Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1933, Qupperneq 104
80d
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISPÉLAGS ÍSLENDINGA
vor er við lýði. Aðstoðar hennar hefir verið
leitað um ýms efni, er hafa snert hag-
einstaklinga hér eða á Islandi, eða borg-
aralega stöðu vora sem þjóðerniseiningar
hér í landi. Þá hafa margvíslegar fyrir-
spumir verið gjörðar, er nefndin hefir
Ieitast við að svara. Sýnir þetta, meðal
annars, hve víðtækt verksvið félagsskap-
urinn í raun og veru hefir og hvllík þörf
er á þvílíkum félagsskap fyrir oss Is-
lendinga sem þessum. Látum því verk
vor miða til þess að efla hann æ betur
og betur eftir því sem tímar líða fram.
Rögnv. Pétursson.
Þá las féhirðir, Ámi Eggertsson,
skýrslu yfir fjárhag félagsins, og fjár-
málaritari, Jónas Þórðarson, las skýrslu
yfir sín störf. Var þessum skýrslum út-
býtt prentuðum til þingsins.
Ásm. P. Jóhannsson taldi viðeigandi,
að þingið viðtæki þegar upplesnar skýrsl-
ur, áður lengra væri farið í störfum
þingsins. Benti á einstök atriði í skýrsl-
unum, sem þyrfti lítilsháttar skýringar
við, svo ekki yrði um þau misskilningur
siðar. Gerði hann grein fyrir þessum at-
riðum og bar síðan fram uppástungu um
að skýrslumar séu samþyktar af þinginu.
Dr. Rögnv. Pétursson kvaðst það eitt
hafa að athuga við skýrslu fjármálarit-
ara, að ekki væri getið tekjuliðs, í sam-
bandi við samkomur Dr. Sigurðar Nor-
dal, en aðeins útgjöldin nefnd, er stöfuðu
af ferð hans hingað. Eftir þessar at-
liugasemdir voru svo skýrslumar sam-
byktar af þinginu.
Þegar hér var komið störfum, vék for-
seti hr. J. J. Bíldfell úr sæti, en varaforseti
félagsins, séra Ragnar E. Kvaran, gegndi
fundarstjórn, það er eftir var fundar.
Forseti kvað þá liggja fyrir, að kjósa
dagskrámefnd og kjörbréfanefnd.
Dr. Rögnv. Pétursson gerði tillögu, en
G. P. Magnússon studdi, að forseti skipi
þrjá menn í hvora þessara nefnda. —
Samþykt.
I dagskrárnefndina skipaðir:
Dr. Rögnv. Pétursson,
Guðjón Friðriksson,
Mrs. Matth. Friðriksson.
I kjörbréfanefnd:
Séra Jónas A. Sigurðsson,
Jón Ásgeirsson,
G. P, Magnússon.
Þá óskaði Dr. Rögnv. Pétursson að
hann mætti lesa símskeyti, er honum
barst, frá Major W. W. Kennedy, K.C.,
þingmanni frá Winnipeg, útaf fyrirspum
er Dr. R. Pétursson hafði sent honum, í
sambandi við námssjóð þann, er Kanada-
stjóm samþykti að gefa íslenzka ríkinu,
til fræði rannsókna ísl. stúdentum og
mentamönnum, við hérlenda háskóla. En
sem kunnugt er, er sjóðstofnun þessi til-
orðin í sambandi við þúsund ára hátíðina
á Islandi, 1930.
Ottawa, Ont.,
Feb. 22, 1933.
Rev. Rögnv. Petursson,
Care Viking Press, Ltd., Wpg.
Official notification sent today to
President and Council of Government of
Iceland, Reykjavík, re establishment of
Icelandic Scholarship. Canadian Gov-
emment have decided to establish trust
fund twenty five thousand dollars as
expression of friendly interest of Can-
ada in Celebration in 1930 of Thousandth
Anniversary of establishment of Icelandic
Parliament. Annual interest on this sum
available for scholarships enabling Ice-
landic students to complete studies in
Canadian universities under such condi-
tions as may be agreed upon between
Governments of Iceland and Canada.
Pending completion of Trust in legal
form provision is made in estimates for
coming fiscal year of twelve hundred and
fifty dollars, being interest at five per-
cent on Trust fund. Please wire ack-
nowledgement.
(Signed) W. W. Kennedy.
Var fréttinni, er skeytið flutti, tekið
með fögnuði af þingheimi. — Þá benti
Dr. Rögnv. Pétursson á, að vel ætti við að
þingið sendi Major W. W. Kennedy, K.C.,
þakklæti, simleiðis, fyrir starf hans í
þágu sjóðsmálsins, og einnig að þingið
sendi forsætisráðherra, Hon. R. B. Ben-
nett, hamingjuóska skeyti. Urðu um
þetta stuttar umræður, unz Dr. Rögnv.
Pétursson gerði tillögu, er séra Jónas A.
Sigurðsson studdi, að þingið sendi for-
sætisráðherra Kanada, forsætisráðherra
íslands og Mr. W. W. Kennedy kveðju
sína. Ásm. P. Jóhannsson mælti með til-
lögunni og kvað rikari ástæðu nú en