Vera - 01.06.2002, Page 70
vera
frá Jafnréttisstofu
I
Jafnréttisstofa
Jafnréttisstofa
á ferð um landið
á haustdögum
70
Fræðsluhlutverk Jafnréttisstofu
/ þriöju gr. laga um jafna stööu og jafnan rétt
kvenna og karla nr 96/2000 segir:
Verkefni sem Jafnréttisstofa annast eru m.a. að:
a. hafa eftirlit með í'ramkvæmd laganna,
b. sjá um fræðslu og upplýsingastarfsemi,
c. veita stjórnvöldum, stofnunum, fyrirtækj-
um, einstaklingum og félögum ráðgjöf,
d. koma ábendingum og tillögum um aðgerðir
um jafnréttismál á framfæri við félagsmála-
ráðherra, Jafnréttisráð og önnur stjórvöld...
e. auka virkni í jafnréttismálum, m.a. með
aukinni aðild karla að jafnréttisstarfi,
f. fylgjast með þjóðfélagsþróuninni í jafnrétt-
ismálum, m.a. með upplýsingaöflun og
rannsóknum,
g. veita jafnréttisnefndum, jafnréttisráðgjöfum
og jafnréttisfulltrúum sveitarfélaga, stofn-
ana og fyrirtækja aðstoð.
Frá stofnun, haustið 2000, hefur Jafnréttisstofa lagt
áherslu á þau verkefni sem getið er um í ofannefndri
lagagrein og að sjá um fræðslu og upplýsingastarf-
semi sem víðast um landið. A síðasta ári stóð Jafn-
réttisstofa fyrir þremur málþingum og einni ráð-
stefnu þar sem ný fæðingar- og foreldraorlofslög
voru til umfjöllunar. Vera gerði því átaki ágæt skil í
desembertölublaði sínu 2001.
Evrópskt samstarf
Jafnréttisstofa tók einnig í fyrra þátt í umfangsmiklu
kynningarátaki vítt og breytt um landið um mögu-
leika Islands í evrópsku samstarfi. Atakið kallaðist
Evrópurútan en fulltrúar frá 14 Evrópuáætlunum og
þjónustuskrifstofum fóru dagana 10. til 21. septem-
ber hringinn í kringum landið með viðkomu á tíu
stöðum. Verkefnið var unnið í samstarfi við Byggða-
stofnun og atvinnuþróunarfélög á viðkomustöðun-
um. Jafnréttisstofa kynnti tvær áætlanir sem stofan
hefur umsjón með hér á landi. I fyrsta lagi Daphne -
verkefnaáætlun Evrópusambandsins, sem er fjög-
urra ára áætlun um aðgerðir til að vinna gegn ofbeldi
á börnum, ungmennum og konum. Markmið Daphne
áætlunarinnar er að stuðla að þróun samskiptanets
milli þeirra sem vinna að þessum málum innnan
EFTA/ESB ríkjanna. Verkefnin skulu unnin í sam-
vinnu a.m.k. þriggja ríkja á EES svæðinu. I öðru lagi
kynnti jafnréttisstofa jafnréttisverkefni á vegum
Evrópusambandsins (Community framework stra-
tegy on gender equalityj. I þeirri áætlun eru veittir
styrkir til verkefna sem lúta einkum að kynbundnum
launamun og samþættingu atvinnu- og einkalífs,
einnig eru áherslur á verkefni þar sem stefnt er að
bættum mannréttindum kvenna m.t.t. ofbeldis og
mansals, auknum félagslegum réttindum kvenna og
breytingum á hefðbundnum kynhlutverkum.
Jafnróttisráð er nú þátttakandi í einu slíku sam-
starfsverkefni um launajöfnun kynjanna en Rann-
sóknastofa í kvennafræðum vinnur að því fyrir þeir-
ra hönd. Jafnréttisstofa tekur þátt í öðru launaverk-
efni og hefur nú sótt um styrk til verkefnis sem ætl-
að er að bera saman stöðu kvenna og karla í nokkrum
löndum varðandi reglur um fæðingarorlof og þau
viðhorf, menningu og hefðir sem áhrif hafa á hlut-
verk kvenna og karla í því sambandi.
Jafnréttisnámskeið
Á síðasta ári var gerður samningur við fyrirtækið
Skref fyrir Skref um gerð námskeiðs um samþætt-
ingu jafnréttissjónarmiða í fyrirtækjum og stofnun-
um og gerð jafnréttisáætlana. Námskeiðið sem fékk
heitið Jafnt er meira var haldið í Sveinbjarnargerði i
Eyjafirði 18. okt. og í Garðabæ 13. nóv. Það kom
nokkuð á óvart að flestir þátttakenda á námskeiðun-
um komu frá opinberum stofnunum en ekki einka-