Andvari - 01.01.2010, Qupperneq 26
24
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
ANDVARI
helst líkjast þeim söguhetjum."45 í janúar 1921 voru aukakosningar í
Reykjavík, er kjósa skyldi þrjá þingmenn, tvo vegna fjölgunar þing-
manna höfuðstaðarins og einn í stað Sveins Björnssonar, sem orðinn
var sendiherra Islands í Kaupmannahöfn. Alþýðuflokkurinn bauð fram
lista, en þrír listar komu fram frá andstæðingum sósíalista, og var Jón
Þorláksson verkfræðingur efstur á einum, dr. Magnús Jónsson guð-
fræðidósent á öðrum og Þórður Sveinsson læknir á hinum þriðja. Björn
Olafsson var vinur Þórðar læknis, og í þriðja sæti á lista hans var alnafni
hans og viðskiptafélagi Björns, Þórður Sveinsson kaupmaður. Tók
Björn til máls á fundi, sem listinn hélt í Bárubúð 19. janúar, „og ámælti
stjórninni harðlega fyrir þessa einokunarstefnuskrá, er hún nú hefir
tekið ástfóstri við“.46 Hlaut þessi listi fæst atkvæði þeirra fjögurra, sem
í framboði voru, og engan þingmann, en hinir listarnir þrír einn þing-
mann hver. Síðar þetta sama ár, 1921, var Björn í varaliði lögreglunnar,
sem boðið var út, þegar Olafur Friðriksson, ritstjóri Alþýöubladsins,
neitaði að verða við fyrirmælum stjórnvalda um að senda erlendan pilt
með smitsjúkdóm úr landi, eins og læknar höfðu ráðlagt.47
í bæjarstjórnarkosningum í ársbyrjun 1922 buðu andstæðingar
sósíalista, sem gengið höfðu fram þríklofnir í aukakosningunum
í Reykjavík árið áður, fram saman einn lista, A-listann. Var Pétur
Magnússon málflutningsmaður í fyrsta sæti, Björn Ólafsson í öðru og
Jónatan Þorsteinsson kaupmaður í hinu þriðja. Hefur Björn eflaust átt
að leggja með sér eitthvert fylgi úr Sjálfstæðisflokknum þversum, en
einnig var honum talið til gildis, að hann myndi í bæjarstjórn halda
fram íþróttum.48 í ræðu á kjósendafundi 22. janúar 1922 kvað Björn
valið standa um sameignar- og séreignarstefnu:
Hið núverandi skipulag með séreignarrétt og athafnafrelsi einstaklingsins gefur
hverjum hvöt til þess að bæta aðstöðu sína og koma sér upp. Sameignarstefnan
mundi uppræta þessa hvöt, svo að fáir eða enginn mundi leggja fram krafta sína
fram yfir það allra nauðsynlegasta.49
Þeir Pétur, Björn og Jónatan náðu kjöri af A-lista, en jafnaðarmennirnir
Héðinn Valdimarsson hagfræðingur og Hallbjörn Halldórsson prentari
af B-lista Alþýðuflokksins.
Bæjarstjórnin hélt fundi sína hálfsmánaðarlega í Gúttó, húsi Góð-
templarareglunnar við Tjörnina, sunnan Alþingishússins. Eitt sinn brá
Morgunblaðið upp svipmynd af hinum unga bæjarfulltrúa: