Andvari - 01.01.2010, Page 70
68
JÓN KARL HELGASON
ANDVARI
Mikið óskaði ég þess heitt að það mætti haldast. Ég gerði mér í hugarlund að
eitthvað þessu líkt hefði verið að lifa í paradís“ (s. 100).
I Skáldalífi, nýlegri ævisögu Gunnars Gunnarssonar og Þórbergs Þórðar-
sonar, rifjar Halldór Guðmundsson upp að á þeim tíma sem Gunnar vann að
Svartfugli hafi hann átt í ástarsambandi utan hjónabands við danska konu,
Ruth Lange. Hún varð þunguð eftir hann og eignaðist árið 1929 son sem
skírður var Grímur Gunnarsson. Fyrir átti Gunnar tvo syni með Franziscu
eiginkonu sinni. Gunnar sagði henni af sambandi sínu við Ruth alllöngu áður
en Grímur fæddist en hann sleit því samt ekki endanlega fyrr en 1932, sama
ár og Vikivaki kom út. Halldór bendir á að í eftirmála íslenskrar þýðingar
Svartfugls hafi Gunnar talað „um hryggðarljóma hrapaðrar ástar“ og segir
lítinn vafa leika á því „að lífsreynsla hans sjálfs færði söguefnið nær honum“.
I verkinu hafi „Gunnari tekist að flétta saman merkilegar sögulegar heim-
ildir og sálræna túlkun sinnar eigin lífsreynslu í áhrifamikla sögu“.n Með
svipuðum hætti er mögulegt að líta á Vikivaka í heild sinni sem persónulegan
dómsdag skálds yfir sjálfu sér, sem syndajátningu breysks manns. Danski
útgefandinn gefur lesandanum undir fótinn með slíka túlkun strax í formála
sínum að verkinu þegar hann vitnar í þau orð Marks Twain
að það megi einu gilda hvernig einhver maður vill sýnast í því sem hann skrifar um
sjálfan sig, hvernig sem hann fer að, mun lesandinn sjá gegnum þá persónu sem hann
reynir að skapa, hvaða brellur sem höfundurinn reynir að hafa í frammi mun lesandinn
grilla hina sönnu mynd hans í gegn, mun sjá manninn eins og hann kom fyrir af
skepnunni. (s. 9)
Þessi túlkun setur okkur lesendur að vissu leyti í sömu klemmu og Jaki lendir
í fremst í Vikivaka þegar afturgöngurnar játa fyrir honum syndir sínar og
vonast til að fá fyrirgefningu. Við þurfum nú að ákveða, ekki aðeins hvort
höfundurinn verðskuldi syndakvittun, heldur einnig og ekki síður hvort við
séum yfirleitt þess umkomin að setjast í dómarasætið.