Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2004, Síða 12

Freyr - 01.04.2004, Síða 12
Gamla fjósið á Egilsstöðum. þarf að vera alveg klárt að sá sem ætlar að fá gott kjöt hann geri það. Ég vil meina að þama hafi ekki bara kjötvinnslumar bragðist okkur bændum, heldur líka verslanimar. Ég eygi þó von um að það fari að rætast úr þessu. Það er farið að vanta kjöt en verðið er ekki farið að koma upp svo að orð sé á gerandi. Sérð þú ekki þá hœttu, ef sam- dráttuv í framboði á nautakjöti heldur áfram, aó innflutningur fari að taka meira og meira yfir þennan markað? Jú, ég held að það sé aðalhætt- an. Það er ástæðan fyrir því að það er nauðsynlegt að þessi búgrein haldi velli. Ef hún verður undir þá eru bændur að henda frá sér þeim verðmætum sem felast í fram- leiðslu nautakjöts. Ég er alveg viss um það að um leið og það fer að vanta nautakjöt þá verður heimtaður innflutning- ur, með kröfu um niðurfellingu á tollum og allt slíkt. Mjólkurframleiðsla á Aust- URLANDI Mjólkurframleiðsla á Austur- landi hefur verið að dragast sam- an. Veldur það ykkur ekki áhyggj- um, t.d. varðandi rekstur samlags- ins á Egilsstöðum? Það er ekkert flókið, við, sem ætlum okkur að vera í mjólkur- framleiðslu, höfum stórar áhyggj- ur af þessu. En lausnin er ekki auðfúndin. Við, sem eftir eram, höfum verið að stækka við okkur og nettóminnkun á mjólk hefur ekki verið svo mikil, en hér eftir höfúm við ekki mikla stækkunar- möguleika, en þó einhverja sumir. Ahyggjuefnið er hins vegar að það á sér stað sáralítil endumýjun í hópnum og næstum því engin. Hvað er mjólk sótt langt í Egils- staði? Suður að Almannaskarði í Homafirði og norður að Smjör- vatnsheiði. Búið á Egilsstöðum er núna rekið af Mjólkurbúi Flóa- manna og það var gæfuspor að sameinast því. Búið gengur mjög vel og allir mjög ánægðir með þetta, ekki síst stjóm Mjólkurbús Flóamanna. I búinu eru fram- leiddar dagvörur af mjólk og síð- an Mozzarellaostur og sú fram- leiðsla hefur verið stóraukin eftir að Flóabúið tók við. Nýi eigand- inn jók sérhæfinguna á búinu og keypti ný tæki og flutti mjólk að beinlínis í þessa framleiðslu. Mozzarellaosturinn er mest notað- ur í pitsugerð. Á síðasta deildarfundi hjá okk- ur var Birgir Guðmundsson, mjólkurbússtjóri MBF, spurður um þessa stöðu, þ.e. hve mikið mjólkin mætti minnka hjá okkur áður en búinu yrðu lokað og hann sagði að þau mörk væru ekki til í þeirra huga ennþá og það stæði ekkert til. Auk þess hefðu þeir möguleika á að ná í mjólk lengra vestur í Hornafirði og flytja aust- ur. Þetta breytir því þó ekki að framleiðendum mun fækka á okk- ar svæði. Það eru þar bú þar sem framleiðsluaðstaðan er orðin úr- elt. Svo era dæmi um jarðir þar sem kvótinn hefur verið seldur en fólkið býr áfram og þar tapast framleiðslumöguleikar. Nýtt mjólkurkúakyn Þú hefur lengi verið fylgjandi innjlutningi á nýju mjólkurkúa- kyni? Það vita allir, sem vilja vita, að ég hef lengi verið yfirlýstur stuðningsmaður þess og ég er ekki laus við það ennþá. Reynd- ar ber ég fulla virðingu fyrir því ef íslensku kýmar eru að fram- leiða mjólk sem er meira virði en mjólk úr innfluttum kúm, þ.e. hvað varðar vörn gegn sykur- sýki. Þetta er hins vegar fyrir hendi í öðrum kynjum og það er hægt að velja til innflutnings með tilliti til þess enda var það gert þegar fósturvísarnir voru valdir í Noregi hér um árið. Ég hefði viljað fá þetta skýrar fram og finnst fádæma vitlaust að ekki var farið í þann innflutning og tilraunastarf sem til stóð fyrir nokkrum árum og búið var að undirbúa. Þá hefði verið hægt að svara ýmsum spurningum í dag 112 - Freyr 3/2004

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.