Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Page 13
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 13
félag é Islandi
Leitaö að hinum lítils metnu
Költleiðtogi ShokoAsa-
hara, leiðtogi hins leynilega
költsafnaðar Aum Shinri
Kyo, sem bar ábyrgð á
gasárásinni á neðanjarðar-
lestakerfið ÍTókýó.
Séra Þórhallur Heimisson hef-
ur skrifað bók sem hann kall-
ar „Pílagrímsferðina“ og fjall-
ar um nýjar trúarhreyfingar
á Vesturlöndum. Þar skrifar
hann meðal annars um „költ-
hreyfingar“ ýmiss konar sem
eiga það margar sameiginlegt
að þefa uppi einstaklinga sem
standa höllum fæti, flækja þá
í net hreyfingarinnar og gera
þá nánast að viljalausum
verkfærum óprúttinna leið-
toga. Oft með skelfilegum af-
leiðingum.
•sSk
m
* ðferðimar sem leiðtogar
ZA [költlhreyfinganna beita til
JL Aþess að ná ... árangri em oft
keimlíkar. Upplýsingum um það
sem gerist utan hópsins er haldið
frá safnaðarmeðlimum. Séð er til
þess að fólk fái ekki nægan reglu-
legan svefn. Sífellt er verið að brjóta
upp daginn með bænum, föstu og
fyrirlestmm. Leiðtogamir em aldrei
gagnrýndir. Refsað er fyrir smá-
vægilegar yfirsjónir. Þeim sem efast
um réttmæti kenninganna eða orð
leiðtogans er hótað með helvítis-
\ist. Ef einhverjum tekst að yfirgefa
hópinn er hann útskúfaður af hin-
um sem eftir verða og þarf þá gjarn-
an á andlegri hjálp sérfræðinga að
halda.
Getur leitt til fjöldasjálfs-
morða
Nokkrir þekktustu hóparnir eða
söfnuðirnir á síðustu áratugum er
flokka má undir hugstjórnunar-
hópa em The people’s Temple
(Musteri fólksins) sem Jim Jones
stjórnaði og leiddi til fjöldasjálfs-
víga, Aum Shinri Kyo og Heavens
Gate (Hlið himnanna). Aum Shinri
Kyo stóð fyrir gasárás á neðanjarð-
arlestir í Tókýó árið 1995. Tólf far-
þegar létust og 5500 slösuðust. For-
sprakki hreyfingarinnar hét Shoko
Ashara. Markmið árásarinnar var
að flýta fyrir dómsdegi. Hreyfingin
hefur verið upprætt en margir læri-
sveinar fara þó enn huldu höfði.
Lærisveinar Heavens Gate trúðu
því aftur á móti að Hale-Bopphala-
stjarnan sem birtist á himninum
árið 1997 væri geimskip sem myndi
flytja þau öll til himna. Forsprakki
hreyfingarinnar hét Marshall Aþp-
lewhite. Kenndi hann að líkaminn
væri ekkert annað en gámur um
hinn sanna mann. Með því að
svipta sig h'fi kæmist maður til
himna. Og það gerðu áhangendur
hans allir þann 26. mars árið 1997.
Heimsendir er í nánd!
Sameiginleg einkenni þessara
hópa eru mörg. Leiðtogamir boða
að heimsendir sé í nánd og að ein-
ungis þeir er lúta vilja leiðtogans
muni lifa af. Lærisveinamir ein-
angra sig frá öðm fólki og alið er á
ofsóknarkennd sem jaðrar við
geðsýki. Leiðtogarnir safna að sér
ógrynni af vopnum til þess að
mæta aðsókn og ásókn hinna van-
trúuðu er dómsdagur rennur.
Slfk og svipuð einkenni eru
reyndar til staðar í boðun margra
smárra trúarhópa, þó öll einkenn-
in sé kannski ekki að finna í einum
stað. Samt sem áður ber fólk að
varast trúarhópa sem leggja mikið
upp úr ofangreindu eða beita að-
ferðum sem flokka má undir
heilaþvott eða hugstjórnun.
