Andvari - 01.01.2010, Side 82
80
BRAGI ÞORGRÍMUR ÓLAFSSON
ANDVARI
Reykjavíkur sem komu út nokkrum árum fyrr þar sem hann talar um Jörund
sem valdaræningja frekar en ævintýramann og dró í efa að það hefði í raun
verið Jörundur sem bjargaði skipverjum þegar upp kom eldur í skipinu.57 Hér
má benda á að nokkurt kynslóðabil var á milli þessara höfunda, Jón Helgason
var fæddur 1866, en Þorkell 1895 og gæti það ef til vill haft eitthvað um þenn-
an mun að segja. Þorkell fjallar ekki um hina ógnandi tilburði sem Jörundur
hafði oft í frammi, ólíkt t.d. Jóni Espólín, og segir að íslendingum hafi líkað
ágætlega við byltinguna, því þeir höfðu enga samúð með dönskum kaup-
mönnum og álitu að von væri á ýmsum umbótum með valdatöku Jörundar.58
Þorkell bætir því jafnframt við að alþýðu, a.m.k. í grennd við Reykjavík,
hafi líkað vel við stjórn Jörundar þar sem hann hafði verið ör af fé og ólíkur
öðrum erlendum embættismönnum í framkomu.59 Loks segir að eftirmál bylt-
ingarinnar hafi ekki verið mikil og að fjárhagslega hafi ísland beðið lítið sem
ekkert tjón.60
Þessi tiltölulega jákvæða umfjöllun um Jörund er í nokkru samræmi við
frétt sem birtist í Morgunblaðinu fjórum árum síðar, þar sem sagt er frá
útgáfu á nýrri ævisögu Jörundar og þeirri spurningu varpað fram hvort for-
dómar íslendinga hefði ekki gert hlutverk hans verra í íslandssögunni en rétt
væri.61 Þessa áherslubreytingu má greina í hinum gríðarvinsæla bókaflokki
Aldirnar, en árið 1955 kom út bindið sem tók til fyrri hluta 19. aldar eftir Gils
Guðmundsson (Öldin sem leið. Minnisverð tíðindi 1801-1860). í umfjöllun
hans er greint frá umbótahugmyndum Jörundar en litlu plássi er varið í harka-
legar aðgerðir hans svo sem handtökur og ógnanir. Frásögnin endar á því að
sagt er frá björgunarafreki Jörundar þegar Margaret & Ann fórst62
Jörundur sem „sprœkur náungi“ á síöari hluta 20. aldar
Þegar hér er komið við sögu má varpa því fram hvort sagnaritarar og sagn-
fræðingar væru farnir að taka Jörund meira í sátt en áður, enda var komin
ákveðin fjarlægð á atburðina og hápunktur sjálfstæðisbaráttunnar að baki.
Landsmenn hafa að auki eflaust hugsað til Jörundar með léttari lund en áður,
því leikritaskáld fóru að veita honum athygli með verkum sem flutt voru í
útvarpi, sjónvarpi og á sviði63 Hér má nefna útvarpsleikrit Agnars Þórðarsonar
um Jörund sem flutt var í Ríkisútvarpinu veturinn 1965-1966 og sérstaklega
söngleikinn Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason sem settur var á svið
nokkrum árum síðar og varð geysivinsæll.64 Hinn létta stíl sem farinn var að
fylgja Jörundi má sjá t.d. í heimildaþáttum Hannesar Péturssonar frá 1982 þar
sem hann talar um Jörund og Phelps sem „tvo spræka náunga“ og að Jörundur
hafi verið „danskur ævintýragosi“.65 í sama streng tekur Morgunblaðið í
kynningu sinni á sjónvarpsuppfærslu á leikriti Jónasar Árnasonar, Þið munið