Andvari - 01.01.2010, Blaðsíða 30
28
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
ANDVARI
4.
Stjórn íhaldsflokksins 1924-1927 reyndi á mörgum sviðum að snúa
aftur til þess fyrirkomulags, sem verið hafði fyrir stríð. Festi hún
gengi krónunnar, lækkaði ríkisútgjöld og lagði niður ýmsar einkasölur
ríkisins. Eftir lát Jóns Magnússonar 1926 var Jón Þorláksson forsæt-
isráðherra til 1927. En skipt var um stefnu, þegar fyrsta vinstri stjórnin
var mynduð á Islandi 1927, en hún var flokksstjórn framsóknarmanna
með hlutleysi Alþýðuflokksins. Þótti hún fjandsamleg kaupmönnum,
en að sama skapi vinsamleg kaupfélögum. Næstu árin starfaði Björn
Olafsson frekar í hópi stéttarbræðra sinna, sem töldu hart að sér sótt, en
í hinni eiginlegu stjórnmálabaráttu, og sat hann til dæmis ekki fyrstu
landsfundi Sjálfstæðisflokksins 1929-1934.60 Félag íslenskra stórkaup-
manna var stofnað 21. maí 1928 í Kaupþingssalnum, og var Björn ritari
þess 1928-1933, en Arent Claessen var fyrsti formaðurinn. Var Björn
kjörinn heiðursfélagi á 40 ára afmælinu 1968.61 Björn sat einnig í stjórn
Verslunarráðs íslands 1937-1942, en það hafði verið stofnað 17. sept-
ember 1917, og var Garðar Gíslason stórkaupmaður fyrsti formaður
þess.62
Þegar kreppan skall á Islandi af fullum þunga eftir 1930, greip vinstri
stjórnin til víðtækra hafta í því skyni að takmarka innflutning til landsins
og notkun gjaldeyris. Sett var reglugerð um gjaldeyrisverslun 2. október
1931, þar sem Landsbankinn og Útvegsbankinn fengu einkaleyfi til að
selja erlendan gjaldeyri, en öllum öðrum var gert skylt að láta hann
af hendi við bankana fyrir skráð kaupgengi. Var kveðið á um það, að
gjaldeyrir til kaupa á „ónauðsynlegum varningi“ skyldi takmarkaður.
Þremur vikum síðar var birtur listi um vöru, sem bannað væri beinlínis
að flytja til landsins. Jafnframt skyldi fimm manna nefnd veita innflutn-
ingsleyfi. Verslunarráð Islands mótmælti þessum ráðstöfunum harðlega,
en taldi sér skylt að benda á einn mann í nefndina, og var hann Björn
Olafsson. Einnig starfaði sérstök gjaldeyrisnefnd á vegum bankanna,
en í september 1932 voru nefndirnar tvær sameinaðar í eina gjaldeyris-
og innflutningsnefnd. Rak nefndin starfsemi sína í gamla pósthúsinu á
horni Hafnarstrætis og Pósthússtrætis, þar sem Björn hafði unnið sem
ungur maður. Kom nefndin jafnan saman eftir opnunartíma fyrirtækja
á daginn, og gátu fundir staðið til miðnættis eða lengur. í janúar 1935
voru innflutningshöftin enn hert, og var nú bannað að flytja nokkra
vöru til landsins nema með sérstöku leyfi nefndarinnar, og var henni