður-
stöður eru sláandi góðar. „Starfskonurnar hafa
markvisst verið að leggja nýjar áherslur í hug-
myndafræðinni. Okkur finnst svo órökrótt að í 1800
einkaviðtölum árið 2001 erum við að eyða stórum
hluta þess tíma í að segja konum að þær þurfi ekki
að skammast sín. Að þær hafi ekki gert neitt af sér
og séu ekki annars flokks fólk. Og að þær séu ekki
verðfelldar þó einhver hafi beitt þær ofbeldi."
Rúna segir að ástæðan fyrir því að konum líði
svona sé meðal annars sú að þær eru enn þá að fá
þessi skilaboð alls staðar að; að þær sem fari ekki
varlega séu sekar. Það er stöðugt verið að tala til
stúlkna og kvenna um að passa sig. Þess vegna
finna þær fyrir þessum tilfinningum. Ofbeldið hef-
ur þrifist í skjóli þess að konur hafa sjálfar verið
gerðar ábyrgar fyrir því, ábyrgar fyrir leyndarmáli
og að segja ekki frá.
„Það er sjaldan talað um hina raunverulegu
vinnuveitendur Stígamóta, þeir koma aldrei hér
upp tröppurnar. Vinnuveitendur okkar eru hér úti
í samfélaginu að lifa sínu lífi eins og ekkert só. Þó
að við höfum skráð 4800 kynferðisbrotamenn hjá
okkur þá hafa væntanlega innan við hundrað þeirra
verið dæmdir. Allir hinir ganga hér um mitt á með-
al okkar og fáir vita um ofbeldisverk þeirra nema
þau sem fyrir þeim verða og við hjá Stígamótum.
Okkur finnst orðið mjög brýnt að draga fram í dags-
ljósið þessa hlið ofbeldisins, hverjir bera ábyrgðina
og hverjir það eru sem ákveða að meiða einhvern.
Við erum stöðugt að tala í hálfsannleika þegar við
tölum um ofbeldið, þau sem verða fyrir því og
hverjar afleiðingarnar sóu án þess að tala um þá
sem bera ábyrgðina." Rúna segir enn fremur að
Stígamótakonur sóu alltaf beðnar um að tala við
stelpur um að passa sig og drekka ekki of mikið.
Þetta fá stelpur inn með móðurmjólkinni. En það
eru aldrei uppi kröfur urn að tala við stráka um að
vera ábyrga í kynlífi og sýna hinu kyninu virðingu
°g ást. Því hvernig sem stelpur haga sér þá gefur
það engum rétt til að nýta sór ástand þeirra. Ef
stúlku er nauðgað þá þýðir það að einhver hafi gert
henni eitthvað sem hún vildi ekki sjálf, annars væri
það ekki nauðgun. Að mati Rúnu er kominn tími
til að tala við karlmenn og stráka allt frá leikskóla-
aldri og leggja áherslu á þessi heilbrigðu samskipti.
En til að þetta gangi upp þurfa karlar að rísa upp og
afneita þessum þætti karlmenningarinnar sem er
ofbeldi.
Blómaskreytinganámskeið
/ sveitasælunni, 23 km.
frá miðbæ Reykjavíkur
• Skreytingar
• Brúðarskreytingar
• Jarðarfaraskreytingar
• Samsetning blómavanda
Uffe Balslev, blómaskreytingameistari
Unnið úr rætkuðu
og náttúrulegu efni.
Námskeið 22. - 26. júlí
Sérnámskeið fyrir hópa,
saumaklúbba og vinnustaði.
Skráningar og upplýsingar í síma 555 3932 eða 897 1876
lestrar
EÐ
E PELZER
Waris Dirie
EYÐIMERKURBLÓMIÐ
ANNA VAl OlMAK.SUOl 11K
lcggöu rækt
við sjálfan þig
Anna Valdimarsdottir
TARSAGA
Viqdís Grímsdóttir
Z ÁSTARSAGA
FOWL
- E o i n G o l r tn.
Dave Pelzer
HANN VAR KALLAÐUR „ÞETTA
Þórunn Stefánsdóttir
LEGGÐU RÆKT VIÐ SJÁLFAN þlG ARTEMIS FOWL KONAN I KÖFLÓTTA STÓLNUM
Metsölubœkur d broslegu verði
6 vandadar dPb . yinn
í kilinhrn+i PV UTGÁFA
I KIIJUDrOtl Bræðraborgarstígur 7 • Sími 575 5600 Z (Leiðbeinandi útsöluverí
Brædraborgarstígur 7 • Sími 575 5600
1.490
. (Leiðbeinandi útsöluverd)