Vera - 01.10.2004, Page 23
/ KARLMENNSKA OG OFBELDI /
HVAÐ FINNST ÞÉR VERA KVENLEIKI?
Sesselja G. Magnúsdóttir
dansfræðingur
BöðvarIngvi Jakobsson
Arnaldur Máni Finnsson
Selma Ragnarsdóttir
fatahönnuður og kjólameistari
Þurfum að hugsa upp
á nýtt
„Hinir léttlyndu”
Heimurinn er ekki
rauður og blár
Það að skilgreina hugtökin karlmennska
og kvenleiki er að gangast undir tví-
hyggjuhugsun sem gerir kynin að and-
stæðupari. Hugtökin bera í sér að draga
fram mismun á milli kynjanna og skapa
ímynd hins fullkomna karls eða konu. i
notkun hugtakanna felst kúgun hins fé-
lagslega taumhalds og jafnframt veita
þau einstaklingum skjól til ábyrgðarleys-
is. Athafnir eru framkvæmdar og afsak-
aðar í nafni karlmennsku eða kvenleika.
Hver kynslóð leggur sína merkingu í
þessi hugtök og með því að svara áður-
nefndum spurningum leggur maður sitt á
vogarskálarnar við endurskoðun hugtak-
anna. En þó kynin séu ekki eins af fé-
lagslegum og / eða líffræðilegum orsök-
um þá er kominn tími á að setja þessi
hugtök út af velli jafnréttisumræðunnar.
Hugsa þarf upp nýjar leiðir til að fjalla um
manneskjuna, karla og konur, í öllum sín-
um margbreytileika.
Karlmennska: Að gráta ekki Björn bónda
heldur safna liði, eins og góð kona sagði
forðum.
Kvenleiki: Að segja: Mér finnst....
Ógilt.
Karlmennska / kvenleiki =
Fesculine / Maminine
Mér finnst sjálfsöryggi vera karlmannlegt
fyrir karla og kvenlegt fyrir konur. Það
styrkir persónuleikann og kemur fram
sem útgeislun hverrar manneskju. Það er
hægt að horfa á hugtökin karlmennska
og kvenleiki út frá mismunandi sjónar-
hornum, eins og t.d. útliti, starfi og per-
sónuleika. Við erum öll uppeldislega og
samfélagslega mótuð af því hvað kallast
karlmennska og kvenleiki, eins og því að
karlar eigi að vera sterkir og duglegir og
konur penar og hógværar. Ég held samt
að það sé að breytast þó að það tak
langan tíma. Mér finnst það vera gamal-
dags sjónarmið að samfélagið búist við
öðru af körlum en konum. Ég er á móti
því að eitthvað sé „rétt” fyrir karla og
„rangt” fyrir konur og öfugt. Heimurinn er
einfaldlega ekki rauður og blár.
Myndir: amf