Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2004, Síða 64
64 LAUCARDAGUR 18. DESEMBER 2004
Sport DV
Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er ósátt við vinnu-
brögð forystu KSÍ og landsliðsnefndar kvenna. Hún kvartar ekki yfir því að samingurinn við hana hafi
ekki verið endurnýjaður en krefur þá sem koma að málinu um heiðarleg og fagmannleg vinnubrögð.
Fékk MýtiNgsstungu
í MiU Irá KSI...
Fólk, sem kepptist við að lýsa yfir
stuðningi við mig sýndi að það voru
innantóm orð og mér líður eins og
ég hafi fengið rýting í bakið frá KSÍ.
^,Ég var búin að hafa það á tilfinningunni nokkuð lengi að
samningurinn yrði ekki endumýjaður. Ég var búin að ganga á eftir
svömm frá forystu sambandsins um framhaldið enda var ég
ákveðin í því að halda áfram með liðið ef það væri gagnkvæmur
vilji. Mér var hins vegar ekki svarað fyrr en fyrir rúmri viku og þá
eftir að ég hafði í tvígang beðið um fund með Eggerti Magnússyni."
Svona lýsir Helena Ólafsdóttir,
fyrrverandi þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspymu, sam-
skiptum sínum við forystu KSÍ í
aðdraganda þess að samningur
hennar var ekki endumýjaður.
Helena segist í sjáifu sér ekki vera
svekkt yfir að hafa ekki fengið áfram-
haldandi samning en furðar sig á
baknagi og óheiðarleika sem við-
gengst hjá forystumönnum KSÍ.
„Ég er alin upp við það að vera
hrein og bein og segja tm'nar skoðanir
umbúðalaust. Það virðist hins vegar
ekki vera samskiptamáti sem tíðkast
hjá KSÍ og það er ég ósátt við. Ég var
dregin á asnaeyrunum ffam á síðasta
dag og það svíður. Fólk, sem kepptist
við að lýsa yfir stuðningi við mig sýndi
að það vom innantóm orð og mér
h'ður eins og ég hafi fengið rýting í
bakið ffá KSÍ,“ sagði Helena sár og
svekkt yfir framkomu KSÍ.
Hún bendir á að allt önnur
vinnubrögð hafi verið viðhöfð í
nágrannalöndunum Danmörku og
Noregi þar sem samningar hafi heldur
ekki verið endumýjaðir við þjáifarana.
„Eggert hefur lýst því yfir að hann
beri sig saman við hin Norðurlöndin
hvað varðar árangur og vinnubrögð
en það var þó ekki raunin í þessu máli.
Það var ljóst fyrr á þessu ári og hvorki
danski né norski þjálfarinn myndu
halda áfram með sín lið. Þeim var
tilkynnt það með góðum fyrirvara og
allir gátu borið höfuðið hátt að lokum.
Hér þurfti ég að grát-
svör og fólk getur sjálft
dæmt um hvor leiðin er
fagmannlegri.“
Samþykkti ekki
afsökunar-
beiðnina
Helena lenti upp
kant við forystu KSI
í sumar þegar hún
gagnrýndi skipt-
ingu verðlaunafjár
í Landsbanka-
deildum karla og
kvenna í Kast-
ljósþætti daginn
Helena
Ólafsdóttir Sárog
svekkt útí framkomu
forystu Knattspyrnu-
sambands Islands
sem hún telur að hafi
stungið sig í bakið með
rýtingi. Hún gagn-
rýnir vinnubrögð
sambandsins og
segir metnaðinn
fyrirkvenna-
knattspyrnu
vera meira í orði
en á borði. Hún
segist jafnvel
vera að íhuga á
hætta að þjáifa
ensegirþóað
reynslan afenda-
tokunum hjá KSl
hafi ekkert með það
að gera.
DV-mynd Róbert
Það segir sig sjálft að hún hefur ansi mikil völd
þegar kemur að kvennaknattspyrnunni. Hún
er eina konan í stjórn KSÍ og ég hélt að hún
myndistyðja mig afheilindum... seinna frétti
ég að hún hefði gengið á milli herbergja sama
dag og síðasti leikurinn gegn Noregi fór fram
og spurt þær stelpur, sem ekki voru í byrjunar-
liðinu hvort þær ætluðu virkilega að sætta sig
við þetta.
Þú getur komið í veg fyrir að barnið þitt fari í hitt
liðið. Við eigum mikið úrval af búningum í settum
fyrir minnstu bðmin á enn betra verði.
Jói útherji
Ármúla 36 • 108 Reykjavík
s. 588 1560 • www.joiutherji.is
Ét
KB BANKI
Taktu þátt I jólaleik Jóa útherja. Fjöldi glæsilegra vinninga dregnir út alla fostudaga
á gkonrokk hja Valfy Bjrni._______Nánari uppl um yinninga á www,joiutherÍ!,.is__________
leik íslands og Frakklands 2. júní.
Helena var tekin á teppið af Eggerti
Magnússyni, formanni KSÍ, og Geir
Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra
sambandsins, sem lásu henni
lífsreglumar.
„Þeir kölluðu mig á fund rúmum
þremur tímum fyrir landsleikinn
gegn Fröklcum og gerðu mér ljóst að
svona framkoma yrði ekki hðin. Þeir
afhentu mér afsölcunarbeiðni frá mér
og KSÍ sem ég átti að lesa upp í
fjölmiðlum eftir leikinn ef ég fengi
tækifæri til. Ég fékk aldrei tækifæri til
þess enda tapaðist leikurinn og þá
greip sambandið til þess ráðs að birta
afsökunarbeiðnina á heimasíðu
sinni að mér forspurðri. Ég hafði
aldrei samþykkt þessa afsökunar-
beiðni enda var ég alls ekki að
gagnrýna Landsbankann þegar ég
talaði um misskiptingu verðlauna-
fjárins í deildunum. Það var allan
tímann vitað að það var KSÍ sem réð
ferðinni í þeim efnum. Lands-
bankinn hefur staðið frábærlega við
bakið á knattspymunni og á allar
þakkir skilið. Eg leit hins vegar á
þetta þannig að það hefði skotið
verulega skökku við ef ég hefði ekki
sagt neitt í þessu máli. Ég er fulitrúi
r