Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2010, Side 108

Andvari - 01.01.2010, Side 108
106 ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON ANDVARI Jóreykur lífsins þyrlast til himna, menn í aktýgjum, vitstola konur í gylltum kerrum. - Gefið mér salt að eta, svo tungan skorpni í mínum munni og minn harmur þagni. Á hvítum hestum hleyptum við upp á bláan himinbogann og lékum að gylltum knöttum; við héngum í faxi myrkursins, þegar það steyptist í gegnum undirdjúpin; eins og tunglsgeislar sváfum við á bylgjum hafsins. Hvar eru þau fjöll, sem hrynja yfir mína sorg, hálsar, sem skýla minni nekt með dufti? í svartnætti eilífðarinnar flýgur rauður dreki og spýr eitri. Sól eftir sól hrynja í dropatali og fæða nýtt líf og nýja sorg. Fjórar fyrstu línurnar eru dæmigert upphaf á elegíu, saknaðarljóði. Stefið Ubi sunt (hvar eru?) er fornt og hefur í aldanna rás gegnt því hlutverki í skáldskap að tákna sáran harm og söknuð ljóðmælanda vegna þess sem honum er að eilífu glatað. Og næstu fjórar línur draga upp mynd af hinu glataða og lýsa eftirsjá mælanda. Talið er með nokkurri vissu að tilefni kvæðisins sé sú vitneskja Jóhanns að vinur hans hafi bilast á geði.24 Þannig má ætla að ,hin fallna borg‘ í fyrstu línu sé upphaflega myndhverfing um þennan vin hans. í seinni gerðum kvæðisins hefur Jóhann þó þurrkað út allt, eða að minnsta kosti velflest, sem tengir það hinu upprunalega tilefni, sem skiptir því ekki lengur máli við lesturinn. Eftir stendur sjálfstætt tregaljóð sem fengið hefur almenna merkingu og tjáir harm vegna forgengileika lífsins. Þeir Hannes Pétursson skáld og á undan honum bandaríski bókmennta- fræðingurinn Peter Carleton, sem samdi doktorsritgerð um íslenskan nútímaskáldskap, hafa bent á biblíulegt orðfæri og myndmál í kvæð- inu.2'' Peter Carleton nefnir Harmljóöin og Hannes Opinberunarbókina. Hvorttveggja er áreiðanlega hárrétt. Kvæðið er elegískur skáldskapur eins og Harmljóðin og skýr textaleg tengsl eru við Opinberunarbókina eins og Hannes rekur. Sumar myndanna eru þó býsna nútímalegar: „Hvar eru þín stræti, / þínir turnar, / og Ijóshafið, yndi næturinnar?íí - sem minnir fremur á París og New York eða jafnvel Kaupmannahöfn samtímans en hina fornu Jerúsalemsborg.26 Og að minnsta kosti ein mynd gæti leitt hugann að heima- högum skáldsins, uppblæstri gróðurlands og moldroki þar: „[Hvar eru þeir] hálsar, sem skýla minni nekt með dufti?“ [leturbreytingar hér].27 Reyndar er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.