Vera


Vera - 01.06.2002, Side 67

Vera - 01.06.2002, Side 67
þýðing: Bára Magnúsdóttir Ég vona að þér verði aldrei nauðgað Nýlega varð enn einn hneykslanlega vægur dómur í kynferðisbrotamáli hér á landi til þess að viðamikil undirskriftasöfnun var hafin. Von- andi verður hún til þess að vekja dómara í héraðs- og Hæstarétti til umhugsunar um óréttlætið sem í því felst að fella svo væga dóma yfir mönnum sem eyðileggja líf annarra. En það er einnig mögulegt að skrifa bréf eða tölvupóst beint til dómar- anna þar sem þeim er alvara málsins gerð ljós. Eftirfarandi bréf, sem er þýtt úr ensku, skrifaði kona nokkur í Bandaríkjunum til karl- kyns dómara í heimabæ hennar, þegar henni ofbauð linkind hans við kynferðisafhrotamenn. Þetta gerði hún til að reyna að fá hann til að sjá þessa atburði með augum þoland- ans. Kona þessi, sem kýs að kalla sig ,,Redpower“ hefur gefið leyfi sitt fýrir því að birta bréfið í VERIJ og jafnframt heimild til að senda það til dómara hér á landi. Eg hef aldrei óskað neinni mann- eskju þess að vera nauðgað. Eg vona að þér verði aldrei nauðgað. En ef svo fer, er ýmislegt sem ég vona fyrir þína hönd. Ef þér verður nauðgað, vona ég að árásarmaðurinn náist. Eg vona að málið fari fyrir rétt og að þú berir vitni fyrir fullum dómssal um hvað nauðgarinn gerði þér. Eg vona að það komi fram í fjölmiðlum. Eg vona að nákvæm lýsing þín á atburðum verði skeggrædd af ókunnugum á opin- berum vettvangi. Ég vona að árásar- maðurinn játi og verði dæmdur sekur. Og ég vona að hann fái skilorðs- bundinn dóm. Ég vona að þú segir sjálfum þér að þú komist yfir þetta. Og óg vona að þú komist yfir þetta. Og þegar þú kemst að þeirri niðurstöðu að þetta sé yfir- staðið og þú hafir komist yfir þetta, vonast ég til að þú vaknir upp um miðja nótt með krepptan hnefann fyrir munninum til að bæla niður öskur. Ég vona að þú fáir kvíðaköst sem þú getur ekki útskýrt fyrir ást- vinum þínum, að hjarta þitt berjist svo um að þú haldir að þú sért að deyja. Ég vona að þegar þú sérð ein- hverja rnenn á götu, minni þeir þig á manninn sem nauðgaði þér og að þú brotnir saman og grátir af hræðslu úti á miðri götu. Ég vona að þú leitir þér hjálpar. Ég vona að meðferðaraðilinn eða ráð- gjafinn eða læknirinn eða konan þín segi þér að þú verðir nú „að jafna þig á þessu“. Ég vona að þér finnist að þú getir það ekki. Ég vona að þér finnist að enginn skilji hvað þú hefur gengið í gegnum, að þú eigir á einhvern hátt sjálfur sök á því sem gerðist og að þú hafir átt þetta skilið. Ég vona að konan þín veiti þér stuðning. Ég vona að hún elski þig og vilji annast þig og að fljótlega fái hún innst með sér ógeð á þér fyrir það sem gerðist. Ég vona að hún velti fyrir sér hvort þér hafi fundist það gott. Ég vona að þú munir aldrei aftur njóta kynlífs. Ég vona að þér finnist að líf þitt sé í rúst. Endanlega. Hafðu samt ekki áhyggjur af því. Það getur verið að það lagist. Það verður bara mikil vinna fyrir þig að koma því í lag. Þú ert sennilega löngu hættur að lesa, og það er allt í lagi, því þú last líklega byrjunina sem er: Ég vona að þér verði aldrei nauðgað. -Redpower )

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.