Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1931, Blaðsíða 80
bæta fyrir þig; er það betra en leggja þetta til laga,
pg mun þá eigi heldur sagt, að eg hafi þig æstan til
ófriðar; en sýslumaður ætlar mér ekki gott, því að
ótryggt er með oss; og hefir hann nú um ttma verið
fár til min, og vil eg því að sinni vera afskiptalaus
af máli þínu, að öðru en því, er nú sagði eg þér«.
Húskarl þakkar honum, en segir þó sem áður, að
ekki hyggur hann gott til komu sinnar á þingið. En
prestur bað hann öðru vísi ætla og kvíða ekki, fyrr
en á dytti. Og skildi svo tal þeirra að því sinni.
Kap. 8. Nú líður að þingdegi. Og sem hann er kominn,
ríða þeir Filpus og prestur upp að Velli. Er þá Sæmund-
ur bóndi þar fyrir og margir menn aðrir, sem þang-
að voru stefndir til vitnisburðar, en fóveti á að setja
réttinn um daginn, því að sýslumaður var sjálfur
um það leyti veikur mjög; lá hann þenna dag í
rúminu, þungt haldinn, svo að hann hafði varla
mátt til að snúa sér, og var hann þó harður maður
og engin kveifa að dönskum manni. Mátti hann því
ekki gegna málum manna að svo komnu, en fóveti
gekkst þá fyrir öllu, sem hann væri sjálfur með
fullum myndugleika. En sem rétturinn var settur,
leitar hann um sættir milli Sæmundar bónda og
Filpusar. Gengur það mjög tregt í fyrstu, með því
að Sæmundur var ekki smálátur og vildi enn halda
þvi sama fram sem hann áður að Stórólfshvoli hafði
boðið Filpusi, en þessum þókti það afdæmingur, er
hann hafði eigi unnið verkið af ásetningi. Gengur
lítt saman með þeim, og leitar þó fóveti allra meðala
til að slétta þessi mál með þeim. Pó kemur þar um
síðir að áliðnum degi, að nokkuð linast harðfylgið
á báðar síður, og semst það með þeim, að Filpus
borgi fyrir áverbann 20 álnir, fyrir holdfali aðrar 20,
fyrir nytfall enar þriðju 20 álnir og í græðslulaun
enn 20 álnir; þar að auk lúki hann Sæmundi 5 ríkis-
dali fyrir allt það ómak, er hann hefir haft og ferða-
lög um sýsluna vegna máis þessa, er hann hefði
(76)