Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Side 40
40 LAUGARDACUR 25. SEPTEMBER 2004
Helgarblaö 0V
Myndlistarmaðurinn Jón Óskar er nýlega kominn til landsins frá Kína þar sem hann var í þrjá mánuði.
Hann segir Kínverjana hlæja mikið, mikla grínara, og þeir hikuðu ekki við að snarsnúa sér á götu, góna
á hann, benda og hlæja að honum.
„Kínverjarnir tóku mér mjög vel. En það var eins og ég væri að
koma til útlanda í fyrsta skipti. Þarna talar enginn ensku þannig
að öll tjáskipti fóru meira og minna fram á fingramáli," segir Jón
Óskar myndlistarmaður. Hann er nýlega kominn heim til
íslands frá Kína þar sem hann dvaldi í þrjá mánuði. Jón er
enginn dvergur nema síður sé þannig að blaðamaður í fávisku
sinni spyr hvort Jón Óskar hafi ekki verið þarna eins og Gúllíver
í Putalandi. Jón segir svo ekki vera. Þeir séu hávaxnir margir
hverjir og nokkrir í körfuboltastærð.
„Þeir eru gríðarlega hjálpsamir,
elskulegir og vingjarnlegir. Hlæja
mikið. Þetta eru grínarar. Þama er
lítið um Vesturlandabúa. Ég var að
mestu í borginni Xiamen en þar búa
um tvær milljónir. Ég skar mig úr og
varð miðpunktur athyglinnar hvar
sem ég fór. Þeir snarsneru sér á göt-
unni ef þeir mættu mér. Svo er ég
ljóshærður í ofanálag og það fannst
þeim fyndið. Þeir báðu mig mjög
gjarnan um að sitja fyrir á myndum
með þeim. Svo voru þeir að benda á
mig og hlæja. Það þykir ekki dóna-
legt þama. Ekki málið. Það er viðtek-
ið,“ segir Jón Óskar sem lét sér vel
líka.
Kvöddu með tárin í augunum
Jón Óskar fór til að starfa í vinnu-
stofu í eigu Sigurðar Guðmundsson-
ar listamanns og Ineke, konu hans.
Hún rekur það sem heitir Chinese
Europian Ait Center og þau hjónin
buðu Jóni að koma út og starfa þar.
Kona Jóns Óskars, Hulda Hákon
listamaður, er þar núna og verður
fram eftir hausti. „Ég var að vinna að
því sem ég er að sýsla auk þess sem
mér bauðst að taka þátt í svona
postulínsprójekti. Það sem út úr því
kemur verður á samsýningu fimm
listamanna sem þarna koma og
vinna í postulínsverksmiðju þar sem
fáanleg er öll sú tæknilega aðstoð
Postulínsdrengirnir Eitt verkJóns var svo stórt aö þeir postuiinsdrengir gátu ekki sett það
upp, verkið hrundi alitaf, og eftir átta tilraunir kvöddu þeirJón Óskar með tárin f augunum.
Tilboð óskast í glæsibifreiðina Chevrolet Bel Air
árgerð 1954.
Til sýnis á planinu bak við Suðurlandsbraut 32, í dag laugardag
frá kl.10-16 og sunnudag kl.13-16.
Allar nánari upplýsingar í síma 898-8027,
568-8611 og 587-5603.
CHEVROLET BEL AIR
Jón Óskar í Kfna Hér erJón Óskar í vinnustofunni íKfna að vinna Ipostulín. Jón vakti hvarvetna athygli og Kinverjarnir bentu á hann og hlógu.
sem hægt er að fá. Þar var ég í ágúst-
mánuði ffam í september. Síðan
verð ég með tvær sýningar í haust,
einkasýningu með Huldu og svo
verð ég á þessari samsýningu með
öðrum listamönnum í postulíninu."
Jón Óskar hefur ekki unnið mikið
með postulín. Þó var það fyrir um
þremur árum sem Steingrímur
Eyfjörð listamaður hóaði saman
góðum hópi til að vinna með þetta
sérstæða efni. „En þá vorum við nú
bara að mála postulín. En þama
gerði ég 16 til 17 skúlptúra úr postu-
líni. Sumir þeirra eru 40 x 40 sm,
aðrir upp í einn og hálfan meter. Eitt
verkanna var 1,30 x 1,50 metrar. Það
er orðin hlussa og ég veit ekki hvað
verður með það verk. Þeir hafa ekki
gert svona stórt stykki áður og ég veit
ekki hvort það tekst. Þeir eru búnir
að gera átta tilraunir og það hrynur
alltaf. Þegar ég kvaddi þá voru þeir
með tárin í augunum." Svo virðist
sem Jón Óskar sé búinn að taka
Kínverjana í Postulínsverksmiðjunni
alveg á taugum með þessum æfing-
um sínum.
Kapítalískt tilraunaverkefni
Xiamen er staðsett í námunda við
Tævan sem er þar út af ströndinni.
Jón Óskar segir að ekki sjáist þang-
að. Hins vegar eiga Tævanbúar
margar litíar eyjar sem eru um tvo
kflómetra frá ströndinni. „Þar eru
þeir með virki og miða fallbyssum
stanslaust á Kínverja. Hins vegar er
þetta vinsæll sumarleyfisstaður Kín-
verja sem fara í siglingatúra og sigla
þá upp að Tævaneyjunum. Þar
hrópa þeir til Tævanbúanna og segja
þeim að koma og vera memm í
Kína.“
Jón Óskar reyndi eftir bestu getu
að kynnast borginni sem hann segir
mjög spennandi. Þetta er ein af
fyrstu þremur borgum í Kína þar
sem leyfður er frjáls markaður.
Kapítah'skt tilraunaverkefni. „Þarna
er gríðarlega hröð uppbygging og
þegar farið er um borgina má sjá
annars vegar gamla Kína og svo
gríðarlega nýtískuleg hverfi."
Maturinn er frábær þarna að
sögn Jóns Óskars. Borgin er sunnar-
lega og þeir nota mikið ávexti og
grænmetí í sína matargerð auk
kjúklinga og svínakjöts. En einkenn-
andi er einkum sjávarréttamenning.
„Og þarna kostar lítið sem ekkert að
vera til. Allt ákaflega ódýrt.“
Sígarettupakkinn á 30 krónur
Jón Óskar nefnir sem dæmi um
verðlagið að þarna kosti sígarettu-
pakkinn aðeins þrjátíu krónur. „Ég
ætlaði að hætta að reykja í sumar
en gat ekki sleppt þessu tækifæri.
Ætlaði að bíða með það þangað til
ég kæmi heim. Nei, ég held að
Þorgrímur hafi ekki heyrt af þessu."
Að fara út að borða er ákaflega
ódýrt og föt og slíkt kosta nánast
ekki neitt. „Maður lætur sauma á
sig föt þarna fyrir lítinn pening. Já,
þetta er spennandi svæði upp á allt
slíkt að gera. Ég uppgötvaði að ljós,
kastarar sem mig vantar í vinnu-
stofuna mína, mig vantar 15 slfka,
Og þarna kostar lítið
sem ekkert að vera
til. Allt ákaflega
ódýrt.
þeir kosta á íslandi 15.000 stykkið
en þarna úti fæ ég þá fyrir 1.500.
Þetta er nú kannski gott dæmi um
prísana."
Þó svo að okkar maður í Kína hafi
ekki mjög mikinn áhuga á calli-
grafi'u, eða myndmáli þeirra Kín-
verja, þá voru aðferðirnar sem þeir
nota í myndlistinni forvitnilegar og
ýmislegt sem Jón Óskar kynntist í
Kína mun nýtast honum vel. „Ég fer
líklega út aftur í vetur - skottúr
vegna sýningarinnar. Og svo hef ég
mikinn áhuga á að fara þangað aftur
og jafnvel reglulega. Ég er að skoða
þann möguleika."
Menn eru um sólarhring að
koma sér til Kína og hægt að finna
sér flugferðir fyrir um 120 þúsund
krónur. Á móti kemur svo að ódýrt
er að vera í Kína. Jón Óskar mun
sýna það sem hann var að vinna
þarna úti í Gallerí 101. „En næstu
helgi er ég að opna sýningu í
Slunkaríki á ísafirði. Hjá Jóni Sigur-
pálssyni sem rekur þar gallerí með
glæsibrag. Þar verð ég með myndir
sem ég var að vinna áður en ég fór
út. Tengingar og meira út frá hinni
alræmdu Ringó-sýningu sem ég var
með í vor í Kling og Bang.“
jakob@dv.is
Rúsínustelpurnar Eittþeirra tæplega 20 verka sem Jón Óskargerði úti í Kína.