Vera - 01.04.2005, Page 7
Sigríður Árnadóttir lýsir
tónleikunum og nýju
hljómsveitirnar fimm kynna
» Þann 2. apríl síðastliðinn fóru fram tónleikarnir Tryllingur
og spilling í tónleikasalnum Berlín í Klink og Bank. Meðlimir
Brúðarbandsins stóðu að þessum tónleikum en þeim var farið
að þykja hlutverk sitt sem eina kvennahljómsveit landsins
einmanalegt og fóru því á stúfana að finna fleiri konur sem
rokka. Þetta kvöld komu fram sex hljómsveitir sem í eru konur
að miklum meirihluta. Þess má til gamans geta að helgina áður
var haldin tónlistarhátíð á ísafirði undir yfirskriftinni Aldrei fór
ég suður. Þar spiluðu rúmlega þrjátíu hljómsveitir og var einungis
einn meðlimur þeirra kvenkyns, hún Birgitta Haukdal í írafári.
Tónleikarnir byrjuðu á rólegu nótun-
um með Lazy Housewifes sem eru þær
Dísa (trumbuleikari Rokkslæðunnar)
og söngkonan Nana. Þær fluttu nokkur
angurvær og falleg lög, bæði frumsam-
in og ábreióur, og skiptust á að spila á
gítar, hljómborð, bassa og pott. Tvær
Brúðarbandsmeyjar lögðu fram aðstoð í
nokkrum lögum, Katrín harmónikkuleik-
ari tók nú bassa sér í hönd og Sigga söng
raddir.
Þetta var lognið á undan storminum
þvi næst sté Viðurstyggð á stokk. Þetta
ársgamla tríó hefur alltaf verið magnað
vcra / 2. tbl. / 2005 / 7