Andvari - 01.01.2010, Side 76
74
BRAGI ÞORGRÍMUR ÓLAFSSON
ANDVARI
sumrinu 1809, en hann þýddi auglýsingar Jörundar á íslensku og hélt dag-
bók yfir gjörðir hans, en í þeim tók hann þó ekki beina afstöðu til aðgerð-
anna.16 Eitt þekktasta bréfið frá valdatíma Jörundar er líklega bréf sem Jón
Guðmundsson, sýslumaður í Vestur-Skaftafellssýslu, skrifaði honum 10. ágúst
um sumarið þar sem hann fordæmir gjörðir Jörundar, þúar hann og hótar
honum öllu illu ef hann skyldi voga sér að koma í umdæmi sitt. Reyndar er
óvíst hvort Jörundur hafi nokkurn tíma séð bréfið, en af því eru mörg afrit í
handritadeild Landsbókasafns.17
Fyrri hluti 19. aldar: hörð eftirmœli
Ef litið er á heimildir frá fyrri hluta 19. aldar má ef til vill segja að íslendingar
hafi dauðskammast sín fyrir að láta byltingu Jörundar fram ganga. í íslenskum
sagnablöðum árið 1818 var fullyrt að flestum, ef ekki öllum, íslendingum hafi
líkað stórilla við uppátæki Jörundar, og að athafnir hans hafi verið „grátlegt
narraspil.“18 Danir fjölluðu að sjálfsögðu um Jörund og athafnir hans, meðal
annars í Kjöbenhavnsposten árið 1832 þar sem skrifað var um íslendinga á
miður jákvæðan hátt.19 Finnur Magnússon prófessor skrifaði grein í blaðið,
varði gjörðir landa sinna og sagði að öll þjóðin bæri heiftarhug til Jörundar:
athæfi hans væri svo fjarstæðukennt að nær væri að kalla það heimskuleg
bernskubrek frekar en valdarán!20 Jón Espólín fjallaði um Jörund í Arbókum
sínum, en í 11. deild þeirra sem kom út 1854, var ítarlega fjallað um bylt-
inguna. Frásögn Jóns snýst að miklu leyti um vandræðagang Jörundar við að
fá menn til liðs við sig, ógnandi tilburði hans og þær óblíðu móttökur sem
hann fékk á ferðum sínum norður í land.21 Af frásögninni að dæma má ætla
að valdatíð Jörundar hafi verið vanhugsað og mislukkað valdabrölt sem ein-
kenndist af ógnandi framkomu hans, en í nafnaskrá er hann titlaður sem „upp-
reisnarmaður“. Þessi frásögn Jóns er í samræmi við annála frá fyrri hluta ald-
arinnar þar sem Jörundur kemur við sögu (enda átti Jón nokkurn þátt í þeim).
I Húnvetningasögu er þannig sagt frá hinu „óvirðulega ofurvaldi“ Jörundar
sumarið 1809 og raktar aðgerðir hans, sérstaklega þar sem hann hótar að
beita ofbeldi. Loks segir að það eina sem hindraði alþýðu að rísa upp á móti
Jörundi, hafi verið sú trú manna að Phelps hafi fengið forræði yfir landinu
og að Danir myndu ekki reyna að ná því aftur.22 í Sögufrá Skagfirðingum er
stuttlega greint frá norðurreið Jörundar og ofbeldishótunum hans þegar hann
heimtaði hesta af heimamönnum og sagt að flestum hafi líkað það vel þegar
honum var vikið frá völdum.2-1 Björn Bjarnason ber Jörundi ekki vel söguna
í Brandsstaðaannál, kallar Jörund landráðamann og aðgerðir hans „kátlega
stjórnarbyltingu.“24
Það vekur nokkra athygli að í þessum annálum, sem allir eru ritaðir á fyrri