Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2005, Blaðsíða 48

Freyr - 01.06.2005, Blaðsíða 48
VEÐURFAR Áhrif væntanlegra loftslagsbreytinga á landbúnað SEINNI HLUTI IEftir Bjarna E. Guðleifsson, Landbúnaðarháskóla íslands, Möðruvöllum Mynd 1. Áætlaður meðalhiti á íslandi frá landnámi til ársins 2050. Tölur eru frá Veðurstofu íslands, byggðar á sögulegum gögnum og hitamælingum síðustu ár. Örin sýnir væntanlega hitabreytingu frá árinu 2000 til 2050. Hér er birtur seinni hluti greinar Bjarna E. Guðleifssonar um áhrif loftslagsbreytinga á landbúnað. Fyrri hlutinn var birtur í 1. tbl. 2005. Spáð er að árið 2050 hafi meðalhiti á íslandi hækkað um 1,5°C yfir sumarið og 3,0°C yfir vetrartímann en úrkoman aukist um 7,5% að sumrinu og 15% að vetrin- um. Breytingarnar verða sem sagt meiri að vetrinum. Bú- ast má við að sjávarborð hækki um 16 cm. Ekki er hægt að greina neinn örugg- an mun á landshlutum í þessum spádómum. Þetta eru miklar breytingar, meiri en oft hefur verið spáð fyrir ísland. Um tíma héldu menn að draga mundi verulega úr Golfstraumnum og þá mundi jafnvel kólna hér á landi, en nú reikna menn með að haf- straumarnir breytist minna og hægar og því verður hita- aukningin mikil. Á myndinni sést að hitastig er nú á seinni árum að nálgast hitastig við landnám, þegar menn stund- uðu hér kornrækt, og fram til ársins 2050 er spáð að hitastig verði orðið talsvert hærra en þá var. BEIN ÁHRIF LOFTSLAGS- BREYTINGA Á (SLENSKAN LANDBÚNAÐ Áhrif fyrrgreindra loftslagsbreyt- inga á landbúnað eru auðvitað beinust og sýnilegust á plöntu- ræktun hvers konar. Hækkað hitastig og einnig hækkað kol- tvísýringsmagn í andrúmsloftinu eykur víðast vöxt plantna, enda eru bæði hiti og koltvísýringur áhrifamiklir vaxtarþættir. Fóður- ræktun mun verða auðveldari á fslandi með hækkandi hita og auknu koltvísýringsmagni i and- rúmslofti og næringarefni munu fyrst um sinn verða að- gengileg úr jarðvegi með auk- inni rotnun. Heyfengur mun aukast og nýjar fóðurjurtir, svo sem rófur, næpur og vallarrý- gresi, munu verða teknar í notk- un. Stórfelldar kalskemmdir í túnum munu að mestu hverfa og ræktun belgjurta mun verða tryggari og auka möguleika á lífrænni ræktun. Bygguppskera mun verða öruggari og hugsan- lega verða aðrar korntegundir teknar til ræktunar, svo sem hafrar, hveiti og vetrarkorn. Sömuleiðis mun útimatjurta- Á ÍSLANDI Samkeppnisstaða íslensks landbúnaðar mun fremur batna en versna fram til 2050 og íslenskur land- búnaður mun þurfa að aðlagast markaðsvæð- ingu og viðskiptafrelsi umheimsins Bændur og ráðunautar þurfa þegar að bregðast við með breyttum búskap- arháttum Stjórnvöld og rannsókna- menn þurfa að búa land- búnaðinn undir að aðlag- ast væntanlegum breyt- ingum Leita þarf leiða til að draga úr losun gróður- húsalofttegunda í (slensk- um landbúnaði Leggja þarf áherslu á sam- félagslegt gildi landbún- aðar í dreifbýli og hlutverk hans (umhverfisvernd 48 FREYR 06 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.