Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2004, Side 70
70 LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004
Fréttir DV
■Þegar körfukjúklingur var fínn matur...
Fyrir mörgum árum kom út bók
sem hét Á matarslóðum. Skáld í
bænum sem ég átti samtal við taldi
þetta afar vondan titil; maður sæi
fyrir sér mann sem rekur sig í gegn-
um borgir Evrópu og étur upp úr
öskutunnum. Síðan þá hefur matar-
slóðunum fjölgað mikið. Engin sjón-
varpsstöð er svo aum að hún bjóði
ekki upp á marga matarþætti; í
fréttatengdum útsendingum eru
%iatreiðslumenn gestir - það er
alltaf einhver að elda í bakgrunnin-
um og svo er sest yfir krásirnar. Það
eru meira að segja til heilar sjón-
varpsstöðvar sem eru eingöngu
helgaðar mat.
Auglýsingabann
Samfylkingarþingmenn leggja
fram tillögu um að banna að auglýsa
óhollan mat - sætan og feitan - þeg-
ar böm em vakandi. í þessu felst
hugsjónin um að ala þegnana rétt
upp, að reka samfélagið eins og
Egill Helgason
skrifar um sósur
og sitthvað fleira.
Laugardagskjallari
heimili þar sem er mamma sem
aldrei sefur og allt veit betur. Þessi
þráður er sterkur í jafnaðarstefn-
unni og ekki síður meðal femínist-
anna sem koma úr Kvennalistanum
gamla. Flestum verður á að hlæja að
þessu - þetta hljómar eins og grín.
Líkt og þingmennirnir séu að skop-
stæla sjálfa sig. Á bara að banna aug-
lýsingar ffá McDonald’s eða á líka að
meina Tomma að auglýsa góðu
hamborgarana sem fást í Hamborg-
arabúllunni?
Hefur fólk engan klassa?
Hvar á að draga mörkin? Ef menn
Efmenn ætluðu að vera sjálfum sér sam-
kvæmir væri kannski ástæða til að setja stórar
Xiðvaranir á öll sjónvarpstæki heimsins: Hér
streymir út óhollusta, ofbeldi, ómennska,
þetta mun leiða til offítu, andlegs doða, þung-
lyndis - jafnvel ótímabærs dauða.
ætluðu að vera sjálfum sér sam-
kvæmir væri kannski ástæða til að
setja stórar viðvaranir á öll sjón-
varpstæki heimsins: Hér streymir út
óhollusta, ofbeldi, ómennska, þetta
mun leiða til offitu, andlegs doða,
þunglyndis - jafnvel ótímabærs
dauða.
Mjög hefur heimurinn breyst á
stuttum tíma. í einhverju jólablað-
inu - fullu af gourmetfæðu -
var ég að lesa viðtal við ein-
hvern sem ég man ekki hver
er. Viðkomandi var að rifja
það upp að þegar hann var
lítill hefði verið tómatsúpa
með eggi á borðum á jól-
unum. Manni fannst
þetta hálf brjóstumkenn-
anlegt - hefur fólk engan
klassa?
Mamma fékk körfu-
kjúkling
En svo fór ég að rifja
upp að hafa ekið um bæ-
inn með fjölskyldu minni -
þetta var sirka 1970 og við
sjálfsagt ennþá á skodanum -
í leit að Heinz fremur en
Campbell uxahalasúpu. Það var
semsagt dósasúpa á jólunum -
gourmetmennskan fólst í muninum
á Heinz og Campbells.
Fjölskyldan fór í Naustið að
borða í hádeginu á sunnudegi og
Sku Digita/
Tilbodspakki 1
og heimurinn er þinn
hátt í 300 sjórwarpsrásir f DVD my ndgædum
og á milli 40*50 útvarpsrásir f CD gædum
Fullkomin Panasonic Digibox TU-DSB50
sem er besti móttakarinn á markaðinum í dag.
Diskursem er 1 metri.
Móttökunemi fyrir disk (LNB).
Veggfesting.
Tilboðsverð
aðeins 69.900
BOLTINNIBEINNIFYRIR ALLAISLENDINGA
Tilbodspakki 2
ft.
Loksins, loksins á Íslandí!
Núgeturþúho(fláanagervð«iattarásogtei(iöuppaflraáSky+Doi>yÐigilal.þúge(urhafflábesnaúlsendnguogsettá
pásu þegar að þér hertar á Sky+ DofcyOigitaL Þú þarfl eidd mymfcandstælá 8 a9 taka upp gervðmattarásir þw' það er
innbyggðuríöGharðurdiskuriSky+Dobymótlakaíaruinsefflgeíffþaðfyrirþig.
Sty* DofcyDigital móttakarinn er það sem þig heftr aKaf dreyml um.
Fullkomin Page* gervihnattamóttakari -
Að Miú tæknitimartia besti móttakarinn á markaðinum í dag.
Tilboðsverð aðeins
kr. 99.999-
Listaverð kr: 123.700-
Diskursem er 1 metri.
Tvðfaldur móttökunemi fyrir disk (LNB).
UirmfLnrfínm
veggtesvng.
skydigitap
ísland —^
Sóni: 4213333,893 (861, fac 4218844.
Uppiýsingar um áskríflaipakka og
allar aðrar upplýsingar eni að finna á
heimasíðu okkar www.skydigital.is.
VISA
móðir mín fékk sér körfukjúkling.
Það þótti afskaplega fínt - hálfur
kúklingur í bastkörfu. Mátti borða
með puttunum, en samt ekki rífa í
sig, heldur átti að halda pent á lær-
inu með fingurgómunum. Ég sá í
gær að hægt er að kaupa svipaðan
skammt af þessari fæðutegund í
Melabúðinni fyrir 250 krónur.
Lifði á frónkexi
Matarmenningin hérna var
vissulega fábrotin - kannski að
sumu leyti ógeðs-
leg. Kjöt-
boll-
Við næsta borð stað-
næmdist Mathieu hins
vegar og var þar allt
kvöldið. Konan sem
þar sat hófað tala við
hann um sósu, bara
eina tegund afsósu.
Þau héldu áfram að
skeggræða sósuna.
Við fórum út í göngu-
túr, komum aftur og
þá voru þau enn í
hrókasamræðum um
sósuna.
■ ■ - - m m ■■■■■ ■■
www.skydigital. i IS
Og
fars,
brún sósa,
soðin ýsa.
Ég var í sveit
þar sem var á
borðum til skipt-
ist saltkjöt og salt-
fiskur, mjög lítið
nýmeti. Ég lifði á
frónkexi hálft sumar -
var farinn að fá ranghug-
myndir af næringarskorti.
Nú er farið að tala um
nýja norræna eldhúsið - það
er markaðssett úti um allan
heim sem tákn um ferskleika
og gott hráefni. Meira að segja í
Noregi hefur orðið matarbylt-
ing. Þar var til skamms tíma
versti matur í heimi - líklega verri
en á íslandi. Norðmenn borðuðu
kvöldmatinn klukkan fjögur á dag-
inn, annað hvort hrökkbrauð eða
ólystugt jukk, hnoðað saman úr
hakki, sem þeir kalla karbónaði. Síð-
ast þegar ég snæddi á veitingahúsi í
Noregi skeit mávur í pitsuna hjá mér
- gúanóið kom fljótandi ofan úr há-
loftunum þar sem ég sat á veitinga-
húsi við höfnina í Osló. En það gerði
svosem ekki mikið til - það voru
dósasveppir á pitsunni.
Hvað ég og konan mín vor-
um leiðinleg
Fyrir fáum árum var ég gestur yfir
helgi á sveitahóteli og veitingahúsi í
Provence í Frakklandi - á stað sem
heitir Residence de la Pinéde. Ég get
hiklaust mælt með þessu. Staðurinn
fékk góða umsögn í Gault Millau
matarbiblíunni og eina stjörnu hjá
Michelin. Matreiðslumeistarinn var
ungur maður, síðhærður en farinn
að grána furðu mikið, Xavier
Mathieu er nafit hans.
Eftir mikla gourmetmáltíð, sex
rétti að minnsta kosti, gekk hann
meðal gestanna og ræddi við þá. Við
vorum jú öll stödd í húsi langt uppi í
sveit. Mathieu komst fljótt að því að
ég og kona mín vorum fullkomlega
óintressant, höfðum sama og ekkert
til málanna að leggja - lukum bara
lofsorði á matinn með einhverjum
almennum, illa völdum orðum.
Talað um sósu, sósu ...
Við næsta borð staðnæmdist
Mathieu hins vegar og var þar allt
kvöldið. Konan sem þar sat hóf að
tala við hann um sósu, bara eina
tegund af sósu. Þau héldu áffarn að
skeggræða sósuna. Við fórum út í
göngutúr, komum aftur og þá voru
þau enn í hrókasamræðum um sós-
una.
Ég fór að álykta sem svo að
Mathieu væri nú mesti blábjáni sem
ég hefði nokkurn tíma vitað - að
nenna þessu. Svo hugsaði ég aðeins
betur og þóttist sjá að það væri pínu
að-
dáunar-
vert að geta
haldið uppi
svona löngum
samræðum um
svo afmarkað efni -
þóttist skilja að það
útheimti ákveðinn and-
legan aga.
Leiðinn mikli
Nú mætti skrifa langt mál um
leiðann sem gegnsýrir heiminn. Að
annars vegar skuli vera þettta
matarfargan, eilíft snakk um hvað
maður lætur ofan í sig - og svo á
hinum endanum megrunaræðið:
megrunarbækurnar, megrunar-
þættimir, megrunarefnin.
Það er eitthvað geldingslegt við
þetta. Verður lífið þá svona tilgangs-
laust þegar fólk þarf ekki lengur að
hugsa bara um frumþarfir sínar? Eða
á maður að læra að gleðjast yfir
matnum eins og bláma himinsins,
fegurð fjallanna og sólarlaginu.
Samt er einhver tilfinning af synd
sem fylgir allri þessari matarást. Ein
dauðasyndin heitir græðgi: Hún
felst varla í því einu að troða sig út af
mat, heldur líka í öllu umstanginu,
að vera sífellt að hugsa um skrokk-
inn á sér og það sem fer ofan í hann
eða út úr honum.
Átveislan mikla
Manni verður hugsað til kvik-
myndar sem heitir La Grande Bouf-
fe - Átveislan mikla. Hún fjallar um
fjóra miðaldra karlmenn sem leiðist
svo mikið að þeir ákveða að loka sig
inni í húsi og éta og drekka sig í hel.
En það er auðvitað jafn leiðinlegt og
annað.