Vera - 01.10.2004, Blaðsíða 27
ÞÓRHILDUR EINARSDÓTTIR / FJÁRMÁL /
Viðburðaríkt ár að baki
» Það er við hæfi þegar árinu er að Ijúka að líta yfir farinn veg og fara yfir helstu
atburði á fjármálamarkaðinum. Þar ber hæst samkeppni bankanna við íbúðalánasjóð
á húsnæðislánamarkaðinum og útrás bankanna. Hlutabréfamarkaðurinn skilaði
framúrskarandi ávöxtun og sló hvert metið á fætur öðru. Það er því ekki hægt að
segja annað en að fjárfestar á íslandi geti unað vel við sinn hlut nú þegar árið er að
enda. Hins vegar er rétt að hafa í huga að ekki er hægt að búast við slíkri ávöxtun
að jafnaði.
Samkeppni um húsnæöislánin
Síðla sumars reið KB banki á vaðið og kynnti nýjung
í íbúðalánum þegar hann lækkaði vexti á slíkum lán-
um umtalsvert og bauð betri kjör, hærra láns- og
veðsetningarhlutfall en áður hafði tíðkast. í kjölfarið
fylgdu hinir viðskiptabankarnir, íbúðalánasjóður og
lífeyrissjóðirnir og má segja að þar hafi samkeppnin
birst í öllu sínu veldi þegar þessir aðilar kepptust
hver við annan um að bjóða viðskiptavinum sínum
betri kjör en keppinautarnir og er ekki séð fyrir end-
an á þeirri þróun. Þegar þetta er ritað hefur íbúða-
lánasjóður og viðskiptabankarnir nýverið lækkað
vexti í 4,15% en í upphafi árs voru vextir á húsnæð-
islánum hjá íbúðalánasjóði 5,1%.
Útrás íslensku bankanna
Síðustu vikur og mánuði hafa íslenskir fjölmiðlar ver-
ið uppfullir af fréttum um útrás íslenskra fyrirtækja og
hefur þessi útrás vakið mikla athygli erlendis og
stöðugt klifað á innrás víkinganna úr norðri. Þar hafa
fjármálafyrirtækin ekki síst verið áberandi og hefur
KB banki verið þar í fararþroddi og er nú einn af tíu
stærstu þönkum á Norðurlöndum. í júní tilkynnti KB
banki um kaup sin á danska bankanum FIH og er eft-
ir kaupin kominn með stóran hluta tekna sinna er-
lendis frá. Þá lét íslandsbanki hendur standa fram úr
ermum og keypti tvo banka á árinu. Fyrri kaupin
áttu sér stað í október þegar hann keypti Kredit-
banken í Álasundi og í nóvember styrkti bankinn
stöðu sína enn frekar í Noregi þegar hann keypti BN-
þank. Landsbankinn hefur einnig lýst því yfir að
hann hyggist kaupa banka erlendis en fyrir er bank-
inn með starfsemi í London og Luxemborg.
íslenski hlutabréfamarkaðurinn
í broddi fylkingar
Það er óhætt að segja að íslenski hlutabréfamarkað-
urinn hafi komið skemmtilega á óvart á árinu sem er
að líða og hefur hann t.d. hækkað mest af öllum
hlutabréfamörkuðum á Norðurlöndum. Þegar þetta
er ritað er rúmur mánuður til ársloka og nemur hækk-
un Úrvalsvísitölunnar, sem mælir hækkun á 15
stærstu og veltumestu félögunum sem eru skráð í
Kauphöll íslands, 67%. í upphafi árs átti enginn von
á þetta miklum hækkunum enda höfðu verið miklar
hækkanir á hlutabréfamarkaðinum árið áður þegar
Úrvalsvísitalan hækkaði um 56%. Mikil bjartsýni hef-
ur verið ríkjandi gagnvart framvindu efnahagsmála
og aðstæður á fjármálamarkaði að sama skapi verið
góðar. Þá má lika segja að þær umþreytingar sem
hafa verið í íslensku viðskiptalífi, einkavæðing og
aukin útrás íslenskra fyrirtækja hafi valdið auknum
áhuga fjárfesta og þessum hækkunum. Einnig hefur
verið mikið af lausu fé í umferð sem hefur leitað inn á
hlutabréfamarkaðinn.
Ástæða til bjartsýni
íslensk fyrirtæki róa nú á erlendum miðum sem er
gott og ætti að vera til hagsbóta fyrir hluthafa, starfs-
fólk og ekki síst þjóðarbúið i formi aukinna skatt-
tekna. Væntanlega aukast umsvif þessara félaga að
sama skapi hér heima og skapa fleiri störf. Ég held
það megi með sanni segja að við höfum gengið göt-
una til góðs í þeirri þróun sem hefur verið á fjármála-
markaðinum síðustu ár og engin ástæða til annars en
að vera bjartsýn á framhaldið.
Frumsýning 7. janúar - Miðasala hafin
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3 • 103 Reykjavik
Miðasala 568 8000 • www.borgarleikhus.is
BORGARLEIKHUSIÐ
Sími miðasölu: 568 8000 • Miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is