Freyr

Volume

Freyr - 01.07.2000, Page 20

Freyr - 01.07.2000, Page 20
nýta þau markvisst við mat á áburð- argjöf næsta trmabil. Varðandi steinefnaþátt heysýnanna er mikil- vægt að skoða eftirfarandi þætti: Niðurstöður fyrri ára, hvort um er að ræða eldri tún eða nýræktartún með t.d. hreinu vallarfoxgrasi, sláttutíma og hvemig dreifmgu bú- fjáráburðar er hagað. Við skoðun á niðurstöðum úr efnagreiningum á grænfóðursýnum er ljóst að kalítalan er oftast veru- lega hærri en miðað er við í viðmið- unargildum fyrir gróffóður. Hér hlýtur að vera ástæða til að endur- skoða samsetningu þess tilbúna áburðar sem mest er notaður á grænfóður (15-15-15). Ráðgjöf út frá jarðvegsegnagreiningum Skipulag ogfjöldi sýna Á undanfömum áratugum hefur verið skipulögð sýnataka á jarðvegi á svæði Búnaðarsambands Suður- lands. Bændum í hverjum hreppi er boðið upp á sýnatöku 4. eða 5. hvert ár. Yfirleitt hafa formenn búnaðarfélaganna skipulagt starfíð í hverjum hreppi, bændumir sjálfir séð um sýnatökuna en Búnaðar- sambandið lagt til tæki og poka til hennar. Niðurstöður hafa undanfar- in ár borist bændum í febrúar eða mars. Hins vegar komu síðustu nið- urstöður liðins árs um 20. janúar, sem er mun fyrr en áður var. Alls fóm um 320 sýni frá Suðurlandi í efnagreiningu síðastliðið ár. Fjöldi sýna á hverjum bæ er á bilinu frá einu upp í það að tekin séu sýni úr hverri spildu. Niðurstöður og framsetning niður- staðna Jarðvegssýni, sem hafa verið tek- in á Suðurlandi undanfarin ár, hafa verið efnagreind, annars vegar á Hvanneyri (sýni úr V-Skaftafells- sýslu og Rangárvallsýslu) og hins vegar á RALA (Ámessýsla). Ekki hefur verið fullt samræmi í því sem mælt hefur verið, þannig hefur kalsíum og magnesíum verið mælt á Hvanneyri, en ekki í sýnum sem farið hafa til RALA. Síðastliðið haust fóm öll hefðbundin jarðvegs- sýni af Suðurlandi í efnagreiningu á Hvanneyri. Fyrir bændur og ráðu- nauta, sem túlka niðurstöður, hlýtur að vera mikilvægt að samræmi sé bæði í aðferðum við greiningu og hvaða efni em greind. Niðurstöðunum hefur verið fylgt eftir með heimsóknum á þá bæi sem sendu sýni eða með fundum í hverjum hreppi þar sem niðurstöð- ur em túlkaðar og metnar. Aburðaráðgjöf útfrá jarðvegsefna- greiningum Hin seinni ár hefur ráðgjöf um áburð stuðst bæði við jarðvegsefna- greiningar og ekki síður niðurstöð- ur heysýna. Varðandi jarðvegssýnin hefur einkum verið horft á sýmstig, fosfór og kalí. Þá hefur kalsíum og magnesíum einnig verið mælt í hluta sýnanna. Með tilkomu forrita við áburðaráætlanir aukast mögu- leikar til að vinna þetta starf á skipulagðan hátt. Hvað má betur fara í þjónustu við búnaðarsamböndin? Víða um land er góður gmnnur að markvissri fóður- og áburðarráð- gjöf til bænda. Sífellt fleiri bændur sjá sér hag í því að taka sýni og yf- irleitt er þetta skipulagt af búnaðar- samböndunum á hverju svæði. Hins vegar má alltaf gera betur til að sýnatakan skili meiri og betri árangri. Hér má nefna eftirtalin atriði: * Efnagreiningar sýnanna þurfa að ganga hratt fyrir sig og niður- stöður heysýna verða að koma áður en innifóðmn hefst. Jarð- vegssýnatakan er yfirleitt að hausti eða þar til frost hamlar sýnatöku, en niðurstöður koma oft ekki fyrr en í febrúar eða mars. Með tilkomu aukinnar samkeppni í sölu áburðar em bændur famir að velta fyrir sér áburðarkaupum mun fyrr en áður var og því nauðsynlegt að hraða allri gmnnvinnslu og má segja að það hafi tekist fyrir síð- asta ár. * Samræming í efnagreiningaað- ferðum er nauðsynleg, ekki síst til að auðvelda samanburð milli ára og milli svæða. * Ákveðin óvissa er ávallt um efnainnihald búfjáráburðar og nýtingu hans. Ástæða er til að fara af stað með athugun á nýt- ingu og efnagreiningum á bú- fjáráburði, t.d. á völdum kúa- búum, til að styrkja gmnninn að áburðarnýtingu búfjáráburðar- ins. * Nauðsynlegt er að unnt sé að lesa niðurstöður efnagreininga beint inn í áburðar- og fóður- áætlunarforrit. Þessar niðurstöð- ur em allar til á tölvutæku formi og því heimskulegt að starfs- menn búnaðarsambanda þurfí að verja miklum tíma í að slá inn niðurstöður í forritin, auk þess sem villuhætta eykst. * Fóðuráætlanir eru ekki nógu markvissar, ekki síst vegna þess að ýmsar forsendur hafa verið vafasamar, t.d. um át á fóðri og um niðurbrot próteins í heyi. * Bændasamtökin og/eða Að- fangaeftirlitið þurfa að koma upplýsingum í auknum mæli til búnaðarsambanda um t.d áburð- artegundir og aðra þætti sem tengjast uppmna og eiginleikum þess áburðar sem er á markaði. * Það sama má segja um kjam- fóðrið. Lágmarkskrafa hlýtur að vera að þar sé samræmi í merk- ingum, t.d. um AAT- og PBV- gildi, hvort menn séu þar að tala um kg fóðurs eða kg þurrefnis. Að lokum Hér á undan hefúr verið lýst í gróf- um dráttum hvemig staðið er að ráðgjöf varðandi heysýni og jarð- vegssýni. Vissa þætti þarf að bæta til að þetta starf skih viðunandi árangri. Áætlanir ber alltaf að líta á sem slíkar, en ekki sem algildan sannleik. Hins vegar gera bændur kröfúr um að vinna á þessu sviði verði skilvirkari en nú er og að því verður að vinna. 20 - FREYR 7/2000

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.