Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2004, Qupperneq 20
GRAFÍSKA SMIÐJAN EHF. 1204
heima
ármúli 23
Swarovski kristali
loftljós: 22.700 borðlampi: 24.500
loftljós: 62.900 borðlampi: 42.800
13.700
29.900
tilboöi
leöursófi:98.000 / glerborö: 39.500 / motta: 79.800
1 D8 reykjavík 568 4242
mán - fös 11 .OO - 1 8.00
laugard 11.00 - 16.00
Maggi Jóns
„Síminn CSM!2
Jói Stóri „Það
geta ekki allir
hamborgarhrygg■
ir orðið..."
Þorvaldur Þor-
steins .„Mjólk
ergóð!"
Steinn Armann
„Allirkettirvilja
Pússí!"
„Já, það er rétt. Það er ég sem
heyrist. Ég er nú aðallega að lesa
fyrir JPV eins og venjulega. Þetta
getur verið dramatískt á köflum,“
segir Jón Atli Jónasson leikskáld,
rödd sannleikans og jólaröddin í
ár.
Nú er tími auglýsinganna, þær
eiga sviðið, og hafa lagt undir sig
sjónvarpsdagskrána að verulegu
leyti. Góður leikur fyrir fjölskyldur
á síðkvöldum gæti verið sá að fara
í keppni: Hver á röddina sem les
auglýsingarnar? Jón Atli er drjúgur
á því sviðinu og segist alltaf vera
að lesa fyrir einhver fyrirtæki. „Já,
þetta er fínt aukadjobb að hafa,“
segir Jón Atli svalur og seiðandi.
Blaðamaður DV keypti allt sem
hann sagði.
Jón Atli segir þetta starf af
genatískum toga. Afabróðir hans
er enginn annar en Pétur Péturs-
son þulur hjá Ríkisútvarpinu. For-
eldrar Jóns Atla störfuðu jafnframt
hjá RÚV: Jónas „stýrimaður" Guð-
mundsson var lengi vel með út-
varpsþætti og móðir hans, Jónína
H. Jónsdóttir, var með barnatím-
ann. Sjálfur á Jón Atli að baki lang-
an feril í útvarpi.
„Ég byrjaði á Aðalstöðinni en
þá var Xið að verða til. Ég var þar í
nokkur ár og það var ansi gaman.
Og eitt sinn var ég að leysa af á
einhverjum næturvöktum hjá
RÚV. Þá fékk ég að segja þessa
mögnuðu setningu: „Útvarp
Reykjavík”. Það hlýtur að teljast
toppurinn á mínum útvarpsferli."
Auglýsingalesturinn kom ekki
til fyrr en Jón Atli hætti í útvarpi
eða fyrir um sex árum. „Skemmti-
legast er þegar ég hitti Magga
Jóns, sem les mikið auglýsingar.
Þá segir hann: „Síminn GSM!“ Og
ég svara: „Tal frelsi!“ Þá segir
hann: „Tryggingamiðstöðin, þar
sem tryggingar snúast um fólk!"
Og ég segi: „Vís - þegar mest á
reynir!"... já, förum í svona battl
eða einvígi."
Að sögn Jóns Atla dreymir alla
auglýsingalesara um að lesa inn á
dýralífsmyndir enda er fyrirmynd
þeirra flestra Gylfi Pálsson. „Eitt
það magnaðasta sem ég hef lent í
var að rekast á hann í bakaríi og
heyra hann segja: „Hvað kostar
Flone-brauðið hjá þér? Já. Láttu
mig hafa tvö.“
Af öðrum auglýsingalesurum
er Egill Ólafsson „Toyota - tákn
um gæði,“ kóngurinn að mati
Jóns Atla. „Maggi Jóns er prinsinn
og ég er furstinn. Svo eru menn
eins og Þorvaldur Þorsteins:
„Mjólk er góð", Jói stóri: „Það geta
ekki allir hamborgarhryggir orðið
Nóatúnshambo rgarhryggir. “
Hilmir Snær: „Magnaður sagna-
maður" og Steinn Ármann: „Allir
kettir vilja Pússí". Þetta er meist-
aradeildin eins ömurlega og það
hljómar."
jakob@dv.is
Jón Atli Erjólaröddin ídr, les allar
fll l/lli/cir>/t/-lr (\iri~ /r»l /_/
-----.... jviuivuuiii i ur, les auar
auglýsingar fyrirJPVsem keyrir sin-
ar auglýsingar stíft Idesember. Jón
Atli /ÍV>W'/' l/innt- /nA ___/ j _ x
uuyiyjmyui iun / aesemoer.Jón I v •
Atlióekki langt aö sækja raddgæð-
in - afabróðir hans er enginn annar | / >! • ,>'
Egill Ólafsson
„Toyota - tókn
um gæði!“
Hilmir Snær
„Magnaður
sagnamaður!