Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1931, Blaðsíða 67
— t þ. m. dó Dóróthea Stefánsdóttir ekkja á Siglu-
firði. — Hvarf i Grimsby háseti af botnvörpungi,
Belgaum. Haldið að hann hafi drukknað i höfn-
inni þar. Hét Bórður Sveinsson og var frá Rvik.
— í þ. m., eða í nóv., drukknaði maður í Akur-
eyrarhöfn. Hét Friðbjörn Sigurðsson og var
aldraður.
Nóv. 1. Kristján Arnason i Syðri-Vík í Vopnafirði,
fyrrum bóndi á Skjalþingsstöðum, 75 ára.
— 4. Páll Bjarnason lögfræðingur í Rvík, fæddur ‘s/i
1890.
— 5. Lenti skipstjórinn á dýpkunarskipinu Ida, í
Borgarnesi, í vindu skipsins og meiddist svo að
hann dó af eftir örstulta stund.
— 7. Við fermingu fiskiskips á Mjóafirði féll lestar-
opsþverbiti í höfuð manni, og dó maðurinn þegar.
— 8. Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja í Rvík.
— 9.? Drukknaði maður á Akureyri.
— 11. Guðmundur Finnsson bóndi í Pétursey í Mýr-
dal, faeddur s9/« 1871. Dó í Rvík.
— 12. Bogi Thorarensen Jónsson Melsted sagnfræð-
ingur í Khöfn, fæddur 4/s 1860.
— 13. Ármann Pórðarson smiður i Lundar i Mani-
toba, fæddur s'/i» 1868.
— 14. Ólafur Ólafsson Rósenkranz i Rvík, fyrrum
leikfimiskennari, fæddur se/c 1852. — Drukknaði á
Halamiði stýrimaður á botnvörpungi, Hafstein.
Hét Haraldur Pálsson og var frá Rvík, 32 ára,
— 13. Eiinborg P. Theódórs húsfreyja í Stóra-Holti
í Dalasýslu. — Guðrún Gísladóttir ekkja í Leirár-
görðum í Leirársveit, hált á níræðisaldri.
— 16. Guðmundur Jónsson dyravörður í Rvík, fædd-
ur ‘°/? 1858. — Guðný Jónsdóttir í Pykkvabæjar-
ldaustri, ekkja frá Hlíð í Skaftártungu, fædd ‘8/n
1840.
— 18. Steinunn Skúladóttir húsfreyja i Rvík, fædd
Thorarensen, fædd 14/» 1855.
(63)