Andvari - 01.01.2010, Page 123
ANDVARI
AÐ VERÐA AÐ ALVÖRU MANNI
121
hafi komið með bókina frá Ameríku en hún hafi ekki sést áður á íslandi.
Upphaflega var Pinocchio skrifuð árið 1883 af C. Collodi en það mun vera
dulnefni ítalska rithöfundarins Carlos Lorenzini. Bókin kom út í íslenskri
þýðingu Hallgríms Jónssonar árið 1922 og bar heitið Gosi. Æfintýri gerfipilts.
Bókin er 214 blaðsíður í fremur litlu broti og er boðskapur sögunnar í meg-
indráttum sá sami og við þekkjum frá seinni tíð en í mun flóknari útfærslu,
sem sagt sá að það fer illa fyrir drengjum sem ekki vilja fara í skóla og læra,
hafa vanið sig á að ljúga og nenna ekki að vinna. í sögunni er talsvert ofbeldi
sem hefur verið strikað út í seinni tíma útgáfum. Gosi er ekki aðeins barinn
og gerð tilraun til að drekkja honum, heldur er hann einnig hengdur, hlekkj-
aður inni í hundakofa og látinn dúsa saklaus í fangelsi mánuðum saman svo
eitthvað sé nefnt.
Gosi er hinn mesti gallagripur, duttlungafullur, baldinn, matvandur, heimtu-
frekur, áhrifagjarn og trúgjarn. Leið hans til að verða að alvöru manni er
þyrnum stráð og Gosi gerir sömu mistökin æ ofan í æ og á reyndar litla samúð
sögumanns. Sumt kemur heldur einkennilega fyrir sjónir í sögunni eins og
þegar Gosi hittir risavaxinn höggorm sem hann þarf að komast framhjá. Gosi
stekkur yfir höggorminn og lendir með hausinn á bólakaf í jörðinni en sprikl-
ar öllum öngum út í loftið. Setur þá slíkt hláturkast að höggorminum að hann
„hló, hló látlaust og tryllingslega, þangað til hann fékk heilablóðfall og sál-
aðist.“ (Gosi, 99). Þetta er nokkuð sérkennilegt miðað við nútíma barnabækur
eins og reyndar margt annað í sögunni sem eflaust er hægt að túlka á marga
vegu. Sú túlkun er nærtæk að höggormurinn, sem hefur verið tákn hins illa
allt frá biblíutúlkunum, deyi úr hlátri vegna þess að hann er að hlæja að óför-
um annarra. Úr nýrri útgáfum af Gosa þekkja allir lastalandið mikla, Leik-
fangaland. í gömlu útgáfunni kemur Leikfangaland líka fyrir en það er aðeins
einn staður af mörgum af því tagi í verkinu. Staðirnir sem Gosi heimsækir
þar heita í þýðingunni Gósenland, Undraland, Aulagildra og Leikfangaland.
Allir eiga staðirnir það sameiginlegt að vera einhvers konar blekkingarstaðir
og þeir sem freistast til að sækja þangað hljóta ill örlög, því ekki er allt sem
sýnist. Gosi lendir ofan í daunillum hákarlsmaga og finnur þar föður sinn, líkt
og Gosi í nýrri útgáfu finnur föður sinn í maga hvals. Báðar útgáfurnar enda
þó eins, þannig að Gosi sýnir dirfsku og dug og bjargar föður sínum úr maga
kvikindisins og verður að alvörumanni af holdi og blóði í kjölfarið.
III
Þegar að er gáð má ætla að Ólafur Jóhann Sigurðsson hafi að einhverju leyti
haft söguna af Gosa í huga við skrif þríleiksins um Pál Jónsson sem fjallar að
ýmsu leyti um sömu hluti og barnabókin. I þríleiknum er dregin upp mynd