Vera - 01.10.2004, Page 35

Vera - 01.10.2004, Page 35
! Ég er fyrsta konan í sögu samtakanna sem hefur verið kjörin í þetta embætti. Það þykir mikill heiður því í þessum hópi eru lagðar línur um verkefni samtakanna. Hópstjórarnir á undan mér voru virtir mannrétt- indalögfræðingar á borð við David Weissbrodt og Paul Hoffmann búningsnefndinni íylgir jafnframt það hlutverk að vera fundar- stjóri vinnuhópa þingsins og hefur Jóhanna stjórnað fundum um mannréttindastefnu samtakanna á íjórum heimsþingum. „Ég er fyrsta konan í sögu samtakanna sem hefur verið kjörin í þetta embætti. Það þykir mikill heiður því í þessum hópi eru lagð- ar línur um verkefni samtakanna. Hópstjórarnir á undan mér voru virtir mannréttindalögfræðingar á borð við David Weissbrodt og Paul Hoffmann. Það var mikil áskorun að feta í fótspor þeirra. Um 400 fulltrúar sitja heimsþingin og í mínum vinnuhópi eru yfirleitt um 100 manns. Ég hef líka tekið að mér fleiri verkefni fyrir al- þjóðasamtökin, t.d. farið í eftirlitsferðir þar sem vandræði hafa komið upp í deildum og haldið námskeið víða fyrir nýstofnaðar deildir.” En hvað með starf íslandsdeildarinnar? „Starfið byggir á hópastarfi og af 4000 félögum má áætla að um 10% séu virkir, sem er svipað hlutfall og annars staðar. Félagar greiða félagsgjöld og fá fréttabréf nokkrum sinnum á ári, einnig tilkynningar á netinu ef þeir óska. Margir taka þátt með því að skrifa bréf upp úr fréttabréfunum út af einstökum málum og senda til stjórnvalda viðkomandi lands. Yfír 100 félagar eru í skyndiaðgerðaneti og fá tilkynningar um aðgerðir sem þeir taka þátt í. Á heimasíðum okkar, amnesty.is og amnesty.org, er hægt að fá upplýsingar um aðgerðir sem hægt er að taka þátt í. Að öðru leyti koma félagarnir að starfinu á margvíslegan hátt, hver eftir sinni getu og aðstæðum. Gott dæmi um mikilsvert frani- lag einstakra félaga er þegar Erlendur Lárusson tók að sér að þýða bók um mannréttindakennslu sem kom út nýlega. Bókin heitir Fyrstu skrefin - handbók um mannréttindafræðslu og er hugsuð sem handbók fyrir kennara og aðra sem vinna með börnum en í henni eru hlutverkaleikir og alls kyns verkefni. Hún er nú í prufu- kennslu í Vogaskóla og fleiri skólar ætla að taka hana til kennslu. Einnig hafa prestar tekið hana til fermingarfræðslu enda er tekið á ýmsu sem unglingar eru að velta fyrir sér, t.d. einelti, sjálfsmynd, ábyrgð og samskiptum. Starfsemi Amnesty International er ekki bara mikilvæg fyrir það fólk sem samtökin vinna fyrir, heldur er Amnesty líka vett- vangur fyrir fólk sem vill vinna að betri heimi. Það er mjög gefandi að vera í samskiptum við fólk sem hefur sömu grundvallar lífsaf- stöðu og þú þótt bakgrunnurinn geti verið mjög ólíkur og finna að starfið getur skilað raunverulegum árangri í aðstæðum venjulegs fólks. Sem foreldri og uppalandi hefur starf mitt að mannréttinda- málum haft rnjög góð og jákvæð áhrif á dóttur mína, Margréti. Hún hefur öðlast skilning á því að um allan heim er til fólk sem lætur sig aðrar manneskjur varða. Ég held að starf mitt hjá Am- nesty hafi hjálpað mér til að verða skárra foreldri. Aðalherferð Amnesty núna er gegn ofbeldi á konum og kyn- bundnu ofbeldi, hvort sem það á sér stað á friðar- eða stríðstím- um. I sambandi við það átak hefur Islandsdeildin unnið náið með öðrunr samtökum sem láta sig rnálið varða, sérstaklega Kvennaat- hvarfinu. Liður í því var aðgerðin á Arnarhóli um hina nafnlausu konu sem reitti mann sinn til reiði og 16 daga átak gegn kyn- bundnu ofbeldi sem stendur frá 25. nóvember til 10. desember. Það er nauðsynlegt að við leggjumst á eitt þegar um svo brýn mannréttindamál er að ræða,” sagði Jóhanna að lokum. vera / 5. tbl. / 2004 / 3

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.