Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1931, Blaðsíða 24
GANGUR TUNLG8 OG SÓLAR A Í8LAND1.
í þriöja dálki hvers mánaðar, sem hefir yíirskriftina »t í li« (tungl
í hásuðri), og i töblunni á blaðsiðu (17) er sýnt, hvað klukkan er
eftir islenzkum meðaltíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri
í Reykjavik. En vilji menn vita, hvað klukkan sé eftir íslenzkum
meðaltíma, þegar tunglið eða sólin eru í hásuðri á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »Iengdarleiðréttingu«
á Reykjavikurtölunni. Verður hún — 4 minútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 mín. fyrir
livert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík. T. d. er
Raufarhöfn ura sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 mín. og 5. júlí er sól í hásuðri frá
Raufarhöfn þess vegna kl. 12 C8. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
íirði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er því tungl i hásuðri frá Flatey
kl. 11 53 e. m. (11 49 + 4 mín. = 11 53).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur i almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl í hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er liún einnig komin undir sólarganginum i Reykjavík. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig,
norðar og sunnar en Reykjavik, þegar sólargangurinu í Rvik stendur
á lieilli stundu. Leiðréttingin er pósitif (+), þegar sólargangurinn
lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólarlagsins i Rvik,
en dregin frá sólaruppkomutímanum, nema breiddarleiðréttingin sé
negatíf (—), þá er það öfugt.
Dæmi: Sólargangur 6. maí á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 2*/a stigi norðar en Rvik.
Penna dag er sólargangur í Reykjavík 17 st. 13 mín. Breiddar-
leiðrétling töblunnar fyrir 2*/a slig norður og sólargang 17 st. er + 23
mín. en fyrir 18 st. + 30 mín. og fyrir 17 st. 13 mín. verður breiddar-
leiðréttingin þvi + 25 mín. Lengdarleiðréttingin er — 24 min.
í Reykjavik...........su. 3 49 sl. 9 02
Breiddarleiðrélting . —25 +25
Lengdarleiðrétting . — 24________— 24
A Raufarhöfn .... su. 3 00 sl. 9 03
Annað dæmi: Sólargangur 18. nóv. í Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stigi vestar og l1/* stigi norðar en Rvík. Sólargangur í Reykjavík
er 6 st. 11 min.
í Reykjavík...........su. 9 07 sl. 3 18
Breiddarleiðrétting . +13 — 13
Lengdarleiðrélting . + 4 + 4
í Flatey..............su. 9 24 sl. 3 09
(22)