Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 15

Freyr - 01.04.2004, Qupperneq 15
Tafla 1 sýnir á venjubundinn hátt yfirlit um helstu ijölda- og meðaltalstölur um skýrsluhaldið á einstökum búnaðarsambands- svæðum, ásamt tilsvarandi tölum fýrir landið allt. Fyrir Suðurland er tölum eins og áður skipt eftir gömlu nautgriparæktarsambands- svæðunum. Bú í skýrsluhaldinu árið 2003 voru samtals 722 og hefiir því fækkað um 13 frá árinu áður. Fækkun er þannig heldur minni en verið hefur nokkur allra síðustu árin. A því eru tvær skýr- ingar. Önnur er sú að nokkuð hef- ur nú dregið úr þeirri hröðu fækk- un mjólkurffamleiðenda sem ver- ið hefur síðustu árin. Hin er sú að nokkur fjöldi búa, sem hafa ekki verið með í skýrsluhaldinu, byrj- aði skýrsluhald á árinu. Nokkur hluti þeirra hóf skýrsluhald sam- hliða því að einstaklingsmerking- ar voru teknar upp. Rétt er að benda þeim mjólkurframleiðend- um, sem enn standa utan skýrslu- haldsins, að hugleiða hvort ekki sé ástæða til að byrja nú skýrslu- hald og nota það þannig um leið sem hjarðbók vegna einstaklings- merkinganna. Kýr, sem koma á skýrslu á ár- inu, teljast samtals 28.721 (28.375) og hefur því fjölgað um 1,2% á sama tíma og kúm í land- inu fer fækkandi. Bent skal á að þar sem tölur eru í sviga eru það sambærilegar tölur úr skýrslu- haldinu fyrir árið 2002. Reiknaðar árskýr eru 20.503,4 (20.734,4) og fækkar þeim því lítillega. Breyt- ingar í fjölda skýrslufærðra kúa og árskúa eru því öndverðar við það sem var árið áður og megin- skýring á því er vafalítið að lang- stærstur hluti nýrra skýrsluhaldara árið 2003 hóf sitt skýrsluhald á síðustu mánuðum ársins á þeim tíma þegar reglugerðin um ein- staklingsmerkingar nautgripa tók gildi. Skýrsluhaldið er undirstaða Mynd 1. Hlutfallsleg þátttaka mjólkurframleiðenda eftir héruðum árið 2003. upplýsingaöflunar vegna ræktun- arstarfsins í nautgriparækt hér á landinu. Ekkert er ofsagt þó að fullyrt sé að það er því aðeins framkvæmanlegt að fyrir hendi sé mikil og almenn þátttaka mjólkur- framleiðenda í því. Eftir því sem kúm fækkar í landinu reynir æ meira á þennan þátt að þessu leyti. Hlutfallsleg þátttaka í þessu starfi er því beinn mælikvarði á hve vel bændur standa að því að nýta ræktunarmöguleikana sem kúa- stofninn gefur um leið og þátttak- an er líklega um leið besti mæli- kvarði, sem hægt er að hafa, um faglegan styrk greinarinnar að öðm leyti. Mynd 1 sýnir hlutfallslega þátt- töku mjólkurffamleiðenda í þessu starfí árið 2003 á hliðstæðan hátt og gert hefur verið um árabil. Þessi þátttaka er metin á þeim gmnni að skoðað er hve mikið af greiðslumarki til mjólkurfram- leiðslu á hverju svæði er á búum með skýrsluhald. Metið á þennan hátt reiknast þátttakan fyrir landið allt 88,7% sem er aukning um tæp 2% frá fýrra ári og því um leið að sjálfsögðu það mesta sem nokkm J sinni heftir verið. A síðustu þrem- ur ártugum hefur hin hlutfallslega þátttaka mjólkurframleiðenda í þessu starfi aukist um yfír helm- ing, úr rúmum 40%. Ljóst er að þakið nálgast stöðugt. Landvinn- ingar em samt enn mögulegir í þessum efnum og meðan svo er þá er engin ástæða til að láta staðar numið. I mörgum hémðum er þátt- taka þegar vel yfir 90%. Þegar mögulegir landvinningar em skoðaðir er samt best að skoða hvar mjólkurmagnið utan skýrslu- halds er að fínna og til þess er myndin ekki góð vegna þess hve svæðin em misstór. Slík skoðun sýnir hins vegar að yfir fjórðung mjólkurframleiðslunnar utan skýrsluhalds í öllu landinu er að finna í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslum og er það eina svæðið á landinu þar sem enn er að finna talsverðan fjölda af vem- lega stómm búum í mjólkurfram- leiðslu sem ekki em með skýrslu- hald. Síðan kemur Amessýsla með 14% til viðbótar, Borgarfjörður er með 11% og á Austurlandi og í Eyjafirði em 9% á hvom svæði og í Skagafirði 8%. Á þessum svæð- um þurfa því breytingar öðru fremur að gerast til að nokkuð verða sem um munar Eins og á síðasta ári vom yfir þúsund kýr skýrslufærðar i tveim- ur félögum og flestar i Nf. Austur- Húnvetninga þar sem þær vom 1189 og fast á hæla þess kemur Nf. Hrunamanna með 1160. Rétt er um leið að minnast þess að það Freyr 3/2004- 15 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.