Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2010, Side 89

Andvari - 01.01.2010, Side 89
PÁLL BJARNASON Skáld á biðilsbuxum Enn um kvennamál Bjarna Thorarensens1 Árið 1811 var Bjarni Thorarensen skipaður dómari í Landsyfirrétti, tæpra 25 ára að aldri. Hann hafði þá dvalist nærri áratug í Kaupmannahöfn og þótti bera sig að heimsborgarasið í fámenninu í Reykjavík, bæði í klæðaburði og fasi. Ekki var skrítið þótt alþýða fólks fylgdist með því af forvitni hvar þessi ungi embættismaður bæri niður í leit að kvonfangi. Ekki voru allar þess verð- ugar í augum fólks, en margar komu þó til greina. Konuleit Bjarna reynd- ist hins vegar ekki þrautalaus næsta áratuginn eftir heimkomuna. Talsvert hefur verið skrafað og skrifað um kvennamál eða kvonbænaraunir Bjarna Thorarensens. Hér verður ekki fjölyrt um það sem áður hefur verið skrifað um þetta efni.2 Alkunna er að Bjarni taldi sig trúlofaðan á árunum 1816-18 Guðrúnu Thorarensen, frænku sinni á Möðruvöllum, og 1819-20 Elínu, dóttur Stefáns amtmanns Stephensens á Hvítárvöllum, en meiri leynd hefur hvílt yfir biðilsferðum Bjarna þar á undan. í bréfi til Bjarna Þorsteinssonar í ágúst 1814 tæpir Bjarni Thorarensen á því að eittthvað valdi honum ama, hann óttast að verða fyrir söguburði og hleypi- dómum, en útskýrir ekki málsatvik nánar.3 Jón Helgason prófessor ályktar af þessu í útgáfu sinni á ljóðmælum Bjarna 1935 að Bjarni „hafi fyrst beðið sér konu 1814 og verið synjað, en eigi er kunnugt hver það var“.4 Efast má um að rétt sé skilið því að líklegra er að Bjarni eigi við sama atvik og hann lýsir gerr í bréfi til Gríms Jónssonar ári síðar, í ágúst 1815. Bjarni segist hafa lent í „tragikomisku tilfelli“ haustið áður (haustið 1814) þegar bústýra hans vildi giftast honum en hann vildi ekki. Þetta gekk svo langt að hann „varð að reka kellingu úr húsinu“ og var „margtalað um þessa affaire“.5 „Kellingin“ var að vísu innan við fertugt, um það bil 10 árum eldri en Bjarni. Augljóst er að hann hefur ekki talið hana sér samboðna og sýnir henni enga samúð, en hann hefur áhyggjur af bæjarslúðrinu og óttast álitshnekki.6 Önnur heimild kemur fremur til álita þegar hugað er að kvonbænum skálds- ins. Það er kvæðið Hamingjan undir hólnum sem aðeins er til í einu handriti, eiginhandarriti Bjarna, en kom ekki á prent fyrr en í ljóðasafninu 1935:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.