Vera - 01.10.2004, Page 44

Vera - 01.10.2004, Page 44
hvað milljónir. Eftir þetta kom grein í DV undir yfirskriítinni: Sjálfsmeðaumkun á uppboði. Innihaldið var að þeir botnuðu ekki í því að konur væru ennþá að kvarta þótt búið væri að kjósa konu sem forseta. Og seinna voruð þið með uppákomu í borgarstjórn. Já, það var líklega sumarið 1984, á miðju kjörtímabili Kvennaframboðsins og búið að ganga á ýmsu. Fulltrúar Kvenna- framboðsins höfðu orðið fyrir kynferðis- legri áreitni af hálfu annarra borgarfulltrúa og öll afgreiðsla mála eins og hún var þá og hefur því miður lítið breyst. Á þessum fundi var borgarstjórnin að ganga frá þátt- töku í einhverskonar hlutafélagi um Hólm- fríði Karlsdóttur fegurðardrottingu. Kven- leg fegurð átti sem sagt að selja íslenskt kjöt, fiskflök og skreið til Nígeríu en okkur fannst að það væri kannski eitthvað annað sem skipti meira máli. Við útbjuggum á okkur kórónur og borða og fórum upp í borgarstjórn. Við höfðum hist áður og tal- að um að vera klæddar eins og fegurðar- drottningar í kjólum eða sundbolum. Ég er alltaf svo öfgafull þannig að ég fór auðvit- að í sundbol enda hef ég örugglega ekki átt mikið af síðum og fallegum kjólum. Magdalena Schram og Guðrún Jónsdóttir, sem voru borgarfulltrúar Kvennafram- boðsins, mættu í borgarstjórnarsalinn uppstrílaðrar og við hinar vorum á áhorf- endapöllum. Það varð töluvert uppþot og mér er minnis- stætt og fannst skemmtilegt að þegar við vorum á leiðinni upp var þar ungur blaðamaður sem sá okkur og rauk í næsta til- tækan síma, hringdi í sinn fjölmiðil og sagði: „Það er allt að verða vit- laust hérna, allt fullt af konum klæddar eins og fegurðar- drottningar. Ein er á sundbol og hún er meira segja svolítið feit.” Það var náttúru- lega alveg óheyrt að feit kona væri á sund- bol, það var bara fyrir konur sem uppfylltu einhver stöðluð mál. Við vorum hugmyndaríkar á þessum tíma og stóðum fyrir alls kyns aðgerðum þó að það kæmist ekki alltaf í fjölmiðla. Ég man eftir okkur í stinningskalda um miðja nótt, prílandi utan á styttum bæjarins að hengja á þær kjóla. Einhverntíma sátum við og skárum út líkamsparta kvenna, það var farið í búðir og neitað að borga nema hluta af því sem karlar borguðu í samræmi við launamuninn og svo margt, margt fleira sem við aðhöfðumst, svo ekki sé minnst á allar áætlanirnar sem aldrei komust í framkvæmd. Varð ekki Kvennaframboðið til á þínu heimili? Nei, það var ekki stofnað þar en hug- myndin varð þar til. Hugmyndina að Kvennaframboðinu á Guðlaug Teitsdóttir kennari. Þannig var að það voru einhverjar breytingar á miðstöð Rauðsokkahreyfing- arinnar, einhverjar voru að hætta, og ég bauð í mat heim til mín. Það var náttúrlega rætt um stöðu kvenna og þá sagði Gulla eitthvað í þessum dúr: „Þetta breytist aldrei nema að við komust til valda. Við verðum bara að bjóða fram.” Að þessum orðum urðu nokkur vitni og síðan var verið að hafa þetta í flimtingum. Það var ekkert ofsalega löngu seinna að við settumst nið- ur, ég, Ingibjörg Hafstað, Kristín Ástgeirs- dóttir og fleiri og gerðum lista yfir mögu- legar konur til þess að taka þátt í og undir- búa svona framboð. Þú tókst sæti á lista? Já, já, ég held að ég hafi verið í 7. sæti, man það ekki alveg. Ég var nú aðeins of róttæk af því að Kvennaframboðið átti að vera breiðfylking og þá þótti ekki heppilegt að flagga mér mjög ofarlega, og alls ekld okkur Guðrúnu Jónsdóttur saman. Varstu einu sinni á lista eða oftar? Kvennaframboðið bauð bara fram einu sinni og uppfrá því Kvennalistinn. Ég studdi ekki tilurð Kvennalistans vegna þess að mér fannst vanta svo mikið upp á al- menna vitund. Kvenfrelsismálin verða ekki leyst í stofnunum, það verður að leysa þau allsstaðar - á heimilum, á vinnustöðum, bara allsstaðar þar sem er fólk. Mér hefur alltaf fundist mikilvægt að kvenfrelsisbar- áttan eigi sem flestar birtingarmyndir, hún á ekki að festast í kerfum eða einhverju apparati sem sér um hana. En það varð heilmikil gróska i framhaldi af Kvenna- framboðinu, það urðu til Samtök kvenna á vinnumarkaði, Kvennaráðgjöfin, Kvenna- athvarfið, Stígamót, Kvennalistinn og ör- ugglega margt fleira sem ég er að gleyma. Það var ofsalega gaman að vera þátttakandi og sjá að inn í Kvennaframboðið komu konur sem aldrei höfðu komið nálægt póli- tísku starfi, konur sem unnu í fiski, í heim- ilisshjálp eða öðrum láglaunakvennastörf- um. I upphafi voru þær með en síðan hrundi utan af þessu og þeim fækkaði alltaf sem tóku þátt í starfinu og það end- aði sem fámennt bæjarmálaráð. Svo sann- arlega byrjaði þetta sem fjölda kvenfrelsis- hreyfing en var ekki lcngur fjöldahreyfing þegar Kvennaframboðið var búið að sitja þrjú ár í borgarstjórn. Varstu þá sátt þegar Kvennalistinn hætti? Mér fannst að hann hefði átt að hætta miklu fyrr. I þessari afstöðu var ég reyndar svolítið tvístígandi því ég var hlynntari Kvennalistanum úti á landi, mér fannst hann hafa þar jákvæð áhrif. Kvenfrelsis- málunum verður aldrei bjargað með því að einhver sjái um þau, a.m.k. 80% kvenna verða að vera meðvitaðar um stöðu sína og hvort og hvernig hallar á þær. Það má aldei slaka á því það er langt í land. Hefurðu fylgst með eða tekið þátt í Femínistafélagi íslands? Nei, ég hef ekki gert það en ég var ægi- lega kát þegar ég heyrði um Bríeturnar sem Mínar jafnréttishugmyndir ganga ekki bara út á að konur verði þingmenn eða borgarstjórar eða fái „karlalaun” íyrir „karlastörf ”, heldur að hefðbundin kvennastörf séu metin og virt. Það hefur ekki gerst og ég leyfi mér að fullyrða að munurinn hafi aukist 44 / 5. tbl. / 2004 / vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.