Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Page 15
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 15
„Heima fær maður
þrjár mínútur til þess
að sýna hvað í manni
býr. Þegar maður
Stjörnurnar ganga meö sólgleraugu og hatta til að fela sig fyrir æstum aðdáend-
um þegar þær þurfa að láta sjá sig á almannafæri. Uppáhaldsiðja margra þeirra
er svo að skálda upp ný og ný dulnefni þegar þær skrá sig inn á hótel.
labbar út eftir inn-
tökuprófin hér hefur
maður virkilega á til-
finningunni að maður
hafi sýnt allt sem
maður kann. Skóla-
stjórinn tekur mann
meira að segja í sófa-
spjall til að tékka á
manni. Heima roms-
arðu bara upp úrþér
þínum texta og svo er
það bara takk og
bless. Auðvitað er
rökréttara að taka sér
svona góðan tíma í
þetta.
Ekki þessar stöðluðu iistahá-
skólatýpur
Þau segjast halda að skertir
möguleikar heima séu nánast eini
gallinn við námið. „Maður öðlast svo
mikla víðsýni af að læra erlendis. Hér
í skólanum eru miklu fjölbreyttari
týpur en í leiklistarskólanum heima.
Danmörk er mun fjölþjóðlegra sam-
félag en fsland og það sést glögglega
á nemendahópnum. Hér er ekki
þessi staðlaði listaháskólanemandi
sem maður getur nánast þekkt á götu
heima, það er ekkert slæmt út af fyrir
sig en samt sem áður er spennandi
að hafa svona breiðan hóp. Hér er til
dæmis einn á öðru ári sem er lærður
kjötiðnaðarmaður. Það er líka öllum
hollt að vera í svona hiutlausu um-
hverfi þar sem maður þekkir engan.
Heima þekkirðu alltaf einhvem sem
er með þér íbekk."
Eru ekki að flýja „klíkuskap"
Og þá upphefst umræða um
„klíkuskapinn" í Leiklistarskóla ís-
lands. „Það eru alls staðar klíkur. Er
það ekki bara eðlilegt? Mörg okkar
fengu sumarvinnu í gegnum klíku.
Það er endalaust hægt að diskútera
þetta. Leikarabörn komast mjög oft
inn í skólann heima, það er alveg
staðreynd. Það breytir því ekki að
þau hafa oftar en ekki alist upp í
þessu leikhúsumhverfi og hljóta þar
af leiðandi að vera betur í stakk búin
en margir aðrir. Er þetta ekki bara
einhver gömul mýta? Við vomm að
minnsta kosti ekki að flýja neinn
klíkuskap,‘‘ segja þau og hlæja. „Þrjú
okkar sóttu um inngöngu í skólann
heima. Ég er alveg viss um að ef við
hefðum komist inn hefði auðveld-
lega verið hægt að tengja það við
klíkuskap með einhverjum hætti,
það em allir tengdir á íslandi. Maður
hefði sjálfsagt haft lítið gaman af
þeirri umræðu.“
En ætla þessir leikarar framtíðar-
innar að halda heim á Frón að þrem-
ur ámm liðnum eða reyna fyrir sér í
Danmörku? ,Ætli flest okkar hugsi
ekki heim, en maður veit samt
aldrei," segir eitt þeirra og margir
reynast ósammála. „Kannski ég fari
til Bretlands aftur, ég bjó þar um
tíma,“ segir María. „Já, eða maður
fari bara að eiga börn og gerast hús-
móðir,“ segir ein stúlknanna. „Eða
kannski verður maður svo heppinn
að finna vinnu við að landa svo mað-
ur nái einhvern tímann að borga fýr-
ir námið," segir Sindri að lokum. Það
eitt er víst að vorið 2008 útskrifast
nánast jafnmargir leikarar frá Hol-
berg leiklistarskólanum á Osterbro
og leiklistardeild Listaháskóla ís-
lands. Það verður spennandi að fylgj-
ast með hvað verður.
Þeir sem vilja kynna sér Holberg
skólann nánar geta kíkt inn á heima-
síðu hans á slóðinni www.tea-
terskolen.com.
Dulnefni stjarnanna
Oprah Winfrey -
Sophie Lee
Nafn persónu hennar í
kvikmyndinni Color Purpte
varSofía. Betrihelmingur
hennar til langs tíma, Sted-
man Graham, gafhenni
einnig hundsem barþetta nafn.
Lee erættarnafn móður henn-
ar.
MaryJ. Blige-
Frú Huxtable
Til komið vegna ástar
söngkonunnar á The Cosby
Show.
Russell Crowe -
Russell Black
Smá útúrsnúningur, svört
kráka og svo framvegis.
Michael Jackson -
Hr. Simpson
Engar skýringar hafa feng-
ist á þessu. Notar einnig
stundum Hr. Sterling.
Robert DeNiro -
Bob Collins
Hollywoodleikarinn valdi
sérafar hversdagslegt
nafn.
Bobby Brown og
Whitney Houston -
Justin Case
Orðaleikur hjá hjónakorn-
unum kolbrjáluðu.sem
einmitt eiga það til að rlfast og
slást illilega á hótelherbergjum. Just In Case -
efsvo vildi til að einhver þyrfti að ná I þau.
Nicole Kidman - FrU
Sugar
Ástralska leikkonan eröll
í sykursætum hugsunum
og notar meira að segja
stundum nafnið Ms.
Blosson.
Naomi Campbell - Frú Sugar
Kannskiekki eins sykursæt og Kid-
man en notar samt sama nafn.
Neil Young - Bernard
Shakey
Rokkarinn er alveg fast-
ur á þessu nafni.
Jude Law -
Hr.Blár
Breski hjartaknúsarinn
valdi sér nafn út i bláinn,
Mr. Blue, ennotar einnig
Mr.Blancheflower.
Lenny Kravitz -
Silky Jones
Mjúki rokkarinn notar
jafnan þetta nafn sem
hæfírhonum og tónlist
hans ágætlega.
Ben Affleck -
JackWalsh
Fengið úr einni afuppáhalds kvik-
mynd Bens, Midnight Run frá árinu
1988. Persóna Robert DeNiro hét
þessu nafni.
Æfingateygjur
3 mismunandi styrkleikar.
Verð: 2.990 kr
Vinyl handlóð þyngd
0,5 kg til 2,5 kg
Verð frá: 990 kr. parið
Sigma Sport púlsmælar
verð frá OO kr.
Cross Trainer
Infiniti ST 900
20 aðgerðir á tölvuborði og púlsmælir
Stafrænt segulviðnám
verð 9.900 icr.
Cross Trainer
Infiniti ST 655
6 aðgerðir á tölvuborði og púlsmælir,
verð 49.900 krj
BUÐIN FAXAFENI 7
S: KL. 9-18. LAU. KL. 10-14 WWW.gQþ.ÍS
S: 5200 200 www.gap.is MAN
sigrunosk@dv.is