Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Síða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Síða 63
DV Síðasten ekkisíst LAUCARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 63 Kókaín - og amfetamínmálið sem nú er til rannsóknar hjá lögreglu er samkvæmt heimildum DV aðeins toppurinn af enn stærri isjaka sem á eftir að koma i ljós. Málið skekur Eimskip enda leikur eitt af skipum félagsins aðalhlutverk í innflutn- ingi á mesta magni flkniefna sem rekið hefur á fjörur yfirvalda. Sonnr starfsmanns Eimskips í gæslu í Detlifossmálinu „Það hefur engum hér verið sagt upp í tengslum við rannsdkn þessa máls,“ segir Höskuldur Ólafsson, aðstoðarforstjóri Eim- skips, um fíkniefnamálið sem nú skekur fyrirtækið eftir að upp komst að Dettifoss, eitt af skipum félagsins, hefur í tvígang verið notað til að smygla kókaíni og öðrum eiturlyfjum til landsins. Svo alvarlegum augum er málið litið innan Eimskips að málið hefur alfarið verið látið inn á borð aðstoðarforstjórans. Fjórir einstaklingar, þrír karl- menn og ein kona, sitja nú í gæslu- varðhaldi á Litla Hrauni og tveir ís- lendingar að auki í fangelsi í Rotter- dam í Hollandi. Samkvæmt heimild- um DV er fíkniefnainnflutningur- inn, sem nú hefur komist upp um, aðeins toppurinn af ísjaka í máli sem teygir anga sína víða. Einn þeirra sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald á dögunum heitir Hinrik Jóhannsson. Hann var hand- tekinn í Vestmannaeyjum enda hafði stór LSD-sending verið stíluð á nafn hans. Hinrik hefur verið bú- settur í Vestmannaeyjum um árabil og ekki stundað fasta vinnu. Faðir Hinriks hefur um áratuga skeið ver- ið starfsmaður Eimskips og starfar þar enn. Lengst af var hann háseti á skipum félagsins en eftir slys sem hann lenti í í Færeyjum fyrir Faöirinn starfar á gámasvæði Eimskips í Sund- höfn en forsvarsmenn félagsins telja afog frá að hann tengist á nokkurn hátt málinu þótt sonur hans hafi ratað íþá ógæfu sem raun ber vitni. nokkrum árum var hann færður og fékk starf í landi. „Ég svara engum spurning- um um son minn eða einkalíf/' sagði faðir Hinriks í samtali við DV í gær þegar hann var inntur eftir afdrifum sonar síns og hugsanlegum tengslum við starf hans hjá Eimskip. Faðirinn starfar á gámasvæði Eim- skips í Sundhöfn en forsvarsmenn félags- ins telja af og frá að hann tengist á nokkurn hátt mál- inu þó sonur hans hafi ratað í þá ógæfu sem raun ber vitni. til í fangelsi í Hollandi sitja þeir Óli Haukur Valtýsson og Arsæll Snorrason í gæsluvaiðhaldi. Iiklegt er að kraíist verði framsals á Óla Hauki en Arsæll var gestkomandi á heimili hans í Rotterdam þegar lög- reglan þar í borglét til skar- arskriða Áður hafði Ársæll Snorrason verið ifam- seldur hingað til lands í tengslum við hvarfið á Valgeiri Víðissyni þar sem hann lá undir grun að vera valdur að hvarfi hans og jafnvel dauða Ár- sæll fékk síðar bætur ftá ís- lenska rikinu fyrir umrætt inngrip í líf sitt. Höskuldur Ólafsson Enginn verið rekinn frá Eimskip vegna nýja fíkniefnamálsins, segir að- stoðarforstjóri skipafélagsins. Aðalmeðferð í máli Odds Jónassonar sem réðst á Fannar Ólafsson körfuboltamann Oddur pípari iðrast fyrir dómi „Oddur er búinn að játa og iðr- ast mjög," segir Lárentsínus Krist- jánsson lögmaður Odds Jónassonar sem réðst hrottalega á körfubolta- manninn knáa Fannar Ólafsson eft- ir að Keflavíkurliðið bar sigurorð af Njarðvík í vetur. Aðalmeðferð var í málinu fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur í gær þar sem Oddur sagðist iðrast. Oddur, sem er kallaður Oddur pípari vegna starfs síns, mislíkaði úrslitin. Hann braut glas á höfði Fannars Ólafssonar þannig að æðar fóru í sundur, sauma þurfti 40 spor og Fannar missti tvo og hálfan lítra af blóði. Árásin er talin mjög alvarleg þar sem Oddur pípari notaði glas sem vopn. Því sækir ríkissaksóknari málið en refsing við árás sem þess- ari getur numið allt að átta árum í fangelsi. f þessu máli liggur hins vegar fyrir skýlaus játning Odds á atburðinum. Hann hefur bætt það