Dæmin sýna að þessir hugstjóm-
unarhópar geta verið lífshættuleg-
ir.
Einstaklingar sem standa höll-
um fæti
Enginn þessara hópa hefur starf-
að hér á landi, en auðvelt er að kynn-
ast þeim á netinu og oft má sjá
ákveðna þætti í aðferðum þeirra end-
urspeglast í starfsháttum trúfélaga og
hugmyndafræðilegra hreyfinga. Því
er um að gera að vera á verði gagn-
vartþeim...
[Yjfirleitt má greina ákveðið
munstur sem hægt er að heimfæra
upp á flestar slíkar hreyfingar og fyig-
ismenn þeirra. Oft velur hreyfingin
einstaklinga sem standa frekar höll-
um fæti félagslega, em einmana og
jafnvei afskiftir en um leið leitandi.
Gjaman er það hreyfingin sem tekur
fyrsta skrefið og hefur samband við
þann sem líklegur getur talist til að
vilja hiusta á boðskapinn og ræða við
þá sem hreyfingunni tilheyra.
„Viltu þiggja bækling?"
Strax við fyrstu kynni fær sá sem
hreyfingin vill fá á sitt band að vita að
hann er sérstakur að áliti hennar, að
hann skipti máli og sé útvalinn. Út-
valningin hefur sterk áhrif á þann
sem áður var einmana og taldi sig
jafnvel lítils metinn af samfélaginu í
kringum sig. Snmdum verða hin
fyrstu kynni án nokkurs fyrirvara, t.d.
á götunni þegar þú ert spurður að því
hvort þú viijir þiggja bækling, hvað
þér fininst um þetta eða lútt málefnið
og hvort þú viljir koma og ræða mál-
ið nánar á ákveðnum stað og stundu.
Oftast er þó haft samband við ein-
hvem sem búið er að fylgjast með um
nokkum tíma og talinn er þess virði
að reyna nánar við. Þetta á sérstak-
lega við unglinga eða ungt skólafólk
sem stendur á tímamótum, hefur
kannsld nýlega flutt að heiman og er
ekki enn búið að byggja upp félags-
legt öryggisnet kunningja í kringum
sig. Þetta á ekki síst við þegar ungt
fólk heldur erlendis til náms og þekk-
ir kannski engan á viðkomandi stað.
En það em ekki bara þeir sem em
einmana sem em vænlegir nýliðar í
augum hugstjómarhreyfinganna.
Sama máli gegnir um þá einstaklinga
sem eiga í erfiðleikum vegna náms,
hafa flosnað upp xir skóla eða hafa
lent út af sporinu á einhvem hátt.
Þeir geta verið sérstaklega viðkvæmir
fyrir. Meðlimir hugtjómarhreyfinga
sem leita að væntanlegum nýliðum
em sérlega glúmir að sjá út þá sem
em viðkvæmir fyrir og þarfnast fé-
lagsskapar, vina eða einfaldlega stað-
festingar á því að þeir séu einhvers
virði. Besta ráðið til að forðast slíka
veiðimennsku er að velja sér sjálfúr
vini sfna en láta ekki draga sig inn í fé-
lagsskap faisvina. Foreldrar og skólar
ættu að vera vakandi fyrir þessari
hættu og hið sama gildir um þá sem
em að styðja við unglinga er á einn
eða annan hátt hafa lent í erfiðleikum
félagslega.
Ekki bara unglingar
Áhættuhópamir em reyndar mun
fleiri en unglingar. Það geta verið ein-
stæðir foreldrar, foreldrar ungra
bama sem em einangraðir ffá öðm
fuilorðnu fólld, eftirlaunaþegar,
syrgjendur og sjúklingar sem leita
leiða til þess að fá bót alvarlegra
meina sinna og aðstandendur þeirra.
Það er óhuggulegt að heyra af lang-
veiku fólki sem óprúttnir heiiarar
gera út á og nýta sér þannig örvænt-
ingu þess.
Umfram allt ætti ætíð að sýna var-
fæmi í samskiptum við þá sem mað-
ur þekkir ekki. Það á ekki bara við um
litlu bömin heldur alla. Ekki að
treysta hverjum sem er fyrir sínum
innstu málum og áhyggjum er að
sama skapi góð vöm. Þegar allt kem-
ur til alls em það nefnilega viðbrögð-
in við nálgun hreyfingarinnar sem
skipta öllu máli. Þú ræður sjálfur
hvemig þú bregst við þegar hreyfing-
in hefur fyrst samband við þig. Ef þú
sýnir jákvæða svörun þá er hreyfing-
in þegar búin að skipuleggja næsta
skref. Það er allt gert til að fá þig til að
títa við, taka næsta skrefið, vekja
áhuga þinn, oftast með því að koma
inn hjá þér einhvers konar sektar-
kennd ef þú segir nei við tilboði
hreyfingarinnar. Þú ert þegar búinn
að fá gott tilboð frá vingjamlegum
einstaklingi eða hópi og þá er erfitt
fyrir þig að segja nei.
Vertu á varðbergi
Kurteisi er af hinu besta en þú átt
ekki að láta aðra notfæra sér kurteisi
þína. En eftir þessi fyrstu kynni finnst
þér kannski þú allt í einu vera meira
virði en áður. Þú ert ekki lengur einn
og öðm fólki finnst þú skipta máli
sem einstaklingur. Eða það heldur þú
alia vega. Þú ert útvalinn, finnst þér.
Einhver vill líka vera vinur þinn. Auð-
vitað er ekkert að þessu, þvert á móti,
efsatter.
En þegar þér er boðið að hlusta á
einhvem sem vill leysa úr öllum þín-
um vanda án þess að þú hafir hug-
mynd um hver hann er, þá er kominn
tími til að vara sig. Sá hinn sami getur
verið leiðtogi hreyfingarinnar sem
gerir og segir allt til að fá þig með í
hópinn. Ef þú lendir í þessari stöðu,
vertu þá á varðbergi, sérstaklega ef
svörin sem þú færð em einfóld og
bamaleg. Það em nefiiilega ekki til
einföld svör eða einfaldar lausnir á
vanda lífsins. Sá sem vill í raun og
vem styrkja mann og veita andlega
leiðsögn mætir ekki með vasann fixll-
an af lausnum. Hann gengur þvert á
móti með manni spölkom í gegnum
lffið, hlustar og hjálpar hverjum og
einum að finna sín eigin svör.
Ekki rasa um ráð fram
[Séra Þórhallur rekur síðan
hvemig hópar af þessu tagi ginna fólk
æ lengra til liðs við sig, og segir:]
Síðasta skrefið er að ganga opin-
berlega og markvisst tfl liðs við hreyf-
inguna. Um leið er skorið á öll fyrri
tengsl. Því öfgafyllri sem hreyfingin
er, því meira afgerandi em skilin við
fom'ðina og fjölskylduna. Og þess
meiri kröfur em líka gerðar til þeirra
sem ganga hreyfingunni á hönd.
Stundum em meðlimir einangraðir
frá umhverfinu eins og komið hefur
fram hér fyrr. Þeir em jafnvel sviptir
öllu fjárhagslegu sjálfstæði, borga allt
sitt tfl hreyfingarinnar og afneita for-
eldmm, systkinum og öðmm sem
ekki em á sama máli og hreyfingin og
leiðtogi hennar.
Það getur síðan reynst ákaflega
erfitt að losna aftur undan valdi
hreyfingarinnar. Ef einhvers konar
vandi í tí'finu var orsök þess að við-
komandi upphaflega gekk hreyfing-
unrú á hönd, þá magnast sá vandi
upp um leið og sagt er skilið við
hreyfinguna. Oft er það flótti undan
raunveruleikanum inn í draum-
kenndan heim þegar gengið er til liðs
við slíka hreyfingu. Vandinn hverfur
ekki, hann er aðeins frystur um tíma.
29. sept. - 3. okt. 2004
Jazzhátíð
15 tónleikar á fimm dögum
:Æs/ &
y // ■
Forsala aðgöngumiða hjá
Höfuöborgarstofu
Aöalstræti 2
www.ReykjavikJazz.com/