Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1994, Síða 51

Freyr - 15.09.1994, Síða 51
Frá vinstrí: Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, Brúnum, Eyjafjarðarsveit; Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, Flugumýrarhvammi og Bjarney Bjarnadóttir, Sveinbjarnargerði. aðarfélags íslands og óska eftir við- ræðum vegna þess vanda sem upp væri kominn vegna atvinnuleysis, samdráttar í framleiðslu og minnk- andi tekna hjá bændum. Oskað var eftir samvinnu við Bún- aðarfélagið um að skipuleggja rekstr- arráðgjöf fyrir bændur í erfiðleikum. Mál þetta var einnig tekið upp á Búnaðarþingi. Þar var einnig sam- þykkt að beina því til landbúnaðar- ráðherra að hann skipaði nefnd til þess að gera könnun á fjárhagsstöðu bænda. Eftir viðræður við Búnaðarfélag Islands var ákveðið að beina því til búnaðarsambandanna að þau tækju að sér leiðbeiningar á sviði rekstrar- ráðgjafar fyrir bændur. Héraðsráðunautar hafi mesta kunnugleika á högum bænda og séu því í flestum tilfellum eðlilegustu ráðgjafar í þessum efnum. Varðandi könnun á fjárhagsstöðu bænda skal tekið fram að þess er vænst að niðurstöður hennar liggi að einhverju leyti fyrir á komandi aðalfundi. 2.6. Tryggingamól. I lok síðasta árs varð mikil um- ræða um gildissvið lögboðinna ábyrgðartrygginga dráttarvéla í framhaldi af dómsúrskurði í héraði í skaðabótamáli sem höfðað var gegn bónda nokkrum og Vátryggingafé- lagi íslands. Umrætt mál snerist um það hvort slys sem varð vegna notk- unar dráttarvélar sem aflgjafa færi- bands á heyhleðsluvagni væri bóta- skylt úr ábyrgðartryggingu dráttar- vélarinnar. Gjaldskrá sú sem lögð er til grundvallar iðgjaldi hinnar lög- boðnu ábyrgðartryggingar byggir á þeirri túlkun að slys sem standa ekki í sambandi við akstur og notkun dráttarvéla sem ökutækja, falli utan gildissviðs þessarar ábyrgðartrygg- ingar. Notkunarhugtakið nái ekki til ýmiss sérbúnaðar, vélbúnaðar er tengdur sé við dráttarvélar, t.d. gröf- ur, heyhleðsluvagna, færibanda, heyblásara o.fl. sem notuð séu óháð notkun dráttarvélarinnar sem öku- tækis. Við það hefur og iðgjalda- ákvörðun verið miðuð. A hinn bóginn hafa tryggingafé- lögin boðið bændum frjálsar ábyrgð- artryggingar. Tilgangur þeirra er að tryggja viðkomandi gegn þeim fjárútlátum sem hann verður fyrir, ef skaðabótakrafa er gerð á hendur honum vegna tjóns sem hann eða starfsmenn hans hafa valdið á mönnum eða munum með saknæm- um hætti. Niðurstaða héraðsdóms í framan- greindu máli varð sú að trygginga- félagið væri bótaskylt vegna um- rædds slyss. Verði niðurstaða Hæstaréttar sú, að slys sem orsakast af notkun drátt- arvéla sem kyrrstæðs aflgjafa við hin ýmsu tæki í landbúnaði, séu bótaskyld úr lögboðinni ábyrgðar- tryggingu dráttarvélarinnar, verða áhrif dómsins þau, að mati trygg- ingafélaganna, að iðgjald fyrir ábyrgðartryggingu dráttarvélar hlýt- ur að stórhækka, þar sem bótasvið tryggingarinnar er þá orðið allt ann- að og meira en það sem nú er lagt til grundvallar við ákvörðun iðgjalda. Á hinn bóginn hlýtur að teljast eðli- legt að iðgjöld frjálsra ábyrgðar- trygginga lækki að sama skapi. Á fundi stjómar 19. janúar voru þessi mál tekin til umræðu. Taldi stjómin Ijóst að göt væru milli trygginga þannig að sum tilvik falli ekki undir þær tryggingar sem bændur eigi kost á. Nauðsynlegt væri að skilgreina tryggingaþörf bænda og hvaða réttindi fylgdu þeim tryggingum sem þeir eiga kost á. Gunnnlaugur Júlíusson hagfræð- ingur Stéttarsambandsins hefur und- anfarið unnið að samantekt um tryggingamál landbúnaðarins og er að því stefnt að hún birtist sem fylgirit með októberhefti Freys. Þess er vænst að samantekt hag- fræðingsins geti hjálpað einstökum bændum að átta sig á því hvaða lág- marks tryggingavernd er þeim nauðsynleg. 2.7. Námsstyrkir til framhaldsskólanema. Frá árinu 1990 hafa verið í gildi lög um jöfnun á fjárhagslegum að- stöðumun nemenda á framhalds- skólastigi. Framlög á fjárlögum til þessa verkefnis hafa hækkað lítið á undan- fömum árum. Árið 1990 voru ætl- aðar 85,2 milljónir króna til verk- efnisins en kr. 98,2 milljónir á fjár- lögum þessa árs. Námsmenn eiga rétt á styrk ef þeir verða, að mati úthlutunamefndar að vista sig utan lögheimilis eða bera verulegan kostnað af því að sækja nám frá lögheimili. Styrkir geta verið þrenns konar: Ferðastyrkir, sem geta numið allt að kr. 27.000 á ári, fæðisstyrkir, kr. 36.000 og húsnæðisstyrkir kr. 14.000. Mál þetta kom til umræðu innan stjómar Stéttarsambandsins á sl. vetri og í aprílmánuði var eftirfar- 18*9* ■ FREYR 643
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.