tjón sem hann olli og segist iðrast mjög gerða sinna. Búast má við að Oddur fái um 6 mánaða dóm þar af þrjá mánuði skilorðsbundna. Fannar sagði í viðtali við DV þegar málið kom upp að hann hefði verið á Stapanum að fagna. Oddur hefði vikið sér að honum og reynt að æsa hann upp. Átök hefðu brot- ist út og á endanum hefði hann Ieg- ið á gólfinu þar sem liðið hefði yfir hann. „Það fóru tvær eða þrjár æðar í sundur og ég missti svo mikið blóð að það leið yfir mig. Þetta var eins og í sláturhúsi - blóðið flaut um allt gólf," sagði Fannar sem fékk á dög- unum samning við grískt körfu- boltalið. Ekki náðist í Odd pípara vegna málsins. simon@dv.is Fannar Ólafsson körfubolta- maður Varð fyrir tilefnislausri árás af hendi Odds pípara. Stal bíl stjúpunnar Rúmlega tvítug stúlka sem stal í fyrrasumar bíl stjúpu sinnar sem var á ferðalagi með föður hennar hefur verið dæmd í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi. Auk þess að hafa stolið bílnum á meðan fólkið var í Portúgal var stúlkan sakfelld fyrir aka próflaus og fyrir að taka fram úr þar sem óbrotin lína er á Njarðvíkurbraut. Stúlkan sagðist hafa fengið leyfi föður síns til að taka bílinn en það kannað- ist hvorki hann né stjúpan við. Stúlkan hefur hlotið skilorðs- bundna fangelsidóma áður. Ekkert samúðar- verkfall „Það voru 15 sem sögðu nei við samúðarverkfalli og einn miði var auður," sagði Margrét Hali- dórsdóttir trúnaðarmaður kenn- ara við Landakotsskóla en kosið var um málið á mánudag. „Landakotsskóli er sjálfseignar- stofiiun innan kaþólsku kirkjunn- ar. Einkaskólar fá minni fjárveit- ingu ffá Reykjavfkurborg en aðrir og hafa verið í fjárhagsörðugleik- um fyrir vikið. Það er að öllum líkindum ástæðan fyrir því að við förum ekki í verkfall. Við höfum fulla samúð með kennurum." Halldór til Parísar HalldórÁs- grímsson forsæt- isráðherra opnar viðamikla ís- landskynningu í París á mánudag- inn en á þessari kynningu verða fjölmargir at- burðir á sviði vísinda, menningar og lista. Kynningin er skipulögð sameiginlega af ff önskum og ís- lenskum stjórnvöldum með öfl- úgum stuðningi fjölmargra ís- lenskra og franskra fyrirtækja. Sama dag mun Halldór Ásgríms- son einnig eiga fund með Jean- Pierre Raffarin forsætisráðherra Frakklands MIÐSTOÐ SIMENNTUNAR Undirbun. fyrir samræmd próf Danska Enska Stærdfrædi íslenska Tungumál Isl. f. útlendinga • lcelandic f. foreigners Þýska Enska Spænska Italska Franska Russneska Hollenska Danska Norska Sænska Rettritun - málfr. Matreiðsla Að elda fisk og villibrað með Rúnari Marvins. Smáréttaveisla Grænn kostur Danskt smurbrauð Handverk og listir Tréutskurður Tálgunamskeið Eldsmiði Grafik í Hafharfirði Skartgripagerð Glerskurður Glerbræðsla Trélitir & blyantur Portfolio Teikning Olíumalun Myndlist a inorgnana Vatnslitir. akríl, pastcl krít, kol, olia o.fl. Mosaik Skrautritun Sauinanamskeið Crazy quilt Fatasaumur Jólanámskeið Opið saumanámsk. Ullarþæfing Heilsa, útlit, hreysti Forðun - NO NAME Jóga Asmundur Gunnl. Stafaganga Nuddnamskeið Svæðanudd Sjálfsvörn f. konur Sjálfsvörn f. byrj. Tónlist Blokkflauta - byrjendur Songnám • einkatimar Hljómborð Fiðla Harmonikka Klassískur gítar Rafgítar Þjoðlagagítar Tölvur, rekstur og bokhald Stofnun & rekstur smafyrirtækja Mbs - Navision bókh. Autocad 2005- Grunnur Autocad 2005-Framh. Autocad 2005 og 3D Studio 6 Bloggnamskeið Stafrænar myndavclar Word og Excel Internetið Almennt tölvunam ■ Eldri borgarar Alm. tölvunám á morgnana- Eldri borg. Ýmis námskeið Konur taka til niáls Brigde Garðahónnun skipulag Islenskar lækningajurtir Fyrir dýraeigendur Fluguhnýtingar Flugukost Heimur Tarotsins Upptökuvelin Notkun kennslutækja Vopn & veiðar Skotskólinn Leiklistarnám Danslistarnám Songlistarnam Dagmæðranámskeið Prófaáfangar í framhaldsskóla Eftirtaldir afangar fast metnir til eininga með þvi að Ijuka profi Spænska 103 og 303 Islenska 102 Enska 102 Enska 202 Stærðfræði 103 FJölRjreytt úrval námskeiða - Skráning í síma 585-5860

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.