Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1918, Page 58
Edinborg 250,000 dali í sama skyni og háskólanum
þar 2,000,000 sterlingspunda (um 36 milj. kr.). Um
sama leyti stofnaði hann Carnegie-stofnunina í New-
York með 10,000,000 sterlingspunda (um 180 milj. kr.).
Er það vísindastofnun, sem meðal annars kostar
rannsóknarferðir víðsvegar um heim (rannsóknarskip
frá henni lá um 3 vikna tima við segulmagns-rann-
sóknir hér á höfninni í Reykjavík 1914, um það leyti
sem stríðið hófst. Kom þá úr rannsóknum norðan
úr íshafi). Allar gjafir hans yrði oflangt mál upp að
telja, en geta má þess að lokura, að hann hefir gefið
3,000,000 sterlingspunda til að byggja friðarþingshöll-
ina í Haag á Hollandi, og er nú unnið kappsamlega
að þeirri byggingu meðan ófriðurinn geisar.
Carnegie stæði nú öllum þorra almennings jafn-
fjarlægur fyrir öllu þessu. Hann væri ekkert annað
en auðkýfingur, sem gefur og gefur af gnægð sinni,
af þvi að hann veit ekkert um, hvernig hann á að
fýrirkoma miljónunum, ef ekki væri annað, sem gerir
hann meira að manni með holdi og blóði ogskiljan-
legri þeim, sem leita skilnings .á lionum. Hann er
sem sé dálítið kunnur sem rithöfundur. Pó mundi
hann fráleitt hafa unnið sér mikinn orðstír fjTrir rit-
störf sín, ef ekki hefði nafn hans áður veriö á hvers
manns vörum. Pað er ekki mikið, sem eftir liann
liggur, mest tækifærisræður, fyrirlestrar og blaða-
greinar, sem síðan er safnað saman. En þótt ekki sé
það mikið að vöxtum, er vel til þess vandað, og það
sem mest er um vert; það er hans hjartans meining,
lífsreynsla hans sjálfs, og alt skrifað í þeim eina til-
gangi að skýra fyrir mönnum líf hans og starf. Hon-
um er full alvara með því sem hann segir, það sýn-
ir hann með öllu lífi sínu. Og hann segir ekki annað
en það sem hann sjálfur er sannfærður um að sé
satt og rétt. í skrifum hans birtist hvarvetna einlæg-
ur og góðgjarn maður, bjartsýnn og reyndur í skóla
lífsins, með fölskvalausum áhuga á öllum sönnum
(4)