Freyr - 01.04.2004, Side 46
Nautgripasæðingar 2003
r
árinu 2003 voru sæddar
23.326 kýr 1. sæðingu
eða rétt um 70% af
heildarfjölda kúa og kvígna
samkvæmt talningu haustið
2002. Er þetta heldur lægra
hlutfall en á árinu 2002 en
munar ekki miklu. Eins og
undanfarin ár fækkaði sæðing-
um enda hefur kúm fækkað
verulega á síðustu árum.
Mynd 1 sýnir árangur sæðinga á
tímabilinu 1994 til 2003. Árang-
urinn er nokkuð stöðugur þetta
timabil og sveiflan rétt við 3%.
Auðvitað er hver hundraðshluti
ákaflega mikilvægur í rekstri
hvers bús og því er það markmið
okkar að vera yfír 70% sem ekki
tókst á síðasta ári. Ástæðumar er
erfítt að greina en tilfærsla sæð-
inga innan árs er einn áhrifaþátt-
anna. Eins og sést í töflu 1 hér
neðar er svo árangur milli svæða
ákaflega misjafn og einnig innan
svæða milli mánaða. Niðurstaða
síðasta árs er 69,4% og er því
rúmum hundraðshluta lægri en ár-
ið 2002.
Tafla 1 sýnir árangur sæðinga
eftir svæðum, þar sést að sums
staðar er uppsveifla í fangpró-
sentu en annars staðar hefur ár-
angur farið niður á við. Hvað
heildamiðurstöðu varðar munar
mest unr nokkuð lakari árangur á
Suðurlandi en þar fellur fanghlut-
fall um 2,4%. Það munar um
minna enda er þar um að ræða
rúmlega 40% af öllum fyrstu sæð-
ingum á landinu.
Á árinu 2003 vora flestar fyrstu
sæðingar í desember eða 3.086 og
í janúar 2.980 og er það svipað og
á síðasta ári þó að janúar hafí
heldur haft vinninginn það árið.
Fæstar voru fyrstu sæðingar í
september 856 og var það eini
mánuður ársins með færri fyrstu
sæðingar en 1000. Best héldu
kýmar sem sæddar vora í ágúst
79,2%, júlí 75,4% og september
74,4%, en verst héldu þær sem
sæddar vora í janúar eða 65,4%.
Alls vora 32 óreynd naut notuð
Tafla 1. Samanburður milli áranna 2002 oq 2003
Búnaðar- samband 1. sæðing 2002 Tvísæð. Árangur 1. sæðing 2003 Tvísæð. Árangur
Kjalnesinga 176 9 75,4% 189 24 80,0%
Borgarfjarðar 1991 272 70,2% 1942 234 68,9%
Snæfellinga 655 161 68,6% 675 168 71,6%
Dalamanna 392 133 72,6% 347 126 73,8%
Vestfjarða 415 89 66,6% 407 74 74,8%
Strandamanna 37 0 70,3% 47 3 68,2%
V-Hún. 520 45 72,8% 502 33 69,5%
A-Hún. 903 104 74,8% 813 75 74,7%
Skagafjarðar 1975 185 72,4% 1915 167 72,9%
Eyjafjarðar 4345 387 72,8% 4036 358 73,5%
S-Þing. 1596 153 70,5% 1549 139 68,6%
Austurlands 850 64 73,5% 796 70 69,8%
A-Skaft. 315 57 68,2% 285 33 67,1%
Suðurlands 10060 1462 68,4% 9823 1490 66,0%
Landið 24230 3121 70,5% 23326 2994 69,4%
146 - Freyr 3/2004