Andvari - 01.01.2010, Side 131
ÁRNI KRISTJÁNSSON
Minningar um Markús Kristjánsson
Árni Kristjánsson píanóleikari og tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins samdi á síð-
ustu árum sínum stuttan minningaþátt um Markús Kristjánsson píanóleikara
og tónskáld, og var hannfluttur í útvarpsdagskrá um Markús. Andvari hefur
óskað heimildar til að birta þessa frásögn.
Endurminningar mínar um Markús vin minn eru mjög á strjáli. Það mun hafa
verið um sumarið 1922 að ég sá hann fyrst hér í Reykjavík. Ég var þá um
fermingu, kominn að norðan til sumarlangrar dvalar hjá vinafólki, Kolbeini
Árnasyni kaupmanni og konu hans, frú Sigríði, og æskufélaga mínum, Ingólfi
Ásmundarsyni. Ingólfur var mjög gefinn fyrir tónlist og lærði að leika á píanó
hjá Markúsi. Markús vakti fyrst eftirtekt mína fyrir þá sök að hann minnti
mig á Chopin eins og það eftirlætistónskáld mitt leit út á mynd, sem ég hafði
yfir hljóðfæri mínu fyrir norðan. Markús var grannvaxinn, fremur þunnleitur
og fölur á vangann, með kónganef og mikið liðað hár.
Síðar hittumst við í Kaupmannahöfn fáeinum árum síðar er ég var sjálfur
að sigla til náms. Hann var þá með danska stúdentshúfu á kolli, nýbakaður
stúdent, byrjaður á píanónámi hjá Haraldi Sigurðssyni. Og enn bar fundum
okkar saman í Berlín og mun Markús þá hafa verið á leið til Múnchen þar
sem hann fór í læri til Max Pauers, ágæts píanósnillings og kennara. Þó var
það eiginlega ekki fyrr en um haustið 1929, þegar ég kom til Reykjavíkur í
fyrstu tónleikaför mína ásamt Kristjáni söngvara Kristjánssyni, að ég kynntist
Markúsi til hlítar og batt vináttu við hann. Já, við urðum vinir og óaðskilj-
anlegir meðan við gátum verið saman þær vikur sem ég dvaldi í Reykjavík í
það sinn.
Þetta var mín fyrsta ganga inn á konsertpallinn að kalla og tók Markús
hinn yngri „bróður í listinni“ að sér og taldi kraft í mig. Hann stóð þá sjálfur í
stríðu, aðstoðaði Eggert Stefánsson á hverri söngskemmtuninni af annarri, en
Eggert söng þá mörg lög Markúsar og frumflutti þau opinberlega, enda urðu
þessi sönglög Markúsar til jafnharðan, má segja, og voru þetta vitjunardagar
hans sem tónskálds.
Kristján Kristjánsson, sem einnig var kominn til tónleikahalds um þessar
mundir, söng einnig nýsamin lög eftir Markús á sínum söngskemmtunum,