Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2010, Síða 122

Andvari - 01.01.2010, Síða 122
120 ÞÓRA SIGRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR ANDVARI Sögumaður er tvískiptur. Aðalpersónan Páll Jónsson kemur fram hvort tveggja í senn sem ungur og eldri, ungur í sögutímanum, eldri sögumaður sem skrifar í endurliti. Páll Jónsson yngri er afskaplega ómótaður og blindur á hvers konar undirferli og baktjaldamakk lungann úr sögutímanum en sögu- maður, Páll eldri, bætir það upp með því að benda á ýmislegt sem Páli yngra er hulið. Þannig tekst orðræða sakleysingjans á við stílfærslu róandi lífsreynslutóns sögumanns, gróf og óhefluð orðræða vegst á við hógværa og vandaða, í stuttu máli varpar tungumálið markvissu ljósi á aðalpersónur og aukapersónur, og samskipti þeirra á milli varpa skýrara ljósi á aðalpersónuna og víkka hana. Persónusköpun í þríleiknum er afar litrík og margslungin og komið er við víða í þjóðfélagsstiganum. Persónur bókarinnar gegna flestar eða allar ákveðnu hlutverki, þær lýsa sjónarmiðum ólíkum Páls og upplýsa lesandann jafnframt um ýmislegt sem Páll yngri áttar sig ekki á. Samankomnar skapa þær margbreytilega en þó heildstæða mynd sem knýr söguna áfram. Höfundur notar skop eða íróníu til að lyfta sögunni upp og halda lesandanum við efnið. Þetta eru gildir þættir í verkinu sem koma meðal annars fram í þeirri tvíræðu notkun talmáls sem fyrr er nefnt. II Ólafur Jóhann hefur almennt verið talinn alvarlegur höfundur með þungan undirtón en síður verið lögð áhersla á glettni hans né bent á hvernig hann stingur upp kollinum sem kímniskáld á tímum stjórnmálalegra og samfélags- legra átaka. Hér er þó ekki ætlunin að ræða þríleikinn fyrst og fremst út frá stjórnmálum eða sögu tímabilsins heldur að fjalla um sagnabálkinn með hlið- sjón af verki úr ólíklegustu átt, sögunni af spýtusnáðanum Gosa, sem flestum er kunnur í einni eða annarri mynd. Ólafur Jóhann svaraði í viðtali í jólablaði Samvinnunnar árið 1978 þegar Valgeir Sigurðsson spurði höfundinn um þær bækur sem höfðu hvað mest áhrif á hann: Fyrsta lestrarefni mitt á eftir stafrófskveri voru þrjár bækur: Barnasögur og Daglæti eftir Hallgrím Jónsson rithöfund og skólastjóra og Gosi í þýðingu hans. Ég vil taka það fram að ýmsar þýðingar á Gosa, þessari snilldarlegu barnasögu eru að mínum dómi eins og hismi og vatnsbland hjá þýðingu Hallgríms [...] Þessar bækur las ég margsinnis, en Gosa þó oftast og tel ég mig hafa dregið af honum nokkurn lærdóm um gervimennsku ýmiskonar. Á þetta minnist höfundur aðeins í þessu eina viðtali þótt hann sé þráspurður sömu spurningar eftir þetta. Sú þýðing á Pinocchio eða Gosa sem höfundur nefnir er gerð úr ensku og segir í formála að Steingrímur Arason kennari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.