Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Page 99

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Page 99
 JTjóipftáinidla ár§]þo IÞjó^ræRfftisfélafl Fjórtánda ársþing Þjóðræknisfélags Is- lendinga i Vesturheimi, var sett af for- seta félagsins, hr. Jóni J. Bíldfell, mið- vikudaginn 22. febrúar 1933, kl. 10.25 f. h. Forseti hað þinggesti að syngja sálm- ínn nr. 638 í íslenzku sálmabókinni (Fað- ir andanna). Að því búnu las forseti .svohljóðandi ávarp: Háttvirtu þingmenn! Það er fátt, sem eg hefi til þess að segja frá hinni ytri hlið starfsmála Þjóð- ræknisfélagsins á árinu. Erfiðleikarnir, sem að mönnum kreppa nú á öllum starfssviðum lífsins, hafa einnig náð til að takmarka starfsmöguleika þess út á við, sem þó eru óhjákvæmileg skilyrði til við- halds og þroska fyrir félagið. Stjórnarnefndin hefir því orðið að láta sér nægja þau úrslit málanna, sem hún hefir á fundum sínum getað veitt. Nefnd- in hefir haft 23 fundi á árinu, og skal nú nokkuð frekar skýrt frá því starfi og málum þeim, sem hún hefir haft til með- ferðar. Bókasafnsmálið: Eins og þið munið, þá voru á síðasta þingi gerðar ráðstafanir til þess, að opna bókasafn Þjóðræknisfélagsins, til afnota almenningi og framkvæmdi stjórnarnefnd þær ráðstafanir með því, að semja við •deildina Frón um framkvæmdir útlánsins, og má óhætt segja, að það fyrirtæki hafi hepnast vel. I bókasafninu eru 677 bindi í góðu bandi, auk allmikils forða af bók- um, sem eru óbundnar. Bækur þær sem bundnar eru, eru aðeins lánaðar út, og hefir notkun þeirra verið sem hér segir: Meðaltal bóka. þeirra sem mánaðarlega hafa verið í útláni, er 551, og gerir það 6612 bækur yfir árið. Sé eg ekki annað en að sú staðreynd kollvarpi til fulls og alls því tali manna, að hér lesi enginn fram- ar íslenzka bók. Á árinu hafa safninu ver- ið gefnar 97 bækur, sem eg í nafni félags- ins þakka fyrir. Gefendurnir Mrs. Gróa Brynjólfsson, Mrs. Hólmfríður Peterson, og Mr. Þorleifur Hansson. Dr. Sigurður Nordal: Fátt er það sem veitir oss meiri gleði, eða vekur meiri ánægju hjá oss Vestur- Islendingum en heimsóknir mætra gesta frá ættlandinu. Á siðasta ári nutum vér sérstakrar ánægju í sambandi við heimsókn dr. Sigurðar Nordal, sem hing- að kom að tilhlutum Þjóðræknisfélagsins en dvaldi því miður alt of stutt. En þó dvöl hans á meðal vor væri stutt, þá verður hún oss, sem því láni áttum að fagna að kynnast honum minnisstæð. öll framkoma hans var svo blátt áfram og látlaus, og mál það, sem hann flutti, læsti sig inn í sálir hinna yngri jafnt og þeirra eldri. Hann flutti fimm opinber erindi: — I Riverton, á Gimli, í Selkirk og tvö í Winnipeg. Vér hefðum óskað að hann hefði get- að náð til allra bygða Vestur-lslendinga. En þess var ekki með nokkru móti auðið þvi tími hans hér var svo naumur. Samsæti var dr. Nordal haldið á Fort Garry hótelinu hér i borg, undir umsjón Þjóðræknisfélagsins. Var það fjölment, skemtilegt og veglegt. Og að skilnaði var dr. Nordal afhentur gullbúinn göngu- stafur að gjöf, til minja um komu hans hingað vestur. Þökk fyrir komuna, dr. Nordal, og við vonum að fá að sjá þig hér hjá okkur, áður en mörg ár eru liðin, og að þú þá hafir meiri tíma til skrafs og ráðagerða, heldur en þú hafðir síðast. Tímaritið. Tímaritið kemur út i ár, undir stjórn dr. R. Péturssonar, eins og að undan- förnu. En það er nokkuð minna, aðeins 8 arkir í stað 11. Ástæðan fyrir þeirri breytingu stjórnarnefndarinnar er víst öllum skiljanleg. Ritið, eins og menn vita, á tilveru sína undir auglýsingum þeim, sem hægt er að afla í það. En útlitið með þær í ár var hið ískyggileg- asta sökum kreppunnar. Þó raknaði fram úr því eftir vonum, fyrir frábæran dugn- að Ásmundur P. Jóhannssonar, sem fyrir margítrekaða ósk stjórnarnefndar tók að